Dagblaðið - 11.05.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAl 1977.
SALT-viðræðumar halda áfram
Sendinefndir Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna hittast í dag i
Genf til frekari viðræðna á tak-
ntörkun kjarnorkuvopna,
SALT-viðræðanna svonefndu.
Þær halda nú áfram eftir sex
mánaða hlé.
Aðalsamningamaður Banda-
ríkjanna er Faul Warnke, —
skipaður í marz síðastliðnum.
Hann kvaðst, við komuna til
Genfar, hyggjast halda sig við
þær tillögur, sem Vance utan-
ríkisráðherra lagði fyrir Sovét-
menn fyrir tveimur mánuðum.
Hann sagði þö það almikilvæg-
asta véra að menn ræddust
ennþá við. — Sovétmenn höfn-
uðu tillögum Vance gjörsam-
lega á sínum tíma.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Sovétrikjanna, Vladimir
Semyonov verður aóal-
maðurinn hinum megin við
samningaborðið. Haft er eftir
honum, að nýi SALT-
samningurinn verði i grund-
vallaratriðum að vera sam-
hljóða þeim gamla, sem Leonid
Brezhnev og Gerald Ford
þáverandi forseti Banda-
ríkjanna náðu í Vladivostok
árið 1974.
I næstu viku hittast síðan í
Genf þeir Andrei Gromyko og
Cyrus Vance utanríkisráð-
herrar. Viðræður þeirra eru til
þess ætlaðar að hvetja
samninganefndirnar frekar til
dáða.
Evrópuheimsókn
Carters lauk í
gærkvöld
Carter Bandaríkjaforseti kom
heim í gærkvöld að lokinni fimm
daga strangri ferð um Evrópu, —
fyrstu ferðinni, sem hann fer'
eftir að hann tók við stjórnar-
taumum. A móti honum tóku
kona hans og Cyrus Vance utan-
ríkisráðherra.
Carter sagði við brottförina frá
London að tiltrú hans á lýðræðis-
stefnu Vesturlanda hefði eflzt í
heimsókninni. Hann kvaðst álíta
að svo hefði verið einnig um leið-
toga hinna landanna sex, sem
þinguðu þar um síðustu helgi.
Trudeau er smeykur
vegna frelsishreyf-
ingar Quebecbúa
—Heimsækir Frakkland í dag til að heyra
hljóðið íráðamönnum þar
Pierre Elliot Trudeau for-
sætisráðherra Kanada kemur í
dag í opinbera heimsókn til
Frakklands. Þar hittir hann að
máli þá Giscard d’Estaing for-
seta og forsætisráðherra hans,
Raymond Barre. Talið er að
viðræður þeirra muni snúast
mjög um aðskilnaðarkröfur
Quebecfylkis frá Kanada
sjálfu.
Trudeau forsætisráðherra
hefur lýst því yfir — meðal
annars hér á Islandi — að
hann sé skilyrðislaust andvigur
aðskilnaði Quebec og Kanada.
Hann mun reyna að kanna
hljóðið í frönskum ráða-
mönnum og tryggja að ekkert
hneyksli eigi eftir að verða í
líkingu við það, er de Gaulle
kom í heimsókn árið 1967 og
lýsti stuðningi sínum við
Quebecbúa.
Heimsókn Trudeaus kemur í
kjölfar ferðar eins af ráðherr-
um Quebecois, — flokksins,
sem nú heldur um stjórnvölinn
í þessu frönskumælandi fylki.
Ferð þess ráðherra — Claudes
Morin — var farin til að undir-
búa jarðveginn fyrir frekari
kröfur um sjálfstæði. Hún fór
mjög í taugar Trudeaus.
m ->
„LENGl LIFI FRJÁLS
QUEBEC,“ hrópaði de Gaulle
Frakklandsforseti á sínum tima
og varð að hætta við heimsókn
sina til Kanada af þeim sökum.
Valdamenn i Frakklandi segjast
ekki hafa í hyggju að endurtaka
þetta hróp. — Trudeau vill þó
vera viss.
Sólarorka verður samkeppnis-
fær viðolíu innan þriggja ára
- er niðurstaða bandarískra rannsókna
Innan þriggja ára kann
upphitun með sólarorku að
vera orðin samkeppnisfær við
upphitun með olíu. Þetta er
niðurstaða könnunar, sem
unnið hefur verið að í Chicago í
Bandaríkjunum og var birt í
gær.
Nú er unnið að slíkum rann-
sóknum í þrettán bórgum í
Bandaríkjunum. Sólarorkan er
þegar orðin samkeppnisfær í
tólf þeirra og kostnaður við
gerð sólarorkuvera fer
lækkandi.
Dr. Bakus prófessor við
Arizonaháskóla kveður dýrasta
hlutann í sólarorkuverum vera
þaklagaða „geislasafnara“ sem
drekka í sig orku sólarinnar.
Hvert ferfet þessa safnara
kostar nú um 20 dollara en ætti
að hafa lækkað um helming
árið 1980. — Safnarar þessir
eru risastórir.
Stjórnin I Washington veitti
nýlega 12,5 milljónum dollara
til að koma fyrir sólarhita-
kerfum I áttatíu byggingum,
þar sem fólk býr ekki. Þar á
meðal eru slökkvistöðvar.
veitingahús og verzlanir.
Fyrsta fjárveiting í þessum
tilgangi var veitt árið 1975.
Ævar Kvaran í forsíðuviðtali
Yoga æfingar
Bersögul íslenzk ástarsaga
Ný hrollvekjandi framhaldssaga
Barbara Walters hefur200milljóna árstekjur
Frásögn og fjöldi litmynda af Demis Roussos