Dagblaðið - 11.05.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 11.05.1977, Blaðsíða 8
8 DACJBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAl 1977. Innflytjandi: Daninörk V erðút r eikningur: yjlr egg 1 tonn Sundurliðun Erlend mynt Innkaup . .. Í*í: Erlendur kostnadur Flutningsgjald ... Vátrygging Gf verð 6.900,- 221.669*oc 19.982.oc 3.625.oc 245.276.oc Tollur Uppskipun Akstur Vðrugjald Leyfisgjald Bankakostnadur Geymsla 1.667.oc 1.667.0c 445.OC 4.433.0C 822.oc 254.310.OC Vextir 3.81 í.oc 1 1* /o Kostnaðarverð .. . Alagning 8,8% Álagning 25s.125.oc 22.715.QC Sðluskattur 20%.. Heildarupphœð .. 280.840.oc Heildsöluverð ísl kr 281,- Smásöluverð Isl kr 337«- 20 % álagning í smásölu „Mest gaman að fá að dansa í Bolshoi” — Auður og Ásdís leggja upp til Rússlands í keppni ,,Þaó ei- alltaf leiðinlegt and- rúmsloft i svona keppni en það er gantan að fá að dansa á sviðinu í Bolshoi," sagði Ásdts Magnús- dðttir ballettdansari í samtali við DB. Hún leggur brátt upp í ferð til Rússlands ásarnt Auði Bjarna- dóttur. Þær taka þátt i alþjóðlegri ballettkeppni sem verður haldin i Moskvu dagana 12. til 24. júní. Þetta er i þriðja sinn sent slík keppni er haldin en Helgi Tómas- Ásdís og Auður: IVlest gaman að fá að dansa á svona fra-gu sviði. DB-m\nd Sveiun Þorm. son vann silfurverðlaunin í þess- ari keppni þegar hún var haldin i fyrsta skipti. Auður- sagði að í keppninni fyrir þrem árunt hefði Nadejda Pavlova unnið keppnina en nú er hún skærasta stjarna Bolshoi- baliettsins. Til þessarar keppni mæta færustu dansarar frá alls þrjátíu þjóðum. Alls munu mæta um eitt hundrað þátttakendur til keppninnar. ,,Við lærum ntjög ntikiö á þvi að horfa á keppnina því varla gerum við okkur vonir um að vera lengi með," sagði Auður. Keppninni er skipti i þrjár umferðir og i þeirri fyrstu verða dansaðir tveir sóló- dansar, að sögn Auðar. ,,Ætli ég falli ekki út eftir fyrstu umferð." Þær stöllur voru sammála um það aö ferðalag þeirra til Moskvu væri ágaút, að minnsta kosti að þvi leyti að það minnti hina þátt- takendurna á að til væri land sem héti ísland og þar væri einnig dansaður ballett. Auður Bjarnadóttir er 18jira og hóf ballettnám kornung hjá Eddu Scheving. Haustið 1967 b.vrjaði hún nám i Listdansskóla Þjóðleik- hússins og starfar nú með islenzka dansflokknum. Auður hefur vakið mikla athygli fyrir meðferð sína á mörgum vanda- sömum hlutverkum^ t.d. Coppe- líu. en þá dansaði hún á móti Helga Tómassyni. Asdís Magnúsdóttir er 22 ára. Hún hefur starfað með Íslenzka dansflokknum frá 1973. Hún hefur stundað nám i Harkness ballettskólanum í New York. Asdís hefur getið sér gott orð fyrir túlkun sina á hlutverkum í Þvrnirósu, Svanavatninu o.t'l. -KP Netin að koma úr sjó og svo sem ekkert i þeim að vanda. I)B-mynd lleiðar Marteinsson. Þunnur þrettándi vert íðarsjómanna: Lokadagurinn í dag er vægast sagt þunnur þrettándi hjá báta- sjómönnum um nær allt land enda er nú að ljúka einhverri verstu vetrarvertíð til þessa og þeirri langverstu. sé mið tekið af sóknarþunganum í vetur vegna gæfta. I Eyjum var útkoman hroðaleg og sem dæmi var heildaraflinn i síðasta mánuði rösklega 3500 tonnum minni en Lsama rnánuði i fyrra. Svipaða sögu er að segja af Suðurnesjum og Þorlákshöfn. A Vestfjörðum var vertíðin lak- ari en í fyrra en ekki tiltakanlega. á Norður- og Austurlandi er ekki vetrarvertíð í sama skilningi og á Suður- og Vesturlandi og hafa veiðar fárra smábáta þaðan gengið svipað og í fvrra. þrauka aðeins lengur í von um hrotuna. Afkoma flestra vertíðarsjó- .mannanna nú er frernur rýr og sama má segja urn afkomu útgerð- anna. Sem dæmi um minnkandi hámarksafla á vertíðinni var hæsti báturinn í Eyjum, Þórunn Sveinsdóttir, komin með 388 tonn um síðustu mánaðamót en ekki eru nema nokkur ár siðan helm- ingi til þrefalt hærri aflatölur heyrðu ekki til undantekninga. -G.S. Lokadagurinn nú er aðallega miðaður við vertíðarlok netabáta sent sumir eru þegar hættir, aðrir hætta í dag og enn aðrir ætla að A Hornafirði hefur hins vegar borizt meiri afli á land á vertíð- inni nú en í fyrra, eða rösklega 600 tonnum meira. Lokadagurinn nú er ekki eins afgerandi og hann var áður þegar menn fóru í ver á tilteknum tíma og komu til baka á tilteknum tíma. LOKADAGURINN K0MINN EN FISKIRÍIÐ EKKIBYRJAÐ Ef flutt væri inn f rá Danmörku JAFNVEL EGGJ AKIL0IÐ HUNDRAÐ KRÓNUM ÓDÝRARA Kílóið af eggjum gæti orðið hundrað krónum ódýrara, eða því sem næst, ef það væri flutt inn frá Danmörku. Þetta sýna útreikn- ingar sent gerðir liafa verið á vegunt Dagblaðsins og þetta er niðurstaðan þrátt fyrir þá miklu samkeppni sem hér er í sölu eggja. Vandlega gerður reikningur um hvað eggjakílóið mundi kosta hér. ef það væri innflutt, leiðir í ljós að unnt yrði að fá það fyrir urn 281 krónu í heildsölu, miðað við 8,8 prósent heildsöluálagn- ingu. Jafnvel þótt reiknað sé með tuttugu prósenta smásöluálagn- ingu í slíkri eggjasölu yrði verðið ekki nenta um 337 krónur út úr búð. En verðið á eggjunt í búðum og annarri sölu er eitthvað um 430 til yfir 500 krónur. Tafla sem fylgir hér með sýnir hvernig þetta er reiknað. í innkaupi yrði tonnið af eggj- um 6900 danskar eða 221.669 ís- lenzkar. Við bætist flutningsgjald sem yrði 19.982 krónur, eftir því sem næst verður komizt miðað við taxta Eimskips. Vátrygging yrði 3.625 krónur. Eftir það fæst svokallað ,,cif“- verð sem yrði þá 245.276 krónur. Reiknað er með 1667 krónum í uppskipun og sama í akstur. Vörugjald yrði 445 krónur. Bankakostnaður yrði 4433 krónur, að ætla mætti, og þá sízt vanreiknaður.Geymslukostnaður yrði 822 krónur. Sé reiknað með 1,5 prósent vöxtum, 3815 krónum, kemur út kostnaðarverðið 258.125 krónur eða 258,12 krónur á kilóið. Síðan er reiknað með 8,8 prósenta álagningu í heildsölu. Heildarupphæðin yrði þá 280.840 krónur sem gera 280,84 krónur á kílóið. -HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.