Dagblaðið - 11.05.1977, Side 23

Dagblaðið - 11.05.1977, Side 23
23 ÐAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MAl 1977. Utvarp Sjónvarp t) Sjónvarp íkvöld kl. 21.00: Tálmynd fyrir tíeyring Júlía missir völdin á heimilinu —er ástfangin af unnusta frænkunnar Fjórði og síðasti þátturinn í brezka framhaldsmynda- flokknum Tálmynd fyrir tíeyr- ing er ádagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 21.00. Myndin er gerð eftir sögu F. Tennyson Jesse, byggð á sannsögulegum at- burðum frá 1920. Þýðandi er Dóra Hafsteinsdóttir. Myndin er send út í lit. 1 síðasta þætti sagði frá því að eiginmaður Júlíu, sem er gamall fjölskylduvinur for- eldra hennar og mörgum árum eldri en hún sjálf, kemur heim úr stríðinu. Julia heldur áfram að vinna í hattaverzluninni og fer það I taugarnar á eigin- manninum. Enda samrýmist það illa skoðunum millistéttar- innar í Englandi á þeim tíma að eiginkonur stundi vinnu utan heimilisins. Julia kynnist kærasta frænku sinnar, Leonard, og kemur á daginn að þau voru saman f skóla í æsku. Það var einmitt Leonard sem átti kassann með myndinni sem Julia skoðaði í fýrsta þættinum. Þau fella hugi saman og vekur það hina mestu hneykslan, eins og nærri má geta. Mágkona Juliu, uppþorn- uð piparjunka, sezt að á heimili Juliu og bróður síns og hyggst taka við stjórn heimilisins. Leikarinn sem fer með hlut- verk eiginmannsins, Bernard Hupton, fer með hlutverk yfir- manns fangelsisins I mynda- flokknum Colditz sem sýndur er á þriðjudagskvöldum.Það er dálítið athyglisvert að'fylgjast með honum í svona gjörólíku hlutverki. Með hlutverk Juliu fer Francesca Annis. A.Bj. Sjónvarp í kvöld kl. 20.30: Nýjasta tækni og vísindi Ef ein /ífvera hverfur raskast heilar lífskeðjur Um vísindalegar náttúrurannsóknir I þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem er á dagskrá sjón- varpsins í kvöld kl. 20.30, eru tvær bandarískar myndir um vís- indalegar náttúrurannsóknir. Umsjónarmaður þáttarins er Örnólfur Thorlacius og sagði hann okkur í stuttu máli frá efni myndanna. Fyrri myndin sýnir rannsóknir á villtum dýrum úti í náttúrunni og þá áherzlu sem lögð er á mikil- vægi þess að viðhalda jafnvæginu í náttúrunni eins og hægt er. Fjöldi dýra er í hættu að deyja út vegna ágengni mannsins. Það er ekki eingöngu af viðkvæmnis- ást, heldur hefur það einnig hag- nýta þýðingu að breyta ekki um- hverfinu. Ef einhver ein lífvera hverfur af sjónarsviðinu geta heilar lífskeðjur raskazt. Vmsum ráðum er beitt til þess að reyna að auka og bæta við stofn villtra dýra. M.a. hefur eggj- um villtra fugla verið ungað út i útungunarvél. Kálfar hjartarins og antilópunnar hafa verið „teknir í fóstur“. Þessi dýr eignast vanalega tvo kálfa en koma að jafnaði ekki nema öðrum upp. Hægt er að gera ýmsar rann- sóknir á kálfunum og þeim er síðan sleppt út i náttúruna aftur. Síðari myndin í þættinum er öll tekin í dýragarði. Hún sýnir hvaða þátt dýragarðarnir eiga í þessum vísindalegu rannsóknum. í dýragörðunum er yfirleitt reynt að veita villtum dýrum eins náttúruleg skilyrði og mögulegt er. Þar er hægt að rannsaka lifnaðarhætti dýranna. Þá hefur það gerzt að villt dýr hafa orðið aldauða í náttúrunni og einungis til í dýragörðum. Sumar sjald- gæfar dýrategundir væru alls ekki til ef ekki kæmu til ráðstaf- anir dýragarðanna sem sleppa dýrum aftur út í náttúruna. -A.Bj. I Sjónvarp s> Miðvikudagur 11. maí 18.00 Bangsinn Paddington. Breskur myndaflokkur. Þýðandi Stefán Jökulsson. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 18.10 Merkar uppfinningar. Sænskur fræðslumyndaflokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi og þulur Gylfi Páls- son. 18.35 Rokkvaita ríkisins. Hljómsveitin Cobra. Stjórn upptöku Egill Eðvarðs- son. Hlé. 20.00 Fráttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Nýjasta tsakni og vísindi. Tvær myndir um vfsindalega náttúruvernd. Umsjónarmaður Örnólfur Thorlacius. 21.00 Tálmynd fyrir tíeyring (L). Breskdr framhaldsmyndaflokkur, 3. þáttur. 1 síðasta þætti var eiginmaður Júlíu kvaddur í herinn og Júlía kynntist unnusta frænku sinnar Leonard Carr. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 21.50 Stjómmálin frá stríAslokum. Franskur frétta- og fræðslumynda- flokkur. 8. þáttur. Umbrot í Afríku. Nýlendur f Afrfku öðlast sjálfstæði hver af annarri. Fjallað er um borgarastrfðið í Biafra 1967-1970. Einnig er greint frá langvinnum átökum f Angola. Þýðandi og þulur Sigurður Pálsson. 22.50 Dagskrárfok. Útstillingarmaður Óskum eftir að komast í samband við vanan útstillingarmann sem fyrst. Uppl. í síma 10330 á verzlunartíma. jry * ' q | m Wz:. imiM Wt': ■’. ■ ' * 1 myndunum tveimur sem sýndar verða f þættinum Nýjasta tækni og vísindi í kvöld er fjallað um visindalegar náttúrurannsóknir á dýrum, bæði villtum dýrum sem eru frjáls í náttúrunni og einnig dýrum sem eru í dýragörðum. Þessi skemmtilega mynd er af apanum Charlie sem er að gæta lamadýrsins Lenny i Jungle Safari Park í Florida. ^ Útvarp Miðvikudagur 11. maí 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 MiAdsgissagan: ,,Nona” eftir Emil Zola. Karl Isfeld þýddi. Kristin Magnús Guðbjartsdóttir les (3). 15.00 MiAdegistónleikar. Giinter Kehr, Wolfgang Bartels, Erich Sichermann. Volker Kirchner og Bernard Braun- holz leika Strengjakvintett i a-moll op. 47 nr. 1 eftir Luigi Cherubini. Hljóð- færaleikarar í Vín leika Nónett i F- dúr op. 31 eftir Louis Spohr. Janos Sebestyen og Ungverska kammer- sveitin leika Pastorale f G-dúr fyrir sembal og strengjasveit eftir Gregor Joseph Werner; Vilmos Tatrai stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphom. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.10 Litli bamatiminn. Finnborg Scheving stjórnar. 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fráttir. Fráttaauki. Tilkynningar. 19.35 Nýting raforku til flutninga. Gfsli Jónsson prófessor flytur fjórtánda og sfðasta erindið í flokki um rannsóknir í verkfræði- og raunvfsindadeild háskólans. 20.00 Kvöldvaka. a. Einsöngur: Jóhann KonráAsson syngur íslenzk lög Guðrún Kristinsdóttir leikur undir á pfanó. b. FerAast i vesturveg. Þórður Tómasson safnvörður í Skógum segir frá ferð sinni til Bandarfkjanna í fyrra; — fyrsti hluti. C. „Hafur liAugt tungutak'* Nokkrar kersknivfsur með fríhendis ivafi f samantekt Játvarðar Jökuls Júlíussonar. Agúst Vigfússon les. d. Bjami frá Vogi og grískan Séra Jón Skagan flytur frásöguþátt. e. Um íslenzka þjóAhntti. Arni Björnsson cand. mag. talar. f. „Formannsvísur'* Oftir SigurA ÞórAarson við Ijóð eftir ' Jónas Hallgrlmsson. Karlakór Reykja- vfkur syngur undir stjórn tónskálds- ins. Einsöngvarar: Sigurveig Hjalte- sted, (iuðmundur Guðjónsson og (iuðmundur Jónsson. 21.30 Útvarpssagan: „Jómfrú Þórdís'* eftir Jón Bjömsson. Herdfs Þorvaldsdóttir leikkonales (17). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Vor i verum'* aftir Jón Rafnsson. Stefán ögmundsson les (7). 22.40 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörns- son kynnir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 12. maí 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunlaikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbnn kl. 7.50 Morgunstund bam- anna kl. 8.00 Sigurður Gunnarsson heldur áfram að íesa söguna „Sumar á fjöllum'* eftir Knut Haugc (16). útvarp á vegum prófanefndar kl. 9.10 Unglingapróf í ensku (b-gerð). Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. ViA sjóinn kl. 10.25 Ingólfur Stefánsson ræðir við Guðmund Kjærnested skipherra; — síðari þáttur. Tónleikar kl. 10.40. Morgun- tónleikar kl. 11.00 ; Afgreiðslumaður Sportvöruverzlun óskar eftir að ráða reglusaman afgreiðslumann sem fyrst. Nöfn ásamt uppl. leggist inn á afgreiðslu DB Þverholti 11 fyrir 16. maí nk. merkt „Afgreiðslumaður“. Hef opnað nýja rakarastof u Hárbær að Laugavegi 168, næg bflastæði, sfminn er 21466. Sveinn Ámason hárskeri, áður Hverfisgötu 42. Blaðburðarböm óskaststrax: Suðurlandsbraut Njörvasund Uppl.ísíma 22078 MMBIABIÐ

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.