Dagblaðið - 24.05.1977, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1977.
5
Hressir h jólastrákar
Sex islenzkir strákar verða
meðal þátttakenda á alþjóðlegu
móti i akstri reiðhjóla og vélhjóla
sem hefst í Belgíu á morgun.
Strákarnir sex, sem verða
fulltrúar íslenzkra ungmenna í
Briissel, eru þessir: Ragnar Guð-
mundsson, Kópavogi, Hjörtur
Stefánsson, Reykjavík, Steinar
Valdimarsson, 'Stokkseyri, Sindri
Már Heimisson, Svarfaðardal í
Eyjafirði, Birgir Símonarson,
Reykjavík, og Birgir Örn
Arnarson, Akureyri. Tveir síðast-
töldu keppa í akstri vélhjóla.
Strákarnir hafa æft af kappi að
undanförnu undir leiðsögn þeirra
Guðmundar Þorsteinssonar náms-
stjóra í umferðarfræðslu og Bald-
vins Ottóssonar lögregluvarð-
stjóra. Báðir verða þeir piltunum
innan handar í keppninni ytra.
Við óskum þeim að sjálfsögðu
góðs gengis.
Laxar til Noregs
Klak- og eldisstöðin Laxa-
mýri hf. gerði nýlega stóran
sölusamning á laxaseiðum við
norskan aðila, Erling J. Peter-
sen í Þrándheimi. Voru send út
25 þúsund laxaseiði sl. sunnu-
dag, 21 þúsund eins árs seiði og
4 þúsund tveggja ára, stór
sjógönguseiði, alin með tilliti til
sjóeldis. Flugvél frá Iseargo
flutti seiðin beint frá Aðaldals-
flugvelli til Þrándheims.
Kristján Oskarsson hjá Laxa-
Mjólkurdreifingin
enn f ólagi í gær
mýri kvaðst vonast til að fram-
hald yrði á viðskiptum þessum
við Norðmennina á næsta ári,
svo ánægðir með viðskiptin
voru þeir er tekið var á móti
seiðunum í flugvélinni.
Klak- og eldisstöðin gat í
fyrra ekki selt alla framleiðslu
sína innanlands svo það varð
upphafið á hinum stórfelldu
viðskiptum við Noreg.
-BH.
—mjólkursamsalan hef ur enga
útkeyrsluáætlun íneyðartilfellum
Mjólkurdreifingarkerfið í
Reykjavík var enn ekki komið í
samt lag um hádegisbilið í gær.
Nokkurra tíma stöðvun útkeyrslu
mjólkur á föstudagsmorguninn
hafði þessi víðtæku áhrif.
Ymsir mjólkursöluaðilar voru
Mjólkursamsölunni gramir bæði á
föstudaginn og í gær vegna þeirr-
ar handvammar sem á
dreifingunni var.
Bilar samsölunnar áka
mjólkinni út eftir ákveðinni
áætlun. Þegar stöðvun varð í út-
keyrslunni á föstudagsmorguninn
var þeirri áætlun í engu breytt en
útkeyrsla hafin um klukkan eitt
eftir sömu áætlun bílanna og þeir
aka eftir þá er þeir hefja
aksturinn um eða fyrir sólar-
upprás.
Þetta þýddi að bílarnir hófu
akstur allt til Suðurnesja áður en
mjólk var ekið í búðir í Reykja-
vík. Kom ekki mjólk í ýmsar
stórverzlanir í Reykjavík fyrr en
undir lokun á föstudag og sumir
mjólkursöluaðilar fengu enga
mjólk á föstudaginn. Þeir sem svo
grátt voru leiknir fengu því ekki
mjólk til sölu allt frá miðvikudegi
þar til rétt fyrir hádegi í gær.
Heyrðust margar óánægjuraddir
úr þeirra hópi og töldu þeir for-
kastanlegt að ekki skyldi vera til
einhver útkeyrsluáætlun í
neyðartilfellum eins og upp kom
á föstudaginn.
-ASt.
Á fjórða hundrað
smáauglýsingar
— enn eitt smáauglýsingamet DB
nokkrar auglýsinganna með
mismunandi órðalagi hvað eftir
annað undir mismunandi
hausum en símanúmerin voru
þau sömu. Þannig birtist ein
t.d. fjórum sinnum.
Síðasta met DB í birtingu
smáauglýsinga var fyrr í þess-
um mánuði þegar birtar voru
297 slíkar, þar af 189 nýjar.
-G.S.
Fjöldi smáauglýsinga í Dag-
blaðinu í gær fór fram úr öllum
fyrri metum og birtust þá 303
auglýsingar. Þar af voru 205
nýjar, en talsvert er um að
auglýsendur láti auglýsingar
sínar standa fleiri en einn dag.
Sama dag birti keppi-
nauturinn 128 smáauglýsingar
alls. Auk þess birti hann all-
20-30 Hafnfirðingar
kvaddir til yf irheyrslu
Læknir í Reykjavík hefur
verið kærður fyrir að inn-
heimta greiðslur hjá sjúkra-
samlagi fyrir aðgerðir sem
aldrei munu hafa verið fram-
kvæmdar. Það var Sakadómur
Reykjavíkur sem fékk kæruna.
til meðferðar þar sem
læknirinn, sem í hlut á, er
búfastur í Reykjavík. Hins veg-
ar var það Sjúkrasamlag Hafn-
arfjarðar sem komst að raun
um meintar falsanir í inn-
heimtu fyrir læknisaðgerðir og
kærði málið.
Af þessum sökum var málið
sent til lögregluyfirvalda í
Hafnarfirði og er unnið að
undirbúningi að rannsókn
málsins, þar með yfirheyrslum
yfir þeim sem læknirinn krefst
greiðslna fyrir úr hendi Sjúkra-
samlagsins. Gæti svo farið að
yfirheyra þyrfti 20-30 manns
vegna þessa máls en þó lá það
ekki ljóst fyrir er DB leitaði
upplýsinga um málið í gær.
Dagblaðið hefur það einnig
eftir heimildum, sem það telur
ekki ástæðu til að rengja, að
mál þetta hafi einnig komið til
kasta Læknaráðs.
-ASt.
„Lofið þreyttum að sofa”
söng sýsluskrifari á Eskif irði við mikinn fögnuð
„Georg Halldórsson var
annar einsöngvara á tónleikum
Eskjukórsins nú á uppstigning-
ardag og hlaut hann mikið lof
fyrir flutning slnn á laginu
Lofið þreyttum að sofa eftir
Sigvalda Kaldalóns við ljóð
Davíðs Stefánssonar" sagði
Regina Th. i viðtali við DB í
gær. Annar einsöngvari á
hljómleikunum var skip-
stjórinn Aðalsteinn Valdimars-
son sem söng Bergljót við
mikinn fögnuð.
Annars. urðu hljóm-
leikarnir mun lengri en til
stóð þar sem fjöldi aukalaga
var klappaður fram. Kórnum
stjórnaði Violetta Smidová við
undirleik manns síns, Pavels
Smiths.
Hann lék einnig einleik á
flygil og hafði Regína eftirfar-
andi um það að segja:
„Maðurinn minn er járnsmiður
og mér fannst engu líkara en
Smijth væri að hamra járn, og
það of kalt svo fastara varð að;
hamra. Svo var mér nú sagt að
eitthvað væri að hljóð-
færinu og ein eða tvær nótur
bilaðar. Þegar ég hafði orð á
þessu var mér sagt að ég hefði
ekkert vit á þessu, og það er
rétt, og fólkið hafði ósköp'
gaman af.“ Regína/G.S.!
BARNASK0R
Teg. 319 Litur: Natur leður. Stærðir: y Nr. 27—35 kr. 2.595,- Teg. 78 Litur: Brúnt, rauðbrúnt leður. Stærðir: Nr. 23—28 kr. 1.685.- j4^9fiÉgj|Éflln
Teg. 328 Litnr:
Teg. 1001 ,BrAúnt 'fur eðu 9 blátt leður eða rautt leður. L Nr- 24—30 kr. 2.035.- Nr. 31—35 kr. 2.100,- Teg 553 Litur: Rautt/Hvítt/Blátt 1 . ^ ^
Teg. 1002 Litur: Brúnt leður ,—. Stærðir: '' - Nr. 24—30 kr. 2.090.- ' Jm. Nr. 31—35 kr. 2.155.- Teg. 653 Lltur:
Teg. 633
Litur: Hvitt/Blátt.
Stærðir:
Nr. 27—35 kr. 2.175.
Póstsendum
Skóverzlun
ÞórðarPéturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll - Sími 1418t