Dagblaðið - 09.06.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. JÚNt 1977.
1
Útsýn úr Kópavogi yfir „þrætuepli" nágrannabæjanna, Reykjavíkur
og Kópavogs, Fossvogsdalinn. Á hann að leggjast undir einkabílism-
ann eða verða fallegur úlivislarstaður? — I)B-mynd Sv.Þormóðsson.
Nágrannabæir komnir íhár saman:
Afskipti af
skipulagi —
eða brot á
samkomulagi?
I aðalskipulagi Reykjavíkur frá
1962 er svo sem flestum mun
kunnugt gert ráð fyrir hraðbraut-
um víða um borgarlandið og
næsta nágrenni þess. Eru hrað-
brautir þessár svo sem vænta má
hugsaðar til að auðvelda umferð
milli hinna ýmsu borgarhverfa,
iðnaðar- og íbúðahverfa, svo og
til að auðvelda leiðir út úr borg-
inni.
Ein þessara hraðbrauta er svo-
nefnd Fossvogsbraut. Er sam-
kvæmt aðalskipulaginu gert ráð
fyrir að hún liggi eftir Fossvogs-
dal endilöngum, að mestu á land-
svæði Kópavogs, þar eð Fossvogs-
hverfið í Reykjavfk nær svo langt
niður í dalinn.
Sumarið 1973 var farið að huga
að framkvæmdum við fyrirhug-
aða hraðbraut en þá kváðu við
mótmæli úr ýmsýtm áttum gegn
hraðbrautinni og var álitið að hún
mundi spiila náttúrufegurð og líf-
ríki Fossvogsdalsins. Einnig var
því borið við að ekki væri sýnt
fram á nauðsyn hraðbrautarinnar
og bæri því að endurmeta hvort
þörfin fyrir hraðbraut í Fossvogs-
dal, sem gert er ráð fyrir í aðal-
skipulaginu, væri enn fyrir hendi.
Samkomulagið frá 1973
Var því í október 1973 gert sam-
komuiag milli Kópavogskaup-
staðar og Reykjavíkurborgar þar
sem afráðið var að endurskoða
allt umferðarkerfi höfuðborgar-
svæðisins með sérstöku tilliti til
nauðsynjar á lagningu Fossvogs-
brautar. Þá gengu forráðamenn
Kópavogs út frá því sem vísu að
haldið yrði áfram að skipuleggja
Reykjavík samkvæmt aðalskipu-
laginu, þ.e. aðgreiningu íbúðar-
og atvinnuhúsnæðis. Samkvæmt
skipulaginu myndi umferðar-
þunginn um Reykjavík aukast í
austurátt en ekki í vestur, eins og
Kópvægingar óttast nú með til-
komu þéttara ibúða- og atvinnu-
húsnæðisskipulagi í vesturbæ
Reykjavíkur. Álíta þeir að þar
með aukist til muna þörfin fyrir
hraðbrautina um Fossvogsdal, en
æskilegast væri að losna alvég við
lagningu hennar.
„Ég er þeirrar skoðunar að ekki
sé grundvöllur til að rifta sam-
komulaginu frá 1973, þó svo að
yfirlýsing þeirra beri það með
sér,“ sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarstjóri urn sam-
þykkt bæjarstjórnar Kópavogs.
Ejnnig taldi borgarstjóri ýmsar
framkvæmdir Kópavogskaup-
staðar á síðustu árum allt eins
geta brotið í bága við samkomu-
lagið eins og hið samþykkta
skipulag borgarstjórnar Reykja-
víkur á aukningu atvinnu-
húsnæðis vestan Kringlumýrar-
brautar. Ekki vildi borgarstjóri
tjá sig um hvaða áhrif þetta gæti
haft á lagningu Fossvogsbrautar-
innar, mörkin milli Reykjavíkur
og Kópavogs liggja þar i bugðum
og voru fyrirhuguð makaskipti á
lóðum þar til að fá rými undir
hraðbrautina. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvaða framhald
verður á deilumáli þessu, þó má
frekar búast við að aðilar komi
saman fyrr en seinna og ræði
þessi mál nánar. BH
Lúðrasveitin með konsert á mánudagskvöld:
Vestur-íslenzkur stjórnandi
Jón Ásgeirsson nefnist Banda-
ríkjamaður sem dvelur hér á
landi þessa dagana og stjórnar
æfingum Lúðrasveitar Reykja-
víkur. „Nafnið, það er það eina af
mér sem er íslenzkt," segir Jón,
en auk þess að vera þekktur
lúðrasveitarmaður er hann vel
metinn lögfræðingur í heimabæ
sínum, Boston. „Við erum ekki að
skemmta okkur heldur fólkinu,"
segir hann þegar meðlimir Lúðra-
sveitarinnar eru hvattir áfram.
Enda leggja Lúðrasveitarmenn
hart að sér og hafa ekki komizt í
hann krappari í langan tíma.
Hljómsveitarstjórinn banda-
ríski sendi nóturnar til íslands
fyrir um tveim mánuðum og
ákvað þá prógramm konsertsins
sem halda á í Þjóðleikhúsinu á
mánudagskvöld. Æfingar hjá
Lúðrasveit Reykjavíkur hafa
síðan staðið yfir látlaust frá því
Jón kom til landsins í fyrri viku.
Æfa þeir sig í Melaskólanum á
meðan viðgerð fer fram á Hljóm-
skálanum.
Aðgöngumiðar að hljómleikun-
um eru til sölu í miðasölu Þjóð-
leikhússins.
BH.
Jón Ásgeirsson lúórasveitarstjórnandi og lögfræóingur sést þarna
ásaml konu og börnum, Karin, lengst til vinstri, leikur á Irompet og
Kristján, yzl (il ha'gri, leikur á víhrafón og trommur.
Happdrættisskuldabréf
íJflokki
eru nær uppseld.
Dregid veröur 15.júní.
Tryggið ykkur bréf.
(Égj SEÐLABANKI ÍSLANDS