Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JUNÍ 1977.
1
Réttindaskerðing öryrkja
K. Þórðarson skrifar:
í grein í DB frá 7/8 um hús-
næði öryrkjanna að Hátúni
10—12 segir frá hárri leigu á
íbúðunum. Eitt mætti þó telja
nokkurn kost við íbúðir þessar
sem er sá að húsnæðinu er ekki
sagt upp og fólk borið út eins og
alltaf getur gerzt þegar um
venjulegt leiguhúsnæði er að
ræða. Fólk gerir sér e.t.v. þó
ekki fulla grein fyrir því hvað í
því getur falizt að neyðast til
þess að láta meta sig til örorku
vegna heilsubrests og tekju-
missis af þeim sökum — þ.e.
vegna starfs. T.d. má þá alveg
eins búast við því að lífeyris-
sjóðsréttindi öryrkjans verði
strikuð út. Ekki þarf þó að vera
um að ræða örorkudeild (B-
deild) í lífeyrissjóði til slíks
þjófnaðar á réttindum. Nú eru
t.d. réttindi eða starfstími sjóð-
félaga afskrifuð þegar hann
flytur á milli lífeyrissjóða, t.d.
þegar skipt er um starf. Engin
takmörk virðast vera fyrir
þjófnaði á ýmiss konarréttind-
um fólks. „Réttindin" eru
mikið til aðeins „á pappírnum".
Bæði lána- og lífeyrisréttur og
margt fleira. Sjálfsbjargarvið-
leitni er ekki metin hátt lengur.
En kannski gæti maður sagt:
„Það er ekki í tízku lengur!“
Eitt vekur athygli í sambandi
við húsnæði öryrkjanna í
Hátúni — þar eru engin börn.
Hvað veldur? Öryrkjarnir í
þessum húsum virðast sem sagt
ekki hafa nein börn. Gæti þetta
bent á takmörkuð mannréttindi
öryrkja?
M
Vandamál öryrkja eru margvís-
leg og flest öll þjónusta opin-
berra aðila er sniðin fyrir þá
sem heilir eru.
Hættu við
þetta, Svavar
Gissur Pétursson samvinnu-
skólanemi skrifar:
Fyrr má nú rota en dauórota,
segir máltækið og þetta mál-
tæki á svo sannarlega vel við
um athafnir okkar miður góða
útvarpsráðs um þessar mundir.
Þessi stofnun (þ.e. miður góða
útvarpsráðið) hefur nú kórón-
að viðburðaríkan starfsferil
sinn með enn einu asna-
strikinu. Það hefur hafnað til-
boði þeirra Astu Jóhannes-
dóttur og Hjalta Sveinssonar
stjórnenda þáttarins „Ut og
suður“ sem með einstökum
árangri hefur tekizt að gera
þáttinn mjög vinsælan og
skemmtilegan áheyrnar þrátt
fyrir lengd hans og sett í stað-
inn sem stjórnanda afdankaðan
og hrútleiðinlegan útvarps-
mann, hljómplötuútgefanda
(þannig að telja má að hann
eigi örðugt með að láta sinna
hagsmuna ógetið) og „grínista"
Svavar Gests að nafni. Utvarps-
ráði hefur þar með tekizt að
eyðileggja enn einn af örfáum
ánægjulegum þáttum í útvarps-
dagskránni.
A hvað ætli þeir ráðist næst?
Til fróðleiks má geta þess að
Svavar Gests er flokksbundinn
sjálfstæðismaður og Hjalti og
Ásta eitthvað bendluð við
vinstri línuna en það getur
varla verið að það skipti nokkru
máli?
Burtséð frá allri pólitík og þá
séð út frá hreinu fagmennsku-
sjónarmiði þá hljóta þau Hjalti
og Asta að vera þau réttu til aó
taka að sér stjórn þáttarins. Til
Svavar Gests við stjórnvölinn
rökstuðnings því þurfum við
einungis að taka vinsældir
þáttarins, undir þeirra stjórn,
inn í myndina.
Að lokum skora ég á þig hr.
Svavar Gests að draga til baka í
þessu máli. Hættu við þetta,
Svavar.
V
Gott hjá þér, Svavar Gests!
Anna skrifar:
Svavar Gests er aldeilis stór-
fínn í þáttum sínum á laugar-
dagseftirmiðdögum. Það mátti
svo sem búast við því að honum
færist vel úr hendi stjórn slíks
þáttar því þættir þeir, sem
hann hefur stjórnað, hafa alltaf
(eða oftast) verið aldeilis stór-
skemmtilegir. Fundið hefur
verið að því að hann sé með of
Raddir
lesenda
Umsjón:
Jónas Haraldsson
mikið af „fimm-
aura-bröndurum“, en mér
finnst það bara allt í lagi.
Svavar blandar efni þáttar-
ins einkar skemmtilega sainan
og ég get ekki heyrt betur en að
hann leiki lög fyrir fólk á öllum
aldri.
Fyrri stjórnendur þessa
þáttar voru svo alveg ágætir og
engri rýrð á kastað þótt
Svavari sé hælt.
r
Spurnirsg
dágsins
Átt þú von ó barni?
Hildúr Bjarnadóttir húsmóðir:
Hvað sýnist þér? Hvað heldur þú
að þetta sé sem ég er með í
maganum? Ég hlakka auðvitað
mjög til að eignast barnið, þetta
verður þriðja barnið mitt.
Anna Magnúsdóttir nemi, at-
vinnulaus sem stendur: Nei, ég er
alveg viss um það og ég ætla ekki
að eignast barn á næstunni.
Halldóra Ingjaldsdóttir talsíma-
vörður: Nei, það er alveg öruggt,
pottþétt að svo er ekki. Hvurslags
eiginlega spurningar eru þetta?
Sigriður Jónsdóttir húsmóðir:
Nei, ég er nú hrædd um ekki. Ég
hef þó ekki ákveðið hvort einhver
breyting verður á þvi á næstunni.
Einar Guðmundsson atvinnu-
hippi og loftbóla: Já, innan svo
sem 10 ára, um það er ég alveg
viss. Ég hef þegar valið meðaðila
til verknaðarins. Eg er hinn
hreini aríi og kem því til með að
reyna að viðhalda kynstofninum.
Vlgnir Sveinsson lögreglumaður:
Nei, ég á ekki von á barni, eða það
held ég alla vega ekki.