Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JÚNl 1977. Vilji Allah Nú verða dagarnir óðfluga lengri og lengri og myndin á skerminum að sama skapi daufari, nema hjá þeim sem draga dökk tjöld fyrir komandi sumar. En slíkt væri syndsam- legt og því freistast maður æ oftar til þess að horfa á lita- skrúð fjallanna og sleppa grámyglunni ferhyrndu í stofu- horninu. Mörgum væri senni- lega gerður mikill greiði með því að loka sjónvarpinu tvo mánuði á ári. Áhorfendur yrðu þá að skoða landið og sjónvarpið fengi tækifæri tii að gera betri sjónvarpsmyndir. Og hér kem ég að bitbeini síðustu tveggja vikna: „Blóðrauðu sólarlagi“, sem hefur yfirtekið allar Hófhannesarþrætur. Mikið hefur verið spjallað um þá mynd og er það ánægjulegt að almenningur skuli fylgjast svo náið með tilraunum sjónvarpsins í kvikmyndagerð sem sýnir að mikill áhugi á þeirri listgrein er fyrir hendi í landinu. Flestir voru fljótir að minnast á góðu hlið myndar- innar, kvikmyndatökuna og leikinn, en þeir voru einnig glöggir á vankanta hennar, þ.e. að góðu hliðunum var eytt í að gera einfaldan blending af hrollvekju og kúreka,,shoot- out“ í draugabæ. Hrollvekjan var einföld vegna þess að hún spratt ekki upp úr sálarlífi persónanna og viðskiptum þeirra, heldur utan frá, úr fylliríi, brakandi hurð- um og myrkum göngum, og þessi utanaðkomandi hrollur var síðan undirstrikaður í tíma og ótíma af gæsahúðarmúsík. Persónurnar skorti alla vídd og viðmiðun og ekkert fékk mig til að trúa því að minningar Róberts um „aumingjann í kjallaranum“ hefðu við nokkur rök að styðjast innan þess sam- félags sem þeir lifðu eða höfðu lifað í. f>að er e.t.v. ósanngjarnt að bera þessa mynd saman við kvikmynd Ken Loach, „Family Life“, sem sýnd var laugar- daginn 4. júní, en þó er það lærdómsríkt. Loach tekur fyrir tiltölulega einfalt . efni, samskipti innan fjölskyldu i hversdagslegu umhverfi, og leiðir í ljós hvers konar hörm- ungar geta falist innan þess ramma. Utkoman var reglulega raunsönn og áhrifarík hroll- vekja sem ekki þarfnaðist draugabæjar eða hroll- tónlistar. Sjónvarpsmeðvitund mín hófst fyrir alvöru „Sólarlags- kvöldið“, en þá var mynd af „Abba“ á dagskrá. Nafnið sjálft er í stíl við framleiðslu hljóm- sveitarinnar — einfalt og þýðingarlaust eins og barna- hjal. Nema hvað hjal barnsins er saklaust og upprunalegt en tónlist Abba er meðvitaður og útspekúleraður barndómur, sykraður söluvarningur. Rætt var við meðlimi hópsins eins og þeir væru meiriháttar tónskáld, en þeir hnykluðu brýr og reyndu að svara spaklega. Eg var fullfljótur á mér í síðasta pistli er ég ræddi um áfengisþætti þeirra Einars Karls og Arnar Harðarsonar, en þar kvartaði ég yfir því að ekki væri efnið krufið til mergjar. Það var éins og við manninn mælt að þeir félagar klykktu út með grufli og umræðum, við áfengissjúklinga og sér- fræðinga, og var það vel þegið. Meira af svo góðu, takk. Þessi fyrsta vika í júní var þjóðhöfðingjavika — alla vega höfðingjavika ef Grigorenko hershöfðingi er tekinn með. Á þriðjudag náði ég í skottið á Carter forseta og virtist hann vinna mikla yfirvinnu eins og gengur og gerist hér á landi. Samtalið við Gaddafi af Lýbíu á miðvikudag var hins vegar merkilegra efnj. Gaddi karlinn er þekktur fyrir stuðning sinn við alls konar hryðjuverkastarfsemi víða um heim, enda vel í stakk búinn með mikla olíu til umráða. En ekki vildi hann viðurkenna að hann eyddi tómstundum sínum í slíkt. Stuðningur hans varannaðhvort „siðferðislegur", „lygar heims- valdasinna“ eða „vilji Allah“. Ekki bar Allah á móti þessu, þannig að Gaddi virðist óhultur í bili. A undan Gaddafi kom Onedin og það er eins og ég sagði: hann hefur ekki nema tvenns konar svipbrigði til taks. Um leið og ég sé þess merki að tjáningarhæfileikar hans séu að víkka, skal ég láta áhorf- endur vita. f I kringum skjáinn Aðalsteinn Ingölfsson A föstudag var á dagskrá mynd um lásasmið frá Svíþjóð og átti hún að vera gaman- mynd. „Lygar heimsvalda- sinna“ segi ég. Dagskrá síðustu viku var ósköp dauf. Ég veit varla hvers vegna verið er að sýná „Til Heklu", en sú mynd byggist á frásögn svíans Al- berts Engström og er í henni í Verzlun Verzlun Verzlun J ■ m m *C ■ ■ ■ "Ci _ stólana vinsælu frá Stáliðjunni Hagkvæmirog þægilegir jafnt á vinnustödum sem heimilum. 11 mismunandi tegundir. _ 1 árs ábyrgð Krómhúsgögn Smiðjuvegi 5 Kdp. Sími43211 tryggir gæðin Ýmis efni frá Glasurit verk- srrtiöjunum í V-Þýskalandi voru hér á markaöinum fyrir nokkrum árum og áttu þaö flest sameiginlegt aö vera viöurkennd fyrir frábær gæöi. Núna býöur Glasurit nýtt og endingarbetra bilalakk - GLASSODUR 21 sem er t.d. notaö á V.W., AUDI. B.M.W. o.fl: bifreiöar. Viö getum blandaö flesta liti á nánast allar tegundir bifreiöa. Remaco hf. Skeljabrekku 4. Kópavogi, sími 44200. STJÖRNUGRÖF 18 SÍMI 84550 Nueralltí blómahjáokkur Tré og runnar í úrvali Skrífstofu SKRIFBORO Vönduð sterk skrifstofu skrif- borð i þrem stæróum. A.GUÐMUNDSSON Húsgagna ver ksmiója. Auóbrekku 57. Kópavogi, Simi 43144 Sumarhús! Félagasamtök og einstaklingar. Einstakttækifæri. Símar: 99-5936 og 99-5851. Geymið auglýsinguna. HVARER BÍLAVAL? HVAÐ ER BÍLAVAL? Bílaval er viö Laugaveg 92 hjá Stjörnubíói og er elzta bílasala landsins. Kappkostum að veitagóöa þjónustu.—Reyniö viöskiptin BÍLAVAL Laugavegi 92 Sími 19092 og 19168. Bílasalan .... . . SPYRNANsimar29330 ogfSStl Barnaafmœlið FYRIR BARNAFMÆLIÐ fallegar pappírsvörur, dúkar, diskar, mál, servíettur, hattar, blöðrur, kerti o.f 1. Mesta úrval bæjarins. BÓKAHÚSIÐ Laugavegi 178. Sími 86780. Allar gerðir rafsuðuvéla frá „HOBART“ í USA og Hollandi. Með „HOBART" hefst að vinna verkin. HAUKUR & ÓLAFUR HF. Armúla 32. Simi 37700. ALTERNATORAR 6/ 12/ 24 VOLT VERÐ FRA KR. 10.800,- Amerísk úrvalsvara, viðgerða- þjðnusta. bÍLaraf hf. BORGARTÚNI 19, SÍMI 24700. Varadekk í hanskahólfi! PUNCTURE PIL0T 77 l'N'DRAKFNH) — sem þcir bil- Æ Æ * FN _ st.jórar nnta. scm viija vera lausir við að skipta um dekk þ«lt springi á bilnum. — Fyrirhafnar- laus skyndiviðgerð. Loftfvlling «g viðgerð i 101111111 hrúsa. íslen/.kur leiðarvisir fáanlegur með hverjum brúsa. l'mhnðsmenn nm alll land ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450 BIABIÐ er smáauglýsingablaðið

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.