Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 28
frjálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 16. JUNÍ 1977. Hættu- legum skotum stolið 1 gærkvöldi varð vart elds 1 Ölduselsskóla í Breiöhoiti. Skóla- húsiö er í byggingu og er nú veriö að vinna við klæðningu og máln- ingu. Var brotizt inn í skólann og eldur kveiktur í timbri á kjallara- gólfi. Varð af mikill reykur og tjón talsvert. Ur verkfæraskáp í skólahúsinu var síðan stolið um 300 nagla- byssuskotum. Skot þessi eru mjög hættuleg og af þeim mikil slysa- hætta. Rannsóknarlögreglan leitar nú þessara skota og heitir á alla er verða varir við eitthvað er gæti verið slík skot að láta sig vita í síma 21100. Skotin eru sem fyrr segir mjög hættuleg í með- ferð ókunnugra. ASt. Dýrt neyðar- blysaspaug á Akranesi í gærkvöldi sá hópur fólks á Akranesi að skotið var á loft neyðarblysi. Var lögreglu og björgunarsveit SVFÍ gert aðvart og gerður út leitarflokkur. Ekki varð hann neins vísari. Skömmu síðar kom piltur á að gizka 18 ára. á lögreglustöðuna og skýrði frá að hann hefði skotið á loft rauðum blysum úr byssu sem hann hafði undir höndum. Stóð hann niðri í fjöru neðst í bænum. Pilturinn tjáði lögreglunni að hann hefði keypt þessa byssu í Þýzkalandi. Er þetta nokkurs konar rásbyssa með ljósmerkjum, sem notuð ' er til að ræsa kappakstursbíla. Þegar lögreglan bað um að fá að sjá skotin sem hann notar í byssuna kvaðst pilturinn ekki eiga fleiri skot. Ef skotin eru litarmerkt er óleyfilegt með öllu að nota þau. Kostnaður við tiltæki sem þetta er um nokkur hundruð þúsund krónur og telst vitavert athæfi, samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Akranesi. Var byssan tekin af piltinum og er mál þetta í rannsókn. -A.Bj. Utanríkisráðherra í sjúkrahiísi Einar Ágústsson utanríkisráð- herra er nú í sjúkrahúsi. Verður hann þar nokkra daga til rann- sóknar. í fjarveru Einars frá embættisstörfum gegnir Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra störfum utanríkisráðherra. Shady Owens bregður á leik á Lækjartorgi i blíðunni þar í gær. A morgun tekur hún þar lagið — eftir langa f jarveru frá tónlistarlífinu á tslandi. DB-mynd: Arni Páli. Þrír Íslendíngar í fangelsi í Frakklandi — teknir með nærri 4 kg af hassi við komuna f rá Marokkó Þrir íslendingar á milli tvítugs og þrítugs, karlmaður og tvær konur, sitja nú í fang- elsi i Montpellier í Frakklandi, grunaðir um fíkniefnamsygl. Voru pau handtekin þar vio komuna frá Marokkó 21. maí sl., þegar nær fjögur kíló af hassi fundust í bílaleigubíl þeirra. Montpellier er um 150 km vestur af hafnarborginni Marseilles. Karlmaðurinn hefur komið við sögu fíkniefna- mála hérlendis áður. Er hann í klefa ásamt tveimur öðrum karlmönnum, skv. frásögn hans sjálfs í bréfi til kunningja hér heima. Lætur hann illa af vist- inni. Af stúlkunum fara ekki frekari sögur. Við yfirheyrslur hjá lögregl- unni í Montpellier hafa Islend- ingarnir skýrt svo frá, að þau hafi tekið pakka fyrir ókunna ferðamenn án þess að vita hvað í honum var. Eigi þau því engan þátt í smyglinú- á fiass- inu. Þeim hefur verið skipaður réttargæzlumaður en ekki hafa þau óskað íítir aðstoð íslenzkra yfirvalda með milligöngu íslenzka sendiráðsins í París. I fyrrgreindu bréfi frá karl- manninum lætur hann iljós von um að losna úr prfsundinni innan fárra vikna en kveðst jafnframt gera sér grein fyrir þeirri hættu, að eiga yfir höfði sér 2-3 ára fangelsisvist ytra. Eins og frá var skýrt í DB fyrir nokkrum dögum var íslenzkur maður nýlega hand- tekinn í Kanada og fangelsaður þar fyrir að hafa í fórum sínum tæplega þrjú kíló af hassi. Bíður hann nú dóms og hefur ekkert frekar frétzt af máli hans. ÖV Shady fékk heimþrá—og syngur á Torginu á morgun Bandarísk-íslenzka söngkonan Shady Owens, sem þar til fyrir fjórum árum söng með Hljómum og Trúbroti við góðan orðstír, er komin til íslands og hyggst vera hér í sumar. Á morgun, 17. júní, syngur Shady á Lækjartorgi með hljóm- sveitinni Poker og annað kvöld syngur hún einnig með hljóm- sveitinni á einhverri úti- skemmtuninni í úthverfi borgar- innar. ,,Mig langaði bara að koma heim,“ sagði Shady i stuttu spjalli við fréttamann DB. „Einskonar heimþrá." Shady hefur dvaldizt í Banda- rikjunum undanfarin ár, aðallega í Seattle í Washingtonríki a' Kyrrahafsströndinni. ,rJú, ég söng um tima með hljómsveit þar, en likaði ekki nægilega vel og hætti, enda var það aðeins í frí- stundum. Þess á milli vann é£ á skrifstofu," sagði Shady. Fyrst eftir að Shady fór héðan sumarið 1973 starfaði hún með íslenzk- bandarísku hljómsveitinni Ice- cross ásamt Axel Einarssyni i Atlanta í Georgíu, en það er önnur saga. Shady og Poker skemmta einnig í veitingahúsinu Klúbbn- um á sunnudagskvöldið. Er ekki að efa að marga fýsir að sjá þessa vinsælu söngkonu aftur á íslenzku sviði. -ÖV. Agætis þjóðhátíðar- veðurí vændum — þó ekki sdl en úrkomulaust „Senmlega verður ágætis þjóðhátíðarveður í höfuðborg- inni, mikið til þurrt og milt,“ sagði Guðmundur Hafsteinsson veðurfræðingur i samtali við DB í morgun. „Eitthvað vafasamt verður samt með norðausturhorn landsins. Þar gæti orðið ein- hver væta. Það verður senni- lega þurrt og gott veður á Suðurlandi. Ekki lofa ég þó sól, það er svo erfitt að henda reiður á hvort hún skín eða ekki,“ sagði Guðniundur. I morgun var fegursta veður á Akureyri. Þar var kominn 15 stiga hiti kl. 6, en þar var skýjað. 1 Reykjavík var 9 stiga hiti kl. 6 og þó nokkur úrkoina. I nótt er gert ráð fyrir að stytti upp á Suður- og Vesturlandi. A.Bj. Níu Eaxar á fyrsta degi í Grímsá Níu vænir laxar voru dregnir úr Grímsá í Borgarfirði þegar veiði hófst þar i gær. Grétar Páls- son, vinningshafi í happdrætti SVFR, fékk fimm laxa á fyrstu tveimur timunum — og þegar DB hafði samband við Sigurð Hail, matsvein í veiðihúsinu við Grímsá í morgun, var enn verið að draga. Grétar Pálsson fékk óvenju- legan happdrættisvinning: sex stangir i einn sólarhring og mat og uppihald fyrir tólf. Þeim sólar- hring lýkur upp úr hádegi i dag. ÖV Veiting prófessorsembættis: LÆKNADEILD MÆUR MEÐ DR. GUNNARI Læknadeild Háskóla Islands greiddi í gær atkvæði um um- sækjendur um prófessorsembætti í taugasjúkdómafræði við Háskóla Islands. Þrír umsækjendur eru um embættið, þeir dr. med. Gunnar Guðmunds- son yfirlæknir, Sverrir Bergmann læknir og dr. med. Ásgeir Ellerts- son. Fékk dr. Gunnar 23 atkvæði, Sverrir 2 atkvæði og dr. Ásgeir 1 atkvæði. Aður hefur verið rakið i Dag- blaðinu aðdragandi veitingu prófessorsembættis við Háskóla Islands og gerð grein fyrir gangi slíkrar veitingar. Það er mennta- málaráðherra sem veitir prófessorsembætti. Þegar umsóknir um embættið höfðu borizt var skipuð dómnefnd, sem skilaði síðan áliti sínu til mennta- málaráðuneytisins. Var niður- staða hennar sú að allir umsækjendur væru hæfir. Álits- gerðina sendi ráðuneytið síðan til læknadeildar Ili til umfjöllunar og afstöðutöku. Var mat deildarinnar í gær jafn afdráttarlaust og að framan hefur verið greint. Læknadeild mun nú senda málið aftur til ráðherra. Samkvæmt fyrri yfiriýsingum hans um stiiðúveitingar ætti ekki að leika vafi á hver fær stöðuna. -BS/ÖV. Hvað er í leyniplagginu sem Gundelach fékk? ÍSLAND 0G EBE ÁKVEÐI HÁMARKSAFLA FYRIR SIG Hvað er í leyniplaggi því, sem Gundelach og aðrir sendi- menn Efnahagsbandalagsins höfðu heim með sér frá Reykja- vík? I brezka blaðinu Financial Times er sagt að þar séu ákveðnar tillögur frá íslenzkum ráðherrum, ekki bara um fisk- vernd heldur um fiskveiðar. I íslenzku tillögunum segir að hvor aðilinn, Island og Efna- hagsbandalagið, skuli setja ákveðin mörk um hámarksafla og leggja mat á hversu mikið heimamenn geti sjálfir veitt. Verði þá eitthvað eftir, megi bjóða hinum aðilanum að veiða þann afla gegn endurgjaldi i Brezka blaðið segir að EBE- menn hafi ekki verið yfir sig ánægðir meó þessar tillögur en þær sýna að fleira bar til tíðinda á fundunum i Re.vkja- vik en sagt var frá á þeim tíma. HH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.