Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JUNÍ 1977. Sigtúni 3 Til sölu Opel Rekord árg. '72. Mercedes Benz 220 árg. ’69. Ford Capri árg. ’70. Ford Escort árg. ’73-’69 og fl. og fl. VW árg. ’70 Cortina árg. ’70 Morris Marina árg. ’74 VW Passat árg. ’74. Óskum eftir bílum til sölu og sýnis. Opið frá kl. 9-7 — Laugardaga kl. 10-4 KJÖRBÍLLINN Sigtúni 3 — Sími 14411 UTBOÐ Tilboð óskast í málningarvinnu utanhúss fyrir Ölgerðina. Útboðsgögn afhent á skrifstofunni Þverholti 20. Tilboð onnuð 28. júní kl. 11.00. H.F. Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Leiklistarskóli Islands leitar eftir rúmgóöu húsnæöi fyrir starfsemi skólans. Allar na'nari upplýsingar á skrifstofu skólans ísíma 25020 Lausar kennarastöður Nokkrar kennarastöður við Gagn- fræðaskóla Húsavíkur eru lausar til umsóknar. Upplýsingar veitir Sigurjón Jóhannesson í síma 41166 eða Einar Njálsson í síma 41500. Bílasýning Sýnumámorgunl7.júnífrá kl. 5 til 7 gamla búa íporti Austurbæjarbarnaskólans. Fornbílaklúbbur Islands Fjölbreytnin í íslenzkum ullarfatnaði ótrúlega mikil Tízkusýningaráföstudagshádegi í Blómasal Loftleiða Þessi jakki er gjarnan nefndur „íslenzki minkurinn”, en hann líkist mjög hvitum mink. Jakkinn er frá Skagaprjóni. DB-mynd Ragnar Th. Þótt þú heyrir enska tungu í Blómasal Hótel Loftleiöa í hádeginu einhvern föstudaginn skaltu ekki láta þér bregða. Það er aðeins kynnirinn á tízku- sýningum sem þar fara fram í hádeginu á föstudögum í sumar, Unnur Arnórsdóttir. Tízku- sýningar þessar hafa verið með svipuðu sniði undanfarin fjögur ár. Fyrir þeim standa Islenzkur heimilisiðnaður, Rammagerðin og Hótel Loftleiðir. Á meðan á tízkusýningunni stendur situr frú Sigrún Stefáns- dóttir, íklædd íslenzkum búningi, þar hjá og spinnur ull og kembir. Sigrún hefur verið í sambandi við íslenzku ullarvörurnar í fjölda- Mikla athygli vöktu þessar tvær föngulegu sýningarstúikur er pæi gengu í salinn sveipaðar léttri ullarvoð frá Aiafossi. Undir voðinni voru þær i ullarnærfötum og sjónvarpssokkum. Sigrún Stefánsdóttlr spinnur ullina á meðan ungu stúlkurnar sýna flfkurnar sem unnar eru úr ullinni. DB-mynd Ragnar Th. mörg ár á vegum Heimilisiðnaðar- félagsins og hefur verið milli- göngumaður prjónakvennanna og söluaðilanna. Greinilegt var að tóvinna Sigrúnar vakti mikla athygli þeirra erlendu gesta sem komu á fyrstu sýninguna sem var s 1. föstudag. Allar flíkurnar á sýningunni eru úr íslenzkri ull, ýmist ofnar, hand- eða vélprjónaðar’. Þarna gat að líta bæði ullarnærföt, sam- kvæmiskjóla, jakka, peysur, sjöl, slá og kápur. Einnig eru sýndar íslenzkar skinnavörur og skart- gripir frá Jens Guðjónssyni. F.vrirtækin sem framleiða fatnaðinn eru tólf talsins og þar af eru tíu staðsett utan Reykja- víkur viðs vegar um landið. Fatnaðurinn vakti rnikla at- hygli sýningargesta og þá ekki sizt hve fjölbre.vtni i framleiðsl- unni er orðin mikil. Unnur Arngrimsdóttir stjórnaði tízku- sýningunni. DB-mynd Ragnar Th. A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.