Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.06.1977, Qupperneq 9

Dagblaðið - 16.06.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JUNÍ 1977. Ö íslandssigling Smyrils borgar tapið af strandsiglingum skipsins Ole Hammer skipstjóri Smyrils. Á meðan Norðurlandaráð sat þungt hugsi, svo lá við höfuð- verkjum, um hvernig mætti bæta samgöngur á sjó við Færeyjar og Island sátu Færeyingar ekki auðum höndum og keyptu sér far- þegaskip, Smyril, og hefur það gengið í tvö sumur á milli Islands, Skotlands, Noregs og Færeyja. DB átti viðtal við skipstjóra Smyrils, Ole Hammer, við komu skipsins til Seyðisfjarðar í fyrsta skipti á þessu sumri. Ole sagði að Smyrill væri bæði farþega- og bílaflutningaskip og tekur það 500 farþega og 140 bíla. Smyrill gengur þessa leið aðeins þrjá og hálfan mánuð ársins en hinn tím- ann, þ.e. átta og hálfan mánuð, er skipið notað á strandleiðinni á milli Þórshafnar, Klakksvíkur og Suðureyjar. Að sögn Ole er Smyrill happaskip og hafa engin áföll orðið frá því að skipið kom til Færeyja. Um borð rikir mikill félagsandi meðal farþega og er sér leikher- bergi fyrir börn. Smyrill hefur verið rekinn al- gerlega án rikisstyrks og er tap á færeysku strandleiðinni en fslandssigling Smyrils er undirstaða Islandsleiðin bætir það upp. Þrjá- tíu manna áhöfn er á skipinu og eru það allt Færeyingar og gott starfsfólk sagði Ole Hammer skip- stjóri að lokum. - Arnþór/JH reksturs skipsins. Aj’o-uiy'uuir /^rnpui juiisáiuu. UTILOKAÐ AÐ MUNIR TYN- IST A ÞJÓÐMINJASAFNINU — segir Gísli Gestsson, safnvörður „Það kemur ekki til mála að munir týnist hér á Þjóðminja- safninu," sagði Gisli Gestsson safnvörður í samtali við frétta- mann DB vegna fréttar í blað- inu fyrir helgi. Þar var sagt frá vangaveltum systkina, barna Hjálmars heitins Lárussonar útskurðar- manns, um hvort mögulegt væri að allmargir munir eftir föður þeirra hefðu „týnzt“ á Þjóðminjasafninu. Gísli Gestsson taldi það úti- lokað og kvað enga fullvissu vera fyrir því að umræddi'- munir — sem systkinin vissu ekki hverjir væru — hefðu nokkru sinni verið til á safninu. Sagði hann ekkert vitað hvenær þessir hlutir hefðu komið á safnið né heldur frí hverjum. Auk þess væri það svo með muni Hjálmars Lárus- sonar að fæstir þeirra væru merktir og því væri hægara sagt en gert að finna þá, væru þeir til í safninu á annað borð. „Það er hugsanlegt að þetta hafi hafnað í safni Andrésar Johnsens í Hafnarfirði," sagði Gísli Gestsson, „en þar voru um tuttugu þúsund númer sem verið er að fara í gegnum. Þessir munir Hjálmars eru ekki beinlínis fornminjar, heldur ættu frekar heima á listiðnaðar- safni og hér á Þjóðminjasafn- inu eru aðeins til drög að slíku safni, enda er það ekki bein- línis okkar svið. Til að finna þá hluti sem þau systkin telja að eigi að vera hér höfum viðtvær skrár til að leita í, aðfangaskrá og númeraskrá en svo þær komi að notum þurfum við að vita hver hefur gefið þessa hluti hingað eða að minnsta kosti hvenær þeir hafa verið gefnir.“ -OV. Bátartilsölu 11,8 tonna sléttsúðaður frambyggður bátur smíðaður 1962 með mjög gððri 125 ha. vél frá 1970. 1 bátnum er, meðal annars, trollspil, 5 rafmagns- færavindur, 2 dýptarmælar, Furino radár,eignartalstöð (siglingatæki flest nýleg). Bátnum verður skilað nýskoð- uðum og nýmáluðum. Útb. aðeins 1 til 1,5 millj. sem má skipta. Auk þess höfum við til sölumeðferðar nýlega Bátalónsbáta sem eru til afhendingar strax- Eignaval Suðurlandsbraut 10 sími 85650 heimasími 13542 Endurnýjun flugflota Flugfélags Norðurlands hf. að Ijúka: Fjármálastjórí Starf fjármálastjóra hjá Rafveitu Hafnarfjarðar er laust til umsóknar. Óskað er eftir að umsækjandi hafi vió- skiptafræðimenntun eða góða starfsreynslu við bókhald. Laun eru samkvæmt launaflokki B 21. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum fyrir 20. júní nk. til rafveitustjóra, sem veitir nánari uppl. um starfið. Ein gömul gefin sem saf ngripur og verið að sækja hraðfleyg- ustu smávélina hér Piper Chieftain vél, eins og Flug- félag Norðurlands er að fá. „Eina hinna þriggja Beechcraft véla, sem félagið átti þegar við tókum við, höfum við gefið Vél- flugfélagi íslands með þeim skil- yrðum að það varðveiti hana sem safngrip, aðra seldum við Flug- stöðinni í Reykjavík og þá þriðju ætlum við að nota út, eða á meðan mótorar eru innan löglegra tak- marka," sagði Sigurður Aðal- steinsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Norðurlands hf. i við- ta!i við DB. Sigurður er farinn til Banda- ríkjanna til að ganga endanlega frá kaupum á svo til nýrri 10 sæta flugvél af gerðinni Piper Chief- tain, tveggja hreyfla og með for- þjöppu á hreyflum, sem gerir henni mögulegt að fljúga mjög hátt. Sú vél verður hraðfleygasta smávél hér á landi og getur flogið á 200 hnúta hraða á klukkustund við góðar aðstæður, fullhlaðin. Þannig tæki það hana t.d. um sjö klukkustundir að fljúga milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og hefur hún flugþol til þess. Mun hún kosta um 35 milljónir. í fyrra keypti félagið Twin Otter, 19 sæta vél fyrir um 60 milljónir og nýlega er lokið yfir- gripsmikilli endurnýjun á sex manna Piper Aztec flugvél félags- ins. Einnig á l'élagið litla Piper vél, fjögurra sæta. Á síðasta ári flutti félagið 10.553 farþega og 318 tonn af vörum. Rekstur þess gekk vel á síðasta ári, að sögn Sigurðar. Þá á fyrirtækið fullkomnasta flugvéla- mótorverkstæði á landinu og sér m.a. um viðhald fyrir Flugfélagið Erni á ísafirði og fleiri. Nýlokið er byggingu fullkomins við- gerðarskýlis. Tryggvi Helgason flugmaður stofnaði þetta félag 1959 en seldi núverandi eigendum það 1. nóv. 1974. Flugleiðir eiga nú 35% í Flugfélagi Norðurlands og hafa félögin sameiginlega vöru- og far- þegaafgreiðslu á Akurevri. - G.S. Að f inna innri frið og sanna hamingju Indverji nokkur Karunananda Avt að nafni mun dvelja hér á landi dagana 14. til 22. júni til að kenna jóga á vegum Ánanda Marga hreyfingarinnar. Karunananda hefur dvalizt fjarri heimalandi sínu undanfarin ár og kennt Jóga í Evrópu. Leitast hann við að hjálpa mönnum að „finna hinn innri frið og raunverulega hamingju sem allar mannlegar verur leita að“ eins ,og segir í tilkynningu Ananda Marga hreyfingarinnar. Ananda Marga á Islandi rekur nú þegar verzlunina „Kornmarkaðinn" að Skóla- vörðustíg 21a og hafa þeir í hyggju að koma á fót ýmiss konar annarri starfsemi. Er þá ætlunin að stofna matstofu með jurtafæðu eingöngu, leikskóla fyrir börn og sveitaheimili fyrir afvegaleidda unglinga. BH Rafveita Hafnarfjarðar.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.