Dagblaðið - 16.06.1977, Side 13

Dagblaðið - 16.06.1977, Side 13
DACiBLAÐlÐ. FIMMTUDACiUK 16. JUNÍ 1977. 13 Farið að lækka í ruslatunnunni Hálf var ég nú laus vió sjón- varpið þessa vikuna, enda einkar fátt sem freistaði mín að marki í dagskránni. í síðasta pistli gle.vmdi ég hreinlega sunnudeginum, líklega í ákafanum við að niða niður sólarlagið, en það er svo sem ekki margt um þann sunnudag að segja. Ég gleymdi að kveikja klukkan sex vegna þess að það stóð fast i mér að stundin okkar væri hætt og missti þess vegna af upphafi Knattspyrnu- kappans og Uluggum, sem yfir- leitt eru dálítið forvitnilegir. Ferðalag Svíanna að Heklu, i fótspor Engströms, er nokkuð góð niynd, en dálitið langdregin á köflum. Sama er að segja um þáttinn um Binna í Gröf, þó hann ætti ágætlega við á sjó- mannadegi. Leikritið danska um söngvarann kunni ég ekki að meta og það fór hálfvegis fram hjá mér, svo og eskimóa- myndin. A þriðjudag var Ellery Queen það eina sem gat haldið athygli minni. Þessi herra Rossi er vægast sagt heldur ruglings- legur en vonandi finnur hann hamingjuna í einhverri mynd að lokum. Miðvikudagurinn var sæmilegur og lifnaði aðeins yfir í Onedin, þegar fólkið fór að sýna á sér mannlegu hliðina. En Grigorenko-þátturinn, sem annars var forvitnilegur fyrir- fram, megnaði tæpast að halda mér vakandi, svo þungur og dapurlegur var hann. Ég trúi alltaf varlega svona myndum, hvað sem þær eru sagðar byggðar á áreiðanlegum heimildum. P'östudagurinn var langbesti dagur vikunnar, Prúðu leikararnir standa alltaf fyrir sínu og umræðuþátturinn um áfengismálin var sæmilega lifandi miðað við umræðuþætti undanfarið. Þar kom margt athyglisvert fram, til dæmis að ofan í þjóðarlíkamann fer all- mikið áfengismagn í pilsner- og maltöli, svo og að hiklaust skuli Þjóðhátíð í Reykjavík DAGSKRÁ I. Dagskrain hefst: Kl. 09.55 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavfk. Kl. 10.00 Ólafur B. Thors, forseti borgarstjórnar leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum v/Suður- götu. Lúðrasveitin Svanur leikur: Sjá roðann á hnjúkunum háu. Stjórnandi Sæbjörn Jónsson. II. Við Austurvöll: Lúðrasveitin Svanur leikur ættjarðarlög á Austurvelli. Kl. 10.40 Hátíðin sett: Margrét S. Einarsdóttir, formaður Þjóðhátíðar- nefndar. Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri Páll Pampichler Pálsson. Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, leggur blómsveigfrá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Karlakór Reykjavíkur syngur þjóðsönginn. Ávarp forsætisráðherra, Geirs Hallgrímssonar. Karlakór Reykjavíkur syngur: Island ögrum skorið. Ávarp Fjallkonunnar. Lúðrasveitin Svanur leikur: Eg vil elska mitt land. Kynnir: Árni Gunnarsson. Kl. 11.15 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prestur séra Ólafur Skúla- son. Dómkórinn syngur, Ragnar Björnsson leikur á orgel. Einsöngvari: Sigurður Björnsson. III. Leikur lúðrasveita: Kl. 10.00 Við Hrafnistu. Kl. 10.45 Við Elliheimilið Grund. Barna- og unglingalúðrasveit Reykjavíkur leikur. Stjórnandi: Ólafur L. Kristjánsson. IV. Skrúðgöngur: Kl. 14.30 Safnast saman á Hlemmtorgi, Miklatorgi og við Sundlaug Vesturbæjar. Frá Hlemmi verður gengið um Laugaveg og Bankastræti á Lækjar- torg. Lúðrasveit verkalýðsins leikur undir stjórn Ólafs L. Kristjáns- sonar. Frá Miklatorgi verður gengið um Hringbraut, Sóleyjargötuv Frí- kirkjuveg og Lækjargötu á Lækjartorg. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Björns R. Einarssonar. Frá Sundlaug Vesturbæjar verður gengið um Hofsvallagötu, Tún- götu, Garðastræti, Vesturgötu og Hafnarstræti á Lækjartorg. Lúðra- sveitin Svanur leikur undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Skátar ganga undir fánum fyrir skrúðgöngunum og stjórna þeim. V. Barnaskemmtun ó Lcekjartorgi: Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Kl. 15.10 Samfelld dagskrá: Stjórnandi: Klemens Jónsson. Kynnir: Bessi Bjarnason. Leikþáttur: Lilli, Lúllaog Labbakútur. Flytjendur: Randver Þorláksson, Helga Þ. Stephensen, Lilja Þóris- dóttir og Arni Elvar. Barnavisur, flytjendur: Svanhildur og ólafur Gaukur. Gamanmál, flytjendur: Árni Blandon og Gísli Rúnar Jónsson. Tóti trúður skemmtir, (Ketill Larsen). Dýrin í Afríku, flytjendur: Bessi Bjarnason og fleiri. Leikþáttur: Steinbítsstríð, flytjendur: Jón Hjartarson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Magnús Pétursson. VI. Bifreiðaakstur: Kl. 16.15 Akstur gamalla bifreiða. Félagar úr Fornbílaklúbbi lslands aka á bifreiðum sinum um- hverfis Tjörnina. VII. Síðdegisskemmtun ó Lœkjartorgi: Kl. 17.00 Kynnir: Gunnar Eyjólfsson. Avarp frá Vestur-Islendingum i Winnipeg (vinabæ Reykjavikur í Kanada). Einsöngur: Ólafur Þ. Jónsson syngur, undirleikari: Ólafur Vignir Albertsson. Karlakórinn Fóstbræður syngur. Stjórnandi: Jónas Ingimundarson. Söngflokkurinn Randver skemmtir. Hljómsveitin Póker og söngkonan Shady Owens skemmta. VIII. Laugardalssundlaug: Kl. 15.00 Sundmót. IX. laugardalsvöllur: Kl. 15.00 17. júnímótið í frjálsum íþróttum. I. Kvöldskemmtanir: Kl. 21.00 Dansað verður á sex stöðum í borginni: við Austurbæjar- skóla, Breiðholtsskóla, Langholtsskóla, Melaskóla, Árbæjarskóla og Fellaskóla. XI. Hatiðahold i Arbœ|arhverfi: Kl. 13.15 Skrúðganga leggur af stað frá Arbæjarsafni, eftir Rofabæ að Arbæjarskóla. Barna- og unglingalúðrasveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Ólpfs L. Kristjánssonar. Fyrir göngunni fara skátar og íþróttafólk. Kl. 13.45 Samfelld dagskrá: Kynnir: Aðalsteinn Hallgrímsson. Hátíðin sett: Halldóra Steinsdóttir, formaður Kvenfélags Arbæjar- sóknar. Hátiðarávarp: Séra Guðmundur Þorsteinsson. Gamanmál, flytjendur: Árni Blandon og Gísli Rúnar Jónsson. Leikþáttur á vegum skátafélagsins Arbúa. Leikþáttur, Steinbítsstríð, flytjendur: Jón Hjartarson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Magnús Pétursson. Gamanþáttur frá skátafélaginu Arbúum. A vegum íþróttafélagsins: Tunnuboðhlaup, naglaboðhlaup og eggja- boðhlaup. Kl. 21.00 Dansað við Arbæjarskóla. Skemmtuninni lýkur kl. 24.00. XII. Hótíðahöld í Breiðholtshverfum: Kl. 13.00 skrúðgöngur: Safnast saman við íþróttavöllinn f Breiðholti I, gengið um Leirubakka, Stöng, Breiðholtsbraut og Norðurfell að Fellaskóla. Lúðrasveitin Svanur leikur fyrir göngunni undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Safnast saman við Hólahring, gengið um Suðurfell, Austurberg og Norðurfell að Fellaskóla. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur fyrir göngunni undir stjórn Björns R. Einarssonar. Skátar og íþróttafólk fara fyrir göngunni. Kl. 13.45 Samfelld dagskrá við Fellaskóla til kl. 19.00. Kynnir: Ragnar Bjarnason og Ómar Valdimarsson. Hátíðin sett: Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri. Hátíðarávarp: Séra Lárus Halldórsson, sóknarprestur. Eftirhermur og búktal: Ágúst Isfjörð. Vísnasöngur o.fl.: Bessi Bjarnason. Danssýning: Nemendur frá Dansskóla Heiðars Astvaldssonar sýna táningadansa. Leikþáttur: Lilli, Lúllaog Labbakútur. Flytjendur: Randver Þorláksson, Helga Þ. Stephensen, Lilja Þóris- dóttir og Arni Elvar. Danssýning: Nemendur frá Dansskóla Sigvalda sýna Rock’n Roll o.fl. Barnavísur, flytjendur: Svanhildur og Ólafur Gaukur. Upplestur: Ævar R. Kvaran, leikari. Eftirhermur: Þorsteinn Eggertsson. Diskótek, plötusnúður: Skúli Björnsson. Kl. 14.00 Við iþróttahús Fellaskóla: Skátatívoli. Kl. 14.45 íþróttavöllur í Breiðholti III: Frjálsiþróttamót í umsjá íþróttafélaganna Leiknis og ÍR. Kl. 21.00 Kvöldskemmtanir: Dansað við Breiðholts- og Fellaskóla. Skemintuninni lýkur kl. 24.00. fullyrt aö við bruggum svona mikið. Það gerum við vafalaust.' Fransk-ítalska bíómyndin vakti athygli mína fyrirfram einungis vegna allra þessara stóru nafna, sem í henni voru, en þegar til kom reyndist hún aldeilis ágæt afþreying. En laugardagurinn olli mér sárum vonbrigðum og ég slökkti strax eftir læknaþáttinn og lét mér nægja útvarpið eftir það. Eins fór með sunnudaginn, það var meira freistandi að fara út að aka í góða veðrinu en sitja yfir kassanum. Ég sá þó Knatt- spyrnukappann og fannst hann þess virði að fylgjast með hon- um framvegis. Það leynir sér víst ekki að farið er að nálgast sumarleyfi sjónvarpsins. Mér finnst eins og verið sé að hella yfir okkur; dreggjunum úr ruslatunnunni svona í lokin. Það eina sem sýnt hefur verið þessa viku, sem var þess virði að brosa svolítið að því, voru Prúðu leikararnir og læknarnir. Má alls ekki hafa kímni í þessari dagskrá? Hún er svo yfirmáta hátíðleg og gamansnauð að maður hristir bara hausinn í forundran. Svo er hún .tlltaf að styttast. Líklega er verið að ræna mann aftur þessum aukaklukkutím- um, sem veittir voru eftir verk- fallið fræga á sínum tíma. Nú er búið að taka klukkutíma framan af miðvikudéginum, annan framan af laugardegin- um og ensku knattspyrnuna þar að auki, þó ég sakni hennar ekki vitund. Þetta munu vera einir þrír klukkutímar og svo vantar líka aftan á. t þá gömlu, góðu daga lauk dagskránni yfir- leitt ekki fyrr en um ellefuleyt- ið á virkum dögum og um helg- ar náðu myndirnar stundum vel fram yfir miðnætti. En nú bregður svo við að allt er búið um eða upp úr hálfellefu virka daga og hálftólf um helgar. Þetta er þó jákvætt að því leyti að það bendir til að farið sé að lækka í ruslatunnunni og að við megum eiga von á algerum endurbótum eftir sumarleyfi. Skyldi ekki einhver geta tekið sinnaskiptum af þeim, sem ráða? Ég veit um þetta með peningaleysið, það hefur glumið í allra eyrum undan- farin ár, en samt get ég ekki skilið að endilega þurfi að kaupa leiðinlegt efni fyrir þess- ar fáu krónur, það hlýtur alveg eins að vera hægt að fá skemmtilegt efni, gamanþætti fyrir litið verð, það gerir nefni- lega ekki svo mikið til, þó þeir séu gamlir, bara ef hægt er að hlæja svolítið. Hlátur mun vera einn ódýrasti munaður sem við getum veitt okkur, auk þess sem hann er hollur. En ráða- mönnum sjónvarps finnst ef til vill ekki viðeigandi að þjóðin hlæi mikið á þessum síðustu og verstu tímum. Hvað næstu viku varðar er leikritið Maður og kona nokkuð sem maður veit hvað er og veldur varla vonbrigðum. Laug- ardagsm.vndin mun einnig ágæt ef hún líkist bókinni eitthvað. Heldur hefði ég nú viljað fram- haldsþættina eftir henni en þeir voru víst sýndirlhermanna- sjónvarpinu á sinum tíma og hljóta því að vera mannskemm- andi. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig hægt er að gera skil á hálfri annarri klukkustund! öllu þvi efni sem í bókinni eiyH þvi þar er livergi dauður depill. I

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.