Dagblaðið - 16.06.1977, Page 26
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JÚNl 1977.
Sjónvarp
9
26
(t
Útvarp
Sjónvarp annað kvöld kl. 21.15: Ástsæll alþýðusjónleikur
Maður og kona
Annað kvöld, þjóðhátíðar-
kvöldið kl. 21.15, verður Maður
og kona á dagskrá sjónvarpsins.
Er þetta endursýning frá árinu
1970, en vel til fundið að sýna
svo þjóðlegt leikrit á þjóð-
hátíðardaginn.
Leikgerðin er samin af Emil
Thoroddsen og Indnða Waage
eTtir sogu Jóns Thoroddseris.
Leikritið var fyrst sýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1933 og
voru þá þrjátíu og sex sýningar
á því. Síðan hefur Maður og
kona verið nokkrum sinnum
sýnt í Iðnó, nú síðast árið 1968.
Leikritið var einnig sýnt á veg-
um Fjalakattarins i Iðnó og
einnig í Þjóðleikhúsinu fyrir
nokkrum árum. Leikritið er
nokkuð stytt í upptöku sjón-
varpsins.
Leikstjóri og sögumaður er
Jón Sigurbjörnsson. Brynjólfur
Jóhannesson fer með hlutverk
<€.
Þorsteinn Gunnarsson og Inga
Þórðardóttir í hlutverkum sín-
um.
séra Sigvalda, eins og hann
gerði í öllum sýningum Leik-
félagsins. Er víst ekki ofsagt að
hann hafi leyst það hlutverk
stórkostlega vel af hendi og
líður ekki úr minni þeim sem
hann sáu. Aðrir leikendur eru
Inga Þórðardóttir, Sigríður
Hagalín, Valgerður Dan, Þor-
steinn Gunnarsson. Valdimar
Helgason, Steindór Hjörleifs-
son, Kjartan Ragnarsson,
Borgar Garðarsson, Jón Aðils,
Margrét Magnúsdóttir, Guð-
mundur Erlendsson og
Guðmundur Magnússon.
Ekki skal efni leikritsins
rakið hér enda líklega varla það
mannsbarn á íslandi sem komið
er til vits og ára sem ekki kann-
ast við það.
Saga Jóns Thoroddsens,
Maður og kona, kom fyrst út á
kostnað Bókmenntafélagsins
árið 1876, átta árum eftir dauða
höfundarins. Var það enginn
annar en Jón Sigurðsson sem
bjó handritið til prentunar og
lagði hann síðustu hönd á
skáldverkið, þar sem höfundur
hafði iátizt áður en hann lauk
við verkið. önnur og þriðja út-
gáfa (1905 og 1923) voru eftir
frumútgáfunni en fjórða út-
gáfan, sem út kom 1942 var
byggð á handritinu sjálfu og
farið nær því en áður hafði
verið gert, samkvæmt formáls-
orðum Steingríms J. Þorsteins-
sonar, að Helgafellsútgáfu af
skáldsögunni frá árinu 1949.
- A.Bj.
Sjónvarp á laugardagskvöld kl. 21.25: Sámsbær
Myndin varð tilefni
ótal „sápu-þátta”
— en er samt ágætisskemmtun uöySSam31'5
A laugardagskvöld kl. 21.25 er
á dagskrá sjónvarpsins bíómynd-
in Sámsbær, sem er bandarísk frá
árinu 1957. Mynd þessi heitir
Peyton Place á frummálinu og er
hún gerð eftir samnefndri met-
sölubók Grace Metalious. Bókin
kom út í íslenzkri þýðingu árið
1958.
I myndinni er gert uppskátt um
alls kyns sora sem viðgengst í
smábæ einum í Nýja Englandi.
Kvikmyndin varð fyrirmynd sjón-
varpsþátta með sama nafni sem
sýndir eru að jafnaði í Bandarík-
junum og kallaðir eru „sápu-
óperur".
t kvikmyndahandbókinni
okkar fær þessi mynd þrjár
stjörnur og þar segir að víst sé
þetta hálfgerð „sápuópera", en
alveg prýðilega góð þrátt fyrir
það. Leikur Lönu Turner, sem fer
með eitt aðalhlutverkið, er sagður
mjög góður svo og annarra leik-
enda. Lokið er lofsorði á fram-
leiðslu myndarinnar sem sögð er
hin vandaðasta og ekki spilli hið
fagra landslag Nýja Englands
fyrir. Það gagnar íslenzkum sjón-
varpsáhorfendum ekki mikið því
að sjálfsögðu er myndin ekki send
út nema í svart-hvítu,
Aðrir leikendur myndarinnar
Sýningartími myndarinnar er
tvær og hálf klukkustund.
Þýðandi er Ragna Ragnars.
- A.Bj.
Kvikmyndin gerist í smábæ í Nýja Englandi árið 1937 og kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist i lifi
fólksins þar.
Útvarp
Laugardagur
18. júní
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Morgunlaikfimi kl.
7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7,30 8.15 9.00
og 10.00 Morgunbasn kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.00: Sigriður
Eyþórsdóttir les sögur úr bókinni
..Dýrunum í dalnum“ eftir Lilju
Kristjónsdóttur(2). Tilkynningar kl.
9.00. Létt lög milli atriða. Óskalög
sjuklinga kl. 9.15: Kristfn Sveinbjörns-
dóttir kynnir. Bamatími kl. 11.10:
HvaA viltu heyra? Guðrún Birna
Hannesdóttir stjórnar tímanum.
Sigrún Þorgeirsdóttir 12 ára og óskar
Davíð Gústafsson 10 ára velja efni til
flutnings. Lesið verður úr „önnu í
Grænuhlíð“ eftir Montgomery í
þýðingu Axels Guðmundssonar og
ævintýrin „Dáfríður og dýrið ljóta“ og
„Stígvélaði kötturinn.“
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Laugardagur til lukku. Svavar Gests
sér um síðdegisþátt í tali og tónum.
(Inn f hann fjalla íþróttafréttir,' al-
mennar fréttir kl. 16.00 og veður-
fregnir kl. 16.15).
17.00 Lótttónlist.
17.30 Rímur af Svoldarbardaga — I Hall-
freður örn Eirfksson kynnir. Guð-
mundur ólafsson kveður.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Frettaauki. Tilkynningar.
19.35 Allt i grœnum sjó. Stolið, stælt og
skrumskælt af Hrafni Pálssyni og
Jörundi Guðmundssyni.
20.00 Konsert fyrir trompet og hljómsveit
eftir Alexander Aroutounian. Maurice
André og Fflharmonfusveit franska
útvarpsins leikur: Maurice Suzan
stjórnar.
20.20 Flugfólag islands 40 ára. Arngrfmur
Sigurðsson tekur saman dagskrána og
ræðir við Agnar Kofoed-Hansen flug-
málastjóra og örn Ó. Johnson aðalfor-
stjóra Flugleida.
21.10 Hljómskálamúsik frá útvarpinu í
Köln. Guðmundur Gilsson kynnir.
21.40 örlítiA um Baska. Spjallað um
Baska, sögu þeirra og tónlist. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson. Lesari með
honum: Þorbjörn Sigurðsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55*Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
19. júní
8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.15 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Út-
dráttur úr forustugr. dagbl.
8.30 Lótt morgunlög.
Fréttir. Vinsaslustu popplögin. Vignir
Sveinsson kynnir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar. Píanótrió f e-moll,
„Dumky"-tríóið eftir Antonin Dvorák.
Beaux Árts tríóið leikur.
11.00 Prestvígslumessa i Dómkirkjunni
(hljóðr. á sunnud. var). Biskup
lslands, herra Sigurbjörn Einarsson,
vfgir Davíð Baldursson cand. theol. til
Eskifjarðarprestakalls. Séra Sigurður
H. Guðinundsson lýsir vígslu. Aðrir
vígsluvottar: Séra Trausti Pétursson
prófastur. séra Þórir Stephensen, sem
þjónar fyrir altari. Hinn nývfgði prest-
ur prédikar. Organleikari: Ragnar
Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.45 LífiA er seltfiskur — áttundi og
síAasti þáttur. Páll Heiðar Jónsson
fjallar að þessu sinni um saltfisksölu f
Portúgal. Tæknimaður: Þorbjörn Sig-
urðsson.
15.00 MiAdegistónleikar: Tónlist eftir,
Handel. Kammersveit útvarpsins f<
Saarbrucken leikur. Stjórnandi og!
organleikari: Hanns-Martin Schneidt.
Einsöngvari: Feligity Palmer
(Hljóðritun frS útvarpinu í
SaarbrUcken a. „Lucretia‘\|
kantata b. Orgelkonsert f d-moll op. 7Í
nr. 4. c. Hljómsveitarkonsert nr. 1 í'
B-dúr
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Mór datt þaA í hug. Gfsli J. Ástþórs-
son rabbar við hlustendur.
16.45 islenzk einsöngslög. Elin Sigur-
vinsdóttir syngur lög eftir Sigvalda
Kaldalóns og Pál ísólfsson. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á pianó.
17.00 StaldraA viA í Stykkishólmi — annar
þáttur. Jónas Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
18.00 Stundarkom meA Julian Bream gítar-
leikara. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Tilkynningar.
19.25 LífiA ffyrir austan — annar þáttur.
Birgir Stefánsson kennari segir frá.
19.55 Einlaikur í útvarpsal. a. Sónatfna
fyrir einleiksflautu eftir Henri
Tomasi. Manuela Wiesler leikur. b.
Pianósónata i a-moll eftir Franz
Schubert. Selma Guðmundsdóttir
leikur.
20.25 „Aldrei skartar óhófið**' Annað
erindi Þorvalds Ara Arasonar um
skartklæði Hrefnu Ásgeirsdóttur og,
Guðríðar Símonardóttur, sögu eigend-:
anna og þeirra nánustu.
20.55 Sinfónía nr. 5 í e-moll op. §4 efjjr,
Tsjaíkovský. Suisse Romande hljóm-
sveitin leikur. Stjórnandi: Júrf
Ahronovitsj.
21.45 „Brölt í myrkri", smásaga eftir Mark
Twain. Þýðandi: óli Hermannsson.
Gísli Alfreðsson leikari les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi
Þorgilsson danskennari velur lögin og
kynnir.
23.25 Fréttir. Dap^krarlok.
Múnudagur
20. júní
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05: Valdimar örnólfsson leik-
fimikennari og Magnús Pétursson
pianóleikari (alla virka daga vik.).
Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr.
landsmálabl). 9.00 og 10.00
Morgunbosn kl. 7.50: Séra Þórhallur
Höskuldsson flvtur ta.v.d.v.).
stund bamanna kl. 8.00: Sigriður
Eyþórsdóttir les sögur úr bókinni
„Dýrunum i dalnum" eftir Lilju Krist-
jánsdóttur (3). Tilkynningar kl. 9.30.
I^tt löe milli atriða.
Morgunpopp kl. 10.25. Morguntoniama.
kl. 11.00: Suisse Romande hljómsveit-
in leikur „Leiki". dansljóð fyrir
hljómsveit eftir Debussy; Ernest
Ansermet stj./ Vladimir Horowitz og
RCA-Victor sinfóníuhljómsveitin
leika Píanókonsert nr. 3 f d-moll op. 30
eftir Rakhmaninoff. Frilz Reiner stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 MiAdagissagan: „Elsnóra drottning*
aftir Norah Lofts. Kolbrún Friðþjófs
dóttir les þýðingu sfna (4).
15.00 MiAdagistónlaikar: islanzk tónlist. a.
„Hugleiðingar um fimm gamlar