Dagblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 13
13 D UiBI. Um) l>KID.IU1) \('iUU 12 .111.1 1977. ‘J S.8l 1 < 1 mSwmmfílmmSXS 9 ~ DB-m.vnd Sveinn Þormóðsson. Marteinn ænr daglega, Edström ekki með Svíun — beðið eftir svari frá Union hvort Marteinn fái að leika gegn Svíum. Ralf Edström kemst ekki ísænska landsliðið Uarteinn Geirsson hefur æft hjá mér daglega að undanförnu — og við erum að gera okkur vonir um, að hann geti leikið iandsleikinn við Svía 20. júlí. Hins vegar á Marteinn að mæta hjá félagi sínu, Royale Union i Brussel, 18. júlí eða tveimur dögum fyrir landsleikinn. Við höfum skrifað Union bréf og óskað eftir, að Warteinn fái að dvelja hér fram yfir landsieikinn og um leyfi félagsins að hann megi leika hér. Verði svar Union jákvætt rnun Vlarteinn áreiðan- lega leika gegn Svíum, sagði Tony Knapp, landsliðsþjálfari, þegar blaðið ræddi við hann í gær. Engar líkur eru á, að hinir at- vinnumennirnir íslenzku leiki gegn Svíum. Jóhannes Eðvalds- son í keppnisför í Ástralíu — Asgeir Sigurvinsson í TOTÖ- keppninni ineð Standard og Guðgeir Leifsson á förum út. En hvað ineð Matthías Hallgrímsson og Teit Þórðarson í leikinn gegn Svíum? spurðum við Knapp. — Þeir eru mjög þýðingarmikl- ir leikmenn fyrir okkar vegna reynslu sinnar í landsleikjum, svaraði Knapp og hélt áfram. En • þeir leika báðir í Svíþjóð sunnu- daginn 17. júlí. svo við vitum ekki fyrr en eftir þá leiki hvort þeir eru heilir og geta leikið. — Möguleikar á samæfingu landsliðsins eru ekki miklir, því nú bætist á, að Valur og ÍBV eiga að leika hinn frestaða leik sinn í 1, deildinni annað hvort á föstudag eða laugardag, auk leikja liðanna í bikarkeppninni í kvöld. Eg fæ því varla landsliðskandidata úr þeim félögum á æfingu fyrr en á mánudag, sagði Knapp. — Það er því ýmislegt, sem steðjar að fyrir landsleikinn við Svía, sem ég tel mjög erfiðan fyrir okkur. Svíar eiga snjöllum leikmönnum á að skipa. Blaða- maður hjá Aftonbladet, sagði mér nýlega, að Svíar myndu koma með 'alla sína beztu leikmenn hingað. Þjálfari sænska landsliðs- ins, George ,,Aby“ Ericsson, mundi ekki hætta á neitt hér á landi voru orð sænska blaða- mannsins, sagði Knapp að lokum. Rétt þegar við vorum að Ijúka þessari grein barst blaðinu skipan sænska landsliðshópsins, sem valinn hefur verið f.vrir lands- leikinn við ísland. Conny Thor- stensson — áður Bayern Miinchen — kemur ekki, því hann er hættur að lelka með Atvidaberg og er kominn til FC Ziirich í Sviss. Þá hefur ,,Aby“ ekki valið Ralf Edström, Gauta- borg, í lið sift — og telur hann ekki koma til greina i liðið f.vrr en mað haustinu. En nóg um það. Landsliðshópur ,,Aby“ er skipaður þessum leikmönnum. Markverðir: Göran Hagberg, Öster, og Jan Möller, Malmö FF. Bakverðir: Magnus Andersson, Malmö FF, Roland Andersson, Malmö FF, Roy Andersson, Malmö FF, Jörgen Augustsson, Landskrona, Ken Karlsson, Eskil- stuna, Björn Nordquist, Gauta-" borg. Framverðir: Bo Börjesson, Sundsvall, Eine Fredriksson, Norrköping, Lennart Larsson, Halmstad, Anders Lindroth, Öster. Framherjar: Sigge Johansson, Halmstad, Sonny Johansson, Landskrona, Olle Nordin, Gauta- borg og Thomas Sjöberg, Malinö FF. Eins og af þessari upptalningu sést eru fimm leikmenn frá Malmö FF, sem nú er í efsta sæti Állsvenskan — og það lið er skipað atvinnumönnum. an ferðast saman og notar fjölskyldu- r einn fullt fargjald, en allir hinir [skyldufargjöld okkar er gilda nú íorðurlandanna og Bretlands. Fjölskyldufargjöld henta vel jafnt vetur sem sumar, og hvort heldur um er að ræða orlofsferð eða viðskipta- erindi. Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn og ferðaskrif- stofumar um þessa auknu ferðamöguleika allrar & fj ölskyldunnar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.