Dagblaðið - 09.08.1977, Síða 3
DAGHLAHin. I>KH)JUI)ACUR í). ÁCÚST 1977.
Spurning
dagsins
3
ÞORSKVEIÐIHEFUR ALLTAF
VERIÐ LITIN HORNAUGA
Bréfritari segir þorskveiðar alltaf hafa verið litnar hornauga.
Reynir Traustason skrifar:
Flateyri 30.7. 1977, athuga-
semd við grein Sighvats Björg-
vinssonar í DB 28.7:
Sighvatur talar um gjör-
breytt viðhorf í sjávarútvegi og
segir að hingað til höfum við
litið á fiskinn sem ótakmörkuð
náttúrugæði en nú sé komlð
annað hljóð í strokkinn, fiskur
sé ekki óþrjótandi.
Þessi mæti „þingmaður"
okkar Vestfirðinga ætti að snúa
sér að öðrum málaflokkum (t.d.
dómsmálum) því hann hefur
greinilega ekki hugmynd um
hvaða fullyrðingar hann setur
fram á prenti.
Ef hann hefði kynnt sér eitt-
hvað sögu fiskveiða við Island
væri honum kunnugt um að
allar götur síðan um aldamót
hefur gætt mikilla fordóma í
garð þorskveiða í hvaða mynd
sem er. Bókin Kastað í flóanum
eftir Asgeir Jakobsson er ágætt
heimildarrit um þessi mál og ég
held, Sighvatur, að þú ættir að
labba þér út í búð og fá þér
eintak og reyna að afla þér
fróðleiks um þau mál sem bú
tjáir þig svo digurbarkalega úm.
Þetta er ekki rétta leiðin
fyrir pólitíska pabbadrengi til
að afla flokki sínum atkvæða.
Hvað telur þú
hollt fœði?
Kristján Gissurarson kennari:
Það er fyrst og fremst náttúruleg-
ur matur. Ég nefni sem dæmi
grænmeti og ávexti og annað þess
háttar.
Björg Pétursdóttir starfsstúlka:
Það getur nú farið eftir mörgu.
En i heild held ég að hollast sé að
nota sem minnst af gerviefnum.
Þjóðminja-
safnið og
opnun þess
Leiðsögukona hringdi:
Ég sá um daginn grein, ég
held í DB, þar sem gestur í
Þjóðminjasafninu lýsti furðu
sinni á því að safninu skyldi
vera lokað klukkan fjögur á
daginn og þá fólki hent út svo
að segja á sömu ínínútunni. Ég
hef í mörg ár farið með ferða-
mannahópa í safnið og þetta
hefur alltaf farið í taugarnar á
mér.
Mig langar svo að vita hvort
ekki er hægt að hafa safnið
opið lengur á sumrin þegar allt
er hér fullt af útlendingum sem
ekki skilja svona lagað og vilja
gjarnan gefa sér góðan tíma á
svona safni.
Einnig kemur mér í hug að
loka safninu á sama tíma fyrir
fólki sem hyggur á inngöngu en
gefa þeim sem inn eru komnir
tíma til að ljúka við, að skoða
safnið. Það mætti t.d. vera
þarna hálftíma mismunur.
Það vakti kæti mína í gær
(fimmtudag) að þegar klukkan
sló fjögur ætluðu leiðsögukon-
urnar að vísa gestum frá eins
og venja er en þá sáu þær að
þjóðminjavörður var að sýna
biskupi Islands og öðrum
pótentátum af norræna kirkju-
þinginu safnið svo þær stilltu
sig og gáfu þeim rýmri tíma.
Þetta finnst mér svolítið
undarleg pólitík. Þvi þarf að
veita sumum gestum það sem
öðrum er ekki veitt. Má ekki
gefa öllum góðan tíma?
Hringið ísíma £3322
miilikl. 13-15 eöaskrifiö
Geir Pétursson tæknifræðingur:
Það er nú dálítið breytilegt hvað
manneldisfræðingar segja að sé
hollt. Ég held þó að náttúrlegur
matur sé hollastur. Það er til
dæmis grænmeti, ávextir og
mjólk.
UMBOÐIÐ AISLANDI
BANKASTRÆTI8
SÍMI27510
Þyrí Jónsdóttir skrifstofustúlka:
Eg hef enga skoðun á því. Eg
borða bara það sem á boðstólum
er hverju sinni.