Dagblaðið - 09.08.1977, Blaðsíða 7
DAdBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. AGUST 1977.
7
Verkf all f lugumf erðarst jóra í Kanada:
Lausn á næsta leiti
— Trudeau segir að lög verði samþykkt sem skylda þá aftur til starfa
Kanadíska stjórnin mun
koma saman til að fjalla um lög
sem sett hafa verið en þau
koma í veg fyrir að flugum-
ferðarstjórar þar í landi geti
haldið verkfalli sínu áfram.
Verkfallið hefur nú staðið í
fjóra daga og valdið flug-
félögum og farþegum þeirra
miklu tjóni og óþægindum.
Jim Livingston, forseti sam-
taka flugumferðarstjóra, sagði í
gær, að hann gerði ráð fyrir því
að flugumferðarstjórar færu
eftir hinum nýju lögum ef þau
næðu fram að ganga. Living-
ston sagði að hann áætlaði að
það tæki um það bil sólarhring
að koma flugumferð í samt horf.
Flugumferðarstjórar háfa
krafizt um 12 prósent hækkun-
ar á launum, en yfirvöld hafa
neitað að ræða það vegna þess
að ráðamenn segja að svo mikil
hækkun auki á, verðbólguna f
landinu. Flugumferðarstjórun-
um hefur verið boðin 8 prósent
hækkun á launum.
t Pierre Trudeau, forsætis-
ráðherra Kanada, sagði á blaða-
mannafundi í gær að hann væri
sannfærður um að stjórnin
samþykkti lögin sem segðu svo
fyrir að flugumferðarstjórar
skyldu taka upp störf að nýju.
Tap flugfélaganna I Kanada
hefur verið mikið og talsmaður
Air Canada sagði að félagið
hefði tapað um eitt hundrað
milljónum á dag.
Grýta brezka
hermenn íheimsókn
Hundruð unglinga á Norður-
Irlandi réðust að brezku herliði
oggrýttu það aðeins degi áður
en Elizabet II Bretadrottning
kemur þangað í opinbera
tveggja daga heimsókn.
Spennan virðist vaxa með
hverjum deginum sem líður, og
gífurlegar öryggisráðstafanir
hafa verið gerðar fyrir komu
drottningarinnar. Um 30
þúsund hermenn hafa verið
fengnir ti! að gæta drottningar-
innar.
Öeirðirnar hófust þegar
maður nokkur hóf að skjóta á
búðir hermanna í Springfield-
götu í Belfast. Nokkrum mínút-
um seinna komu unglingarnir
vopnaðir grjóti og alis konar
drasli sem þeir grýttu í lög-
reglu og hermenn.
Um 20 manns hafa verið
handteknir til öryggis, vegna
aðildar sinnar að lýðræðis-
fylkingu Ira. Meðlimir IRA
hafa látið hafa það eftir sér að
þeir muni gera heimsókn
drottningarinnar mjög eftir-
minnilega.
Talið er víst að drottningin
muni fara út á meðal þegna
sinna eins og hún hefur gert
undanfarið í tilefni 25 ára
krýningaráfmælisins. Verður
því væntanlega mjög mikill
öryggisvörður umhverfis
drottninguna á ferð hennar um
Norður-írland.
Elizabet og maður hennar Prins Philip.
Rosalynn Carter:
Nýtt
hjarta í
annað
sinn
Christian Barnard, hjarta-
skurðlæknirinn frá Suður-
Afríku, hefur I annað sinn
grætt hjarta í Bandaríkja-
mann. Samkvæmt fréttum
frá Cape Town líður mann-
inum vel og aðgerðin virðist
hafa heppnazt mjög vel.
Aðgerðin tók sjö klukku-
stundir og var framkvæmd á
Groote Schuur sjúkrahúsinu
í Cape Town. Barnard sagði
að aðgerðin hefði verið
erfið, sérstaklega vegna þess
að maðurinn hefði tvisvar
áður gengið undir hjarta-
uppskurð.
Nýtt hjarta er grætt í við-
komandi sjúkling við hliðina
á því sem fyrir er. Þetta nýja
hjarta tekur svo við næstum
allri starfsemi. I mörgum til-
fellum fer það svo að hjarta
viðkomandi manns læknast
við að álagið er minnkað á
því, eftir því sem reynslan
hefur sýnt.
Bílaval
Laugavegi 92, símar
19168 og 19092.
Til sölu:
Sunbeam 1600 super
árg. 1976, fæst á góðum kjör-
um.
Saab 99
árg. 1971, góður vagn, skipti
koma til greina.
Stekkur út í sundlaug-
ina í öllum skrúða
Rosalynn Carter, forsetafrú
Bandaríkjanna, hefur ekki verið
jafnánægð með lífið og tilveruna I
mörg ár og nú. Hún segir frá
lífinu í Hvíta húsinu í samtali við
blaðamann Time Magazine. I
viðtalinu segist hún hafa lagt alla
fína siði á hilluna og hagi sér að
vild þegar hún sé með fjölskyldu
sinni í Hvíta húsinu. Hún lætur
það eftir sér að hoppa út 1 sund-
laugina í Iþróttafötum þeim sem
hún notar þegar hún leikur tennis
við forsetann.
Frú Carter sagði að hún væri
nýbyrjuð að stunda þessa íþrótt
og skemmtilegast væri að ljúka
leiknum með því að stökkva beint
út i sundlaugina, í tennisskónum
og íþróttagallanum. Maður verður
hvort sem er blautur af svita við
að leika tennis og þá er allt í lagi
að bleyta enn betur í sér, segir
fors«tafrúin.
Forsetafrúin sagði að
fjölskyldan hefði orðið miklu
samrýndari slðan hún kom í
Hvíta húsið. Hún segir einnig að
það sé alveg dásamlegt að hugsa
til þess að hafa gestaherbergin
full af skyldfólkinu og svo sætu
þau öll saman og borðuðu góðan
mat, en áður væri farið með borð-
bæn.
Eitt sinn sagðist forsetafrúin
hafa vaknað við einhvern hávaða
fyrir utan herbergið sitt. Hún at-
hugaði málið en þá stóðu þar
maður hennar, forsetinn, og Huss-
ein Jórdaníukonungur og
gægðust inn til Amy litlu forseta-
dóttur. I Time segir að Carter hafi
boðið Begin forsætisráðherra
Israels að kíkja á Amy en hann
hafi afþakkað boðið og það hefði
ekki lagað heldur leiðinlegt and-
rúmsloft sem ríkti á fundum
þeirra.
Volvo 142
árg. 1970.
Toyota Corolla,
þarfnast sprautunar.
Opel Commander
árg. 1968, gott verð, fallegur
bíll.
Moskvitch
árg. 1971, góður bíll.
Dodge Dart
árg. 1968, 8 cyl., 318, sjálf-
skiptur.
Takiöeftir
Ok'kur vantar bfla á söluskrá
strax því við seljum bíiana.
Góð þjónusta skapar öryggi
viðskiptanna.
Bflaval
Laugavegi 92, við hlið-
ina ó Stjörnubíói.
Símar 191Í8 og
19092.
Rosalynn Carter forsetafrú Bandaríkjanna kann vel við sig í Hvíta
húsinu.
CASIO
einkaumboðið á Íslandi