Dagblaðið - 09.08.1977, Page 6

Dagblaðið - 09.08.1977, Page 6
<> DACJBLAÐIÐ Eldgosiðá Hokkaido: Gjóskan fellur í mörg hundruð kift f jarlægð Ibúar þeirra þorpa er standa næst eldstöðvunum á Hokkaido í Japan hafa orðið að yfirgefa heimili sín. Nú liggur öskulag sem hið 725 metra háa fjall hefur sent frá sér þar yfir öllu. Um sex þúsund manns, bæði íbúar þorpanna og ferðamenn, hafa verið flutt á brott í nótt. Eldfjallið Usu hefur sent 12 gusur fyrir þetta svæði á síðustu 48 stundum. I sending- unum eru stórir grjóthnullung- ar sem falla niður á manna- bústaði en ekki hafa orðið nein slys á fólki svo vitað sé. Gjóska úr eldfjallinu hefur fallið á borgirnar Sapporo og Iwamizawa sem eru í meira en eitt hundrað kílómetra fjar- lægð. Eyðilegging vegna gossins úr Usu er talin nema mörgum milljörðum fslenzkra króna. Gripið geriosód kaup Smáauglýsingar MMBIAÐSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.tO í kvöld . ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGUST 1977. Makaríos jarðsettur: Valdi legstað sinn sjálfur Makaríos erkibiskup, for- seti Kýpur, var jarðsettur i gær. Við útförina voru við- staddir þjóðhöfðingjar frá fjölmörgum löndum. Erkibiskupinn var jarð- settur á stað sem hann hafði sjálfur ákveðið. Hann er hátt í hlíðum Trodosfjalls og þaðan er mjög gott útsýni yfir alla eyjuna. Sjálf guðs- þjónustan fór fram í ný- tfzkulegri kirkju í höfuð- borginni Nicosíu, nálægt kirkju þeirri sem lík forset-. ans hefur staðið á viðhafnar- börum síðustu daga. Talið er að grafhýsi Makaríosar verði helgi- staður grískumælandi Kýpurbúa í framtíðinni. Etna gýs stöðugt — byggðerekki íhættu Eftir tv.eggja ára rólegheit gýs eldfjallið Etna á Sikiley nú nær stöðugt. Gosið hófst i siðasta mánuði. Hraun- straumurinn er nú orðinn um það bil tveir kílómetrar. Mannabyggð við Etnu er ekki í hættu af völdum gossins, ekki enn að minnsta kosti. Hraunstraumurinn veltur nú niður norðaustur- hlíð fjallsins. — Etna er stærsta virka eldfjallið i Evrópu. Mesta atvinnu- leysi í Japan um át ján ára skeið Atvinnuleysi í Japan eykst stöðugt og er nú hið mesta um átján ára skeið. Um það bil tvö prósent fólks á vinnumarkaðinum eru nú án atvinnu. Stjórn landsins telur þetta stafa af of hæg- um efnahagsbata. Fjöldi atvinnuleysingja hefur vaxið stöðugt síðan i janúar síðastliðnum. Alls munu 55,5 milljónir Japana vera vinnufærar. Þar af eru nú nákvæmlega 2.08% at- vinnulaus. Arið 1958 komst talan upp I 2.10% — um það leyti sem japanska efnahagsundrið svokallaða var að byrja að mótast. Erlendar fréttir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.