Dagblaðið - 09.08.1977, Side 10

Dagblaðið - 09.08.1977, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞKIÐJUDACJUR 9. AdUST 1977. mmiAÐiÐ frfálst, úháð dagblað Útgefandi Oagblaðið hf. Framkvamdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jonas Kristjánsson. Fráfttastjori: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrui: Haukur Helgason. Skrifstofustjori ritstjórnar: úóhannes Reykdal. Iþróttir: Hallur Símonarson. Aðstoðarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Safn: Jón Ssavar Baldvinsson. Handrit: Ásgrímur Pólsson. BlaAamenn: Anna Bjarnason, Ásgoir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stofánsdóttir, Gissur Sígurðsson. Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob F. Magnússon, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Jónsson. ómar Valdsmarsson, Ragnar Lór. Ljósmyndir: Bjarnloifur Bjarnleifsson, Hðrður Vilhjólmsson, Sveinn ÞormóAsson. Skrífstofustjori: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Mér E.M. HaMdórssohr. Ritstióm SiAumula 12. AfgreiAsla Þverholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. AAaisámi blaðsins 27022 (10 línut). Áskríft 1300 kr. á mónuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eíntakiA. Setning og umbrot: DagblaAiA og Steindórsprent hf. Ármúla 5. Mynda og plotugorð: Hilmir hf. SíAumúla 12. Prqptun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Úrelt flokksblöð Vandamál flokksblaðanna koma skýrt fram í grein, sem Vil- mundur Gylfason menntaskóla- kennari skrifaði í Alþýðublaðið á miðvikudaginn. Þar segir m.a.: „Kjarni málsins er hins veg-. ar sá, að þar sem stjórnmála- flokkar eru beinir eða óbeinir útgáfuaðilar, þar hefur skapazt ákaflega óheilbrigt kerfi... For- ustumenn í stjórnmálaflokkum hafa tekið á sig fjárhagsskuldbindingar, sem iðulega hafa stór- skert athafnafrelsi þeirra — og gjarnan leitt þá inn í hið víðfeðma þagnarspil samtrygginga- kerfisins.... Þar að auki er einnig ljóst, að flokksblöð þjóna falskri sannleiksleit Þau eiga það gjarnan sammerkt að taka þátt í því að byggja upp heilsteypta mynd af stjórnmálaflokknum, sem þau eru fulltrúi fyrir. Þar sést hvorki hrukka né blettur, þar er engin ágreiningur, engin valdastreita. Samkvæmt flokksblöðunum mora hinir flokkarnir hins vegar í ágreiningi, valdatog- streitu, og venjulegast eru skítahvatir á bak við gerðir einstaklinga þar. Og það sem kannske verra er: Flokksblöðin fjalla gjarnan um lög- brot og hvers konar fjármálaósóma hjá hinum, en þó hefur stórlega dregið úr slíku hin síðari ár: Þögnin er auðveldari. Þessi upplýsingamiðl- un hefur orðið óendanlega hallærisleg. Ritskoðun getur verið fólgin í fleiru en að birta eða birta ekki efni. Ritskoðun getur lika verið fólgin í uppsetningu efnis, staðavali í blaði. Ný blöð á blaðamarkaði...hafa augljós- lega notið þess meðal lesenda sinna, að þau hafa verið í kannske misjafnlega hóflegri upp- reisn gegn lamandi og leiðinlegu flokkakerfi. Kjallaragreinar....eru öfundsvert framtak í íslenzkum blaðaheimi. Menn gleyma því stundum, hversu lýðræðislegar slíkar greinar eru: Þetta er vettvangur sem var ekki til fyrir nokkrum árum. Þar er enginn dómur lagður á efni eða innihald með fyrirsögn eða uppsetn- ingu, en lesandanum látið slíkt eftir.... Annar kjarni þessa máls er sá, að það er einfaldlega ósæmilegt, að stjórnmálaflokkur sem slíkur standi í því að gefa út blað eða reka fyrirtæki af hvaða tagi, sem vera skal. Enda hafa þeir stjórnmálaflokkar, sem í slíku hafa staðið, þurft að sníkja fjármuni með aug- lýsingum eða með öðrum hætti. Slíkt felur í sér skuldbindingar, þegar til lengdar lætur... Staðreynd mun það líka vera, að blaðrekstur hefur reynzt stjórnmálaflokkum svo þungur baggi, að það hefur ýtt þeim inn í hvers kyns óhreinlegt fjármálavafstur — skert starfsgetu þeirra og hlaðið undir vafasama fjármálamenn. Um slíkt þekkjum við fjölmörg dæmi... Verður ekki fram hjá því litið, að flokksblöð eru óheiðarleg — þau starfa u.ndir þrýstingi misviturra stjórnmálamanna. Þau ala á ímynd- uðum kostum sjá'lís sín — og í tímans rás hafa neytendur raunar hafnað þessari haliærislegu framsetningu skoðana — góður gangur síð- degisblaðanna er engin tilviljun og ekki heldur samsæri peningamanna fyrst og frernst. Síðdegisbjöðin eru einfaldlega betri blöð en flokksblöðin.“ .. .................... -/ , Þýzkaðand: Konurefstará lista yfir eftir- lýsta glæpamenn — konur f skæruliðasamtökum eru miklu grimmari en félagar þeirra af hinu kyninu Vi Myndir af frægum konum fylla þýzk blöð þessa dagana. Þetta eru ékki myndir af nein- um kvikmyndastjörnum, held- ur frægum glæpamönnum, kon- um sem grunaðar eru um mQrð og hryðjuverk. Þessa dagana ber mest á kvenfólki i hópi þýzkra skæruliða. Þær hafa lát- ið til skarar skríða, einu sinni enn á móti kerfinu. Nýjasta fórnardýrið er bankastjóri að nafni Jiirgen Ponto. Fjórar konur eru grunaðar um að hafa myrt hann. Þær bönkuðu upp á hjá honum og skutu hann til bana á heimili hans. Susanne Albreeht, er ein þeirra, en hún er heimilisvinur hjá Pontofjöl- skyldunni, en líklegt er að opnað hafi verið fyrir henni vegna þess að fjölskyldan þekkti hana. Hún kom með stóran rósavönd. Bankastjórinn reyndi að komast undan mann- ræningjunum en þá skutu þær hann á flóttanum. Talið er að þær hafi ætlað að heimta háa upphæð í lausnargjald fyrir manninn. Sífellt fleiri konur ganga í hóp skœruliða Susanne Albrecht er eftir- • lýstur stjórnleysingi af yfir- völdum Vestur-Þýzkalands. Hún er einnig í hópi þeirra kvenna sem yfirvöld í Þýzka- landi hafa efsta á lista slnum yfir eftirlýsta glæpamenn. Konur þær sem voru í hópi Baader-Meinhof samtakanna hafa látið mikið til sín taka og þær sem sitja nú í fangelsi eru í hungurverkfalli, þær neita alveg að matast. Vestur-þýzka blaðið Die Welt hefur sagt að sífellt fleiri og fleiri konur gangi í lið með skæruliðum. Þetta er algjör ráðgáta fyrir afbrotafræðinga og sálfræðinga, segir blaðið. Þar stendur einnig að þegar konur séu komnar í þennan hóp, séu það þær sem eru grimmastar. Þær eru miklu harðari en nokkru sinni karl- menn. Einnig segir 1 Die Welt að konur séu að verða uppreisn- argjarnari með hverju árinu sem líður. Þær víla ekki fyrir sér morð, bankarán, sprengju- tilræði og mannrán. 1 veröld skæruliðanna hafa konur haslað sér völl og eru nú fylli- lega sambærilegar körlum sem eru í þeirra hópi. Þessar konur eru allar spegilmynd þeirrar sem hefur verið þeirra allra skæðust, segir blaðið, en það er Ulrike Meinhof. Hún fannst hengd í fangaklefa sínum í fyrra, en hún átti yfir höfði sér dóm fyrir morð. Það er haft eftir Meinhof að auðvitað verði skæruliðar að nota skotvopn, við viljum sýna fram á'það að þannig aðferðir duga. Gófaðar og fró góðum fjölskyldum Helmingur þeirra sem lög- Þetta er spjaldið sem hékk um allt og lýsti eftir Ulrike Meinhof. Það varð til þess að hún fannst. MORDVERSUCH in Berlin 10.000 DM BELOHNUNG reglan leitar vegna skæruverka eru konur. Þær eru með efstu nöfnunum á listanum. An und- antekninga eru þessar konur vel gefnar og frá góðum heimil- um. Sem dæmi má taka Gudrun Ensslin, sem situr nú í fangelsi æfilangt. Hún var meðlimur Baader-Meinhof samtakanna og var handtekin um leið og for-. sprakkar samtakanna. Hún er dóttir prests. önnur sem mætti nefna er Hanna Krabbe. Hún situr í lífstíðarfangelsi fyrir árásina á -þýzka sendiráðið í Stokkhólmi árið 1975. Hún lagði stund á heimspekinám. Það er sama hvernig konurnar líta út, þær virðast vera llkar að því leyti, að þær eru mjög áberandi innan skæruliðahreyfingarinnar, það er sama hvaða nafni hún nefn- ist. Það virðist einnig vera erfitt að hemja þessar konur innan fangelsanna. Frægt er orðið þegar þrjár þeirra struku úr fangelsi í Vestur-Þýzkalandi í fyrra. Það er einkennileg til- hugsun, segir í þýzka blaðinu Die Welt, að okkur skuli stafa ótti af þessum vopnuðu konum. Susanne Albrecht, hún er grunuð um að hafa myrt Ponto bankastjóra. Atn Ilonnerstag, dem 14. Mai 1970, gegen 11.00 L'hr wurde anládlich der Ausfiihrung des Slrafgefangenen ANDREAS BAADER in Bertin.Dahlem, Miquelstr. 83, und seiner dabei dureh mehrere bewaff- nete Táter erfolgten Befreiung der Institutsangestellte Georg Linke durch mehrere Pistolenscfaiisse lebensgefáhrlicfa verletzt. Auch zwei Justizvollzugsbeamte erlitten Verletzungen. Der Beteiligung an der Tat dringend verdáefatig ist die am 7. Oktober 1934 in Oldenburg gehorene Journalistin Ulríke Meinhof cesdbiedenc RÖH L PerðoocnbcacbreibuDg: 35 Jahre «IL 165 crn groíl, scfaUnk, lloglichea Ge- •icht, langes miúelbraune* Haar, Die Gesuchte hat am Tattage ihren Wohn- braune Augen. sitzin Berlin-Schöneberg,KufeteinerStr. 12,verlassen und istseitdem fluchtig. Wer kann Hinweise auf ihren jetzigen Aufenthalt geben? Fiir Hinweise, die zur Aufklárung des Verbrechens und zur Ergreifung der an der Tat beteiligten Personen fuhren, hat der Polizeiprásident in Berlin eine Belohnung von 10.000.- DM ausgesetzt. Die Belohnung ist ausschlieBlich fiir Personen aus der Bevölkerung bestimmt und nicht fiir Beamte, zu deren Be- rufspflicbten die Verfolgung strafbarer Handlungen gehört Ihre Zuerkennung und Verteilung erfolgt unter AusschluB des Rechtsweges. Mitteilungen, die auf Wunsch vertraulicfa behandelt werden, nehmen die Staatsanwaltschaft in Berlin, 1 Berlin 21, Turmstr. 91 (Telefon 350111) und der Polizeiprásideut in Berlin, 1 Berlin 42, Tempelhofer Damm 1 • 7 (Teiefon 691091) sowie jede andere Polizeidienststelle entgegen. Berlin im Mai 1970 Der Generalstaatsanwalt bei dem Laudgericht Berlin

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.