Dagblaðið - 09.08.1977, Qupperneq 24
r
(
Af lögreglumálum á Seyðisfirði:
Maður höfuðkúpubrotinn,
— sjúkrabifreið fannst ekki
Fréttaritari Dagblaðsins á
Seyðisfirði, Arnþór Jónsson frá
Möðrudal, slasaðist alvarlega
aðfaranótt sunnudagsins. Hann
var að koma af dansleik í
féla^sheimilinu Herðubreið
ásamt fleira fólki er bifreið
kom á hægri ferð að mannfjöld-
anum. Fólkið vék allt frá nema
Arnþór. Hann steig í galsa upp
á stuðara bílsins og lagðist yfir
vélarhlífina.
Það skipti engum togum, að
bilstjórinn, skapmaður mikill,
gaf í og ók á mikilli ferð
nokkurn spotta. Síðan snar-
hemlaði hann með þeim af-
leiðingum að Arnþór flaug
fram af. Hann liggur nú höfuð-
kúpubrotinn og meðvitundar-
lítill á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans.
Þannig hljómar í stórum
dráttum frásögn sjónarvotta að'
atburðinum. Bílstjórinn segir
sjálfur að Arnþór hafi stokkið
fyrir bílinn.
Löareglan finnst ekki.
Þegar i stað var reynt að ná
sambandi við lögregluna. Lög-
reglubíllinn á Seyðisfirði er
jafnframt sjúkrabíll kaup-
staðarins. Lögreglumennirnir,
sem á vakt voru, fundust hins
vegar ekki. Er heimildarmaður
Dagblaðsins, Bjarni Halldórs-
son húsvörður í Herðubreið,
kom á slysstaðinn um 20
mínútum eftir að slysið varð,
var Ríkharður Björgvinsson
lögregluþjónn kominn —
Rikharður er í sumarleyfi.
Þrír menn voru þá sendir til
að sækja sjúkrabörur á sjúka-
húsið, sem er í um 200 metra
fjarlægð frá sl.vsstaðnum. Síðan
var presturinn fenginn til að
flytja Arnþór þangað í sínum
bíl. Jafnframt fóru Ríkharður
lögregluþjónn og bílstjórinn
sem slysinu olli til að leita að
lögreglumönnunum, sem áttu
að vera á vakt. Annar lögreglu-
maðurinn Þorbjörn Þorsteins-
son neitaði að tala um málið við
Dagblaðið um miðjan dag í gær.
Hann hafði þá ekki skilað
skýrslu um atburðinn til sýslu-
mannsembættisins á Seyðis-
firði. Fulltrúi sýslumanns
kvaðst búast við að skýrsla Þor-
bjarnar bærist seinni partinn í
gær eða á morgun.
„Notum það, sem
hendi er nœst“
Sigurður Árnason sjúkahúss-
læknir á Seyðisfirði sagði í sam-
tali við Dagblaðið að komið
hefði verið með Arnþór aðfara-
nótt sunnudagsins með höfuðá-
verka. Þar eð hann var höfuð-
kúpubrotinn var hann umsvifa-
laust sendur til Reykjavíkur.
Sigurður var inntur eftir því,
hvort algengt væri að sóknar-
presturinn og aðrir tækju að
sér sjúkraflutninga, er sjúkra-
bíllinn fyndist ekki. Hann
svaraði:
,,Það getur alltaf komið fyrir
af tilviljun að hlutir týnist að
nóttu til í litlu plássi. Þá verður
að nota það sem hendi er næst.“
-AT-
Blfreið fjórmenninganna eftir veltuna — einn þeirra lét lífið í veltunni. Mlnni myndin er frá sjúkraflugvelli í grenndinnl. Flugvél
Flugstöðvarinnar er að leggja af stað til Reykjavikur með unga manninn sem slasaðist mest og lézt af völdum sára sinna. —
DB-myndir Agúst Björnsson.
Lét lífið í bflveltu í Skagafirði
25 ára gamall Reykvikingur
lét Hfið í bílveltu í Skagafirði á
mánudaginn. Var hann á ferð
með fjórum félögum sínum er
slysið varð austan í Hegranesi
sunnan Garðs. Sá er lézt sat I
framsæti ásamt norskum sjó-
manni. Sá norski slasaðist
mikið og var fluttur flugleiðis
til Reykjavíkur með innvortis
meiðsli. Hinir tveir hlutu
óveruleg.meiðsli.
Mennirnir fjórir óku í austur
frá Sauðárkróki aðfaranótt
mánudags. Slysið varð síðan í
beygju á áðurnefndum stað.
Þar er vegur góður og lítil
hætta á ferðum að því er virð-
ist. Þar er talið að ökumaður
hafi misst stjórn á bílnum í
lausamöl.
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki liggur ekki ljóst
fyrir hvor ók, hinn látni eða
norski sjómaðurinn. Málið er
enn i rannsókn. Talið er víst að
félagarnir hafi verið undir
áhrifum áfengis.
Nafn hins látna hefur ekki
verið birt, því ekki hefur náðst
í ættingja.
- ASt.
r
i
V
KARL BRETAPRINS HAFÐI
DREGIÐ 27 LAXAIGÆR
— Arkar vegleysur við Hofsá og nýtur lífsins
Karl Bretaprins nýtur lífsins
við Hofsá í Vopnafirði þessa
dagana og hafði um miðjan dag
I gær fengið 27 laxa á land.
Prinsinn hefur nú verið hér í
fjóra daga við veiðar, en hann
hyggst dvelja hér tíu daga til
viðbótar, eða hálfan mánuð
alls, og mun eyða þeim öllum
ið veiðar í Hofsá.
Dagblaðið hafði í gær sam-
: and við veiðihúsið að Teigi í
Vopnafirði. önnur af starfs-
stúlkum veiðihússins varð fyrir
svörum og gaf þessar upp-
lýsingar um veiði prinsins.
„Prinsinn er mjög ánægður
jneð dvöl sína hér við Hofsá.
Það er anzi kalt þrjá fyrstu
dagana en í dag, mánudag, er
veðrið miklu betra. Prinsinn
nýtur dvalarinnar hér og ráð-
gerir hann tíu daga dvöl til
viðbótar við veiðar."
Þessi laxveiði Karls Breta-
prins sýnir að hann veiðir
fullan ,,kvóta“. I Hofsá er
veiðin sem sé skömmtuð. Menn
mega veiða 7 laxa á dag. Leyft
er að veiða meira einn dag en
annan ef heildarveiðin fer ekki
yfir 7 laxa á dag miðað við allt
veiðitímabilið.
Við Hofsá er nýtt veiðihús,
240-250 fermetra. Lauk
byggingu þess 1975. Það er vel
búiö hús, rafmagnshitað, góð
eldhúsaðstaða, rúmgóð setu-
stofa og sex eða sjö gistiher-
bergi.
Hofsá er ýmist leigð
Islendingum eða erlendum
veiðimönnum. Veiðirétt fyrir
útlendinga hefur Skotinn Brian
Booth haft í áratug. Tvær
brezkar stúlkur starfa á hans
vegum í veiðihúsinu.
Veiðin í Hofsá kostar 12000
kr. á dag fyrir íslendinga
búsetta utan Vopnafjarðar,
7500 fyrir Vopnfirðinga og 5500
kr. fyrir landeigendur að ánni.
I Hofsá eru leyfðar sex stangir.
tslendingar veiða mest fyrri
hluta sumars en blandast síðan
útlendingum. Enginn
Islendingur veiðir nema 2-3
daga í senn. Brian Booth borgar
svo ákveðna upphæð fyrir sinn
rétt og Vopnfirðingar skipta
sér ekki af framleigu hans
nema fylgja verður kvóta-
reglunni og öðrum veiðireglum.
Lax gengur á um 35 km svæði
í Hofsá en aðalveiðisvæðið er
15-20 km að lengd. Efst er veg-
leysa á 3-4 km kafla og arka
veiðimenn það. Gunnar Pálsson
form. veiðifélagsins sagði við
DB að þá göngu vorkenndi
hann engum því hún borgaði
sig svo sannarlega. Þessa veg-
leysu arkar nú Bretaprins
glaður í bragði.
-ASt.
✓
frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGtJST 1977,
Evröpumótið íbridge:
Svíar og ítalir
eru öruggir
á toppnum
Að fimmtándu umferðinni
lokinni á Evrópumótinu í bridge
eru Svíar og Italir enn á toppnum
og eru aðrar þjóðir ekki liklegar
til að ná þeim héðan af. Mótið fer
fram í Elsinore í Danmörku.
Helztu úrslit í fimmtándu um-
ferðinni urðu þau að Svíar unnu
Austurríkismenn 19-1; ítalir
sigruðu Finna með 12-8 og gest-
gjafirnir, Danir, töpuðu fyrir
Israelsmönnum með 9-11.
Islendingar töpuðu fyrir Norð-
mönnum með 4-16. I kvenna-
flokknum eru Italir og Bretar
taldir líklegustu sigurvegararnir.
Italir sigruðu Dani í gær með
20-0. Sömu úrslit urðu hjá Bretum
gegn V-Þýzkalandi.
Staða efstu landa er nú þessi:
Sviþjóð 250 stig, 2. Ítalía 230 stig,
3. Israel 196 stig, 4. Danmörk 195
stig, 5. Sviss 191 stig. íslendingar
eru í sextánda sæti með 110 stig.
I kvennaflokkinum-er Ítalía I
efsta sæti með 165 stig. Næstu
lönd eru Bretland með 157 og
Svíþjóð með 157 stig.
-AT-
Eftirleikur
Geirfinnsmálsins:
Lögmenn bíða
enn eftir
gögnunum
— skaðabdtamálið
þingfest l.september
Lögmenn fjórmenninganna,
sem i fyrra sátu saklausir i löngu
gæzluvarðhald i vegna meintr-
ar aðildar að hvarfi Geirfinns
Einarssonar, hafa enn ekki fengið
I hendurnar gögn málsins, að sögn
Ingvars Björnssonar, hdl.
Stefna fjórmenninganna á
hendur ríkinu til greiðslu miska-
og skaðabóta, sem nema um 250
milljónum alls, verður staðfest 1.
september, að loknum réttar-
hléum.
„Gögnin eru mjög nauðsynleg
þótt við höfum auðvitað til dæmis
atvikalýsingu," sagði Ingvar.
Taldi hann jafnvel hæpið að lög-
mennirnir fengju gögnin í
hendurnar fyrr en dómur væri
fallinn í Geirfinnsmálinu.
Ekki mun vera ákveðið hvenær
lokaflutningur Geirfinnsmálsins
verður í sakadómi Reykjavíkur.
Fjármálaráðuneytið hét þvi,
eftir að ríkið ákveð að láta
dómstóla skera úr um skaða- og
miskabætur fjórmenninganna, að
beita áhrifum sinum til að málið
fengi eins skjóta meðferð og hægt
væri. Þýðir það nánast að
ráðuneytið ætlar ekki í slag við
fjórmenningana.
-ÓV.
Létu loka sig inni
tiladræna ífriði
Tveir piltar voru staðnir að
verki við innbrot o£ stuld I
Austurstræti 6 I gærkvöldi. Þótti
einkennilegt atferli manna i
húsinu og var lögreglu gert
viðvart. Kom hún að piltunum
sem brotizt höfðu inn I tvö fyrir-
tæki í húsinu, Eignamarkaðinn og
Barna- og fjölskyldumyndir.
Piltarnir höfðu verið í þessu
verzlunarhúsi fyrir lokun og
síðan falizt þar inni og látið loka
sig inni þá er fólk yfirgaf húsið.
Siðan hófu þeir ránsferðina. En
hún varð stutt og fékk réttan
endi.
-ASt.