Dagblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 3
DACJBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977.
....... '
Strætóskýlið á Hlemmi
Við byrjun framkvæmda við núverandi skýli tók Hörður þessa mynd.
loza-a^59 skrifar:
Þannig er högum minum
háttað að ég bý uppi í bæ en
þarf mjög oft að fara niður í
bæ. Ég ferðast alltaf með
strætisvögnum og þarf að
skipta á Hlemmi. Það hefur
verið allt í lagi og verður lík-
lega. En það er eitt sem er núna
í ólagi og það er skýlisleysið.
öll þau hús sem á Hlemmnum
stóðu voru rifin í vor og okkur
Hvað er sjálfræði
16 ára unglinga?
lofað nýju húsi, ég held fyrir
áramót. En í tvo mánuði hef ég
ekki séð neina hreyfingu þarna
á torginu. Getur það verið að
það eigi að láta okkur norpa úti
í kuldanum í allan vetur? Ég
neita að trúa því.
Eiríkur Asgeirsson forstjóri
SVR sagði að framkvæmdir við
framtíðarskýli væru í fullum
gangi. Núverandi skýli er allt í
kringum torgið og er það mun
betra en það sem fyrir var.
Nýja skýlið verður klárað 1
slðasta lagi í marz á næsta ári
og verður það langtum bezt.
Raddir
lesenda
Umsjón
Dóra
Stefánsd,
Spurning
dagsins
Minnkorðu kaup ú
landbúnaðarvöru
eftir verðhœkkunina?
Þórhildur Stefánsdóttir húsmóð-
ir: Nei, ég kaupi alltaf lítið hvort
sem er. Aðallega kaupi ég kjöt því
ég er bara með fullorðið fólk.
Jenný Magnúsdóttir húsmóðir:
Ég, nei, nei. Eg læt það ekkert á
mig fá. Ég get ekki séð að það sé
hægt að minnka við sig land-
búnaðarvöru.
16 ára ungiingur hringdi:
Ég er hér með nokkrar
spurningar sem mig langar
mjög mikið að fá svör við:
1. Hvað er sjálfræði og hvenær
öðlast maður það?
2. Ráða foreldrar manns
hvenær maður skreppur út eða
kemur heim eftir að unglingur
öðlast sjálfræði?
3. Er hægt að segja fólki upp
vinnu fyrirvaralaust?
4. Væri ekki hægt að fá meira
popp í útvarpið, t.d. eftir
hádegi í lögunum við vinnuna?
Það er of litið popp i útvarpi
fyrir unglinga á þeim tíma og
öðrum. Það er bara hugsað um
fullorðna fólkið en ekki
unglingana.
5. Er ekki hægt að fá sýnda
þætti um popphljómsveitir og
með þeim? Ég skora á dagskrár
sjónvarps og útvarps að svara
þessu?
1. Skv. Lögbókinni þinni, sem
gefin er út af Erni og örlygi og
Björn Þ. Guðmundsson hefur
tekið saman, stendur að menn
öðlist sjálfræði 16 ára gamlir.
Menn geta þá ráðið dvalarstað
sínum og atvinnu og gert sjálf-
stæða atvinnusamninga. Þeir
eru ekki fjárráða en mega þó
ráða yfir því fé sem þeir afla
sér sjálfir og því sem þeim er
gefið.
2. Enginn getur ráðið yfir
ferðum 16 ára unglings.
3. Yfirleitt mun það vera
þannig að á reynslutíma í
starfi, sem oftast eru 3
mánuðir, er hægt að segja
mönnum upp fyrirvaralaust.
Við fastráðningu þarf hins veg-
ar uppsagnarfrest, oftast 3
mánuði.
4. Hjá útvarpinu fengum við
þær upplýsingar að þegar væri
mjög mikið popp í útvarpinu.
Það er morgunpopp, síðdegis-
popp (70 mín. 4 daga
vikunnar), popp á sunnudags-
morgnum, Lög unga fólksins og
aðrir óskalagaþættir sem fullir
eru af poppi, danslögin og
mikið popp er þegar í lögunum
við vinnuna.
5. I athugun er hvort auka á
poppþætti i sjónvarpi.
KVAKTMILIJ
KLIJKBUKINX
ÍSLANDSMEISTARAMOT
í SANDSPYRNU
VERÐUR HALDIÐ SUNNUDAGINN 4. SEPTEMBER AÐ HRAUNII
ÖLFUSI. MÓTSVÆÐIÐ OPNAÐ KL. 10. KEPPNI HEFST KL. 14.
KEPPT VERÐUR í FÓLKSBÍLA, JEPPA OG BIFHJÓLA FLOKKUM.
STJORNIN
Guðmundur Sigfússon, vinnur
hjá Meitlinum Þoriákshöfn: Nei,
ég hugsa ekki. Ætli ég láti ekki
kvenfólkið ráða. Ég geri ekki ráð
fyrir að frúin vilji minnka við sig.
ÉM
Kristinn Steingrimsson bóndi:
Því reikna ég ekki með. Hækkun-
in breytir ekki nokkrum hlut.
Mér finnast landbúnaðarvörur
hreint ekkert svo voðalega dýrar.
Auður öskarsdóttir auglýsinga-
stjóri hjá Sjónvarpi: Ja, það
hugsa ég ekki. Kannski helzt að
ég minnki við mig mjólk og smjör.
Getur maður nokkuð látið þetta á
sigfá?
Guðrún Friðriksdóttir röntgen-
tæknir: Ég reikna ekki með því.
Maður þarf að nota allt þes.
háttar, að minnsta kosti þegar
tnaður er með börn.