Dagblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977. Fjármálaráðherra og ríkis- saksóknara stefnt til greiðslu nær 300 milljóna — í skaðabætur fyrir gæzluvarðhald að ósekju Þingfestar stefnur r i Geirfinns- málinu: Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og rikissaksóknara fyrir hönd ríkisvaldsins hefur verið stefnt til greiðslu miska- og skaðabóta, sem samtals nema 228,8 milljónum króna, vegna ólögmæts gæzluvarð- halds fjögurra manna I tengsl- um við Geirfinnsmálið. Jafn- framt eru gerðar kröfur um greiðslu 14% ársvaxta frá degi handtökunnar að telja til greiðsludags. Ársvextirnir nema liðlega 32 milljónum og hafa því þegar hækkað heildar- kröfurnar i rúmlega 278 millj- ónir. Þessir fjórir menn eru Einar G. Bollason, Magnús Leópolds- son og Valdimar Olsen, sem voru í gæzluvarðhaldi í 105 daga á fyrra ári, og Sigurbjörn Eiríksson. sem var i gæzluvarð- haldi í 89 daga á sama tíma. Stefnurnar voru þingfestar fyrir bæjarþingi Reykjavíkur þ. 1/9 sl., að afloknu réttarhléi. Bótakrafa Einars G. Bollasonar er hæst, 78 milljónir 768 þús- und 561 króna. Krafa Magnúsar Leópoldssonar er kr. 49 millj- ónir 770 þúsund, krafa Valdi- mars Ólsen kr. 49 milljónir 768 þúsund 875 krónur og krafa Sigurbjörns Eiríkssonar 44 milljónir og 500 þúsund. Eru kröfurnar byggðar á 18. kafla laga um meðferð opinberra mála nr. 74/1974, um bætur handa sökuðum mönnum o.fl. í stefnum segir að við kröfu- gerðina sé tekið tillit „til hins alvarlega gáleysis hinna opin- beru starfsmanna, er hlut áttu að málinu, sem létu frá sér fara ýmsar upplýsingar til fjöl- miðla“ meðan fjórmenning- arnir sátu í gæzluvarðhaldi, en þær hafi borið með sér að þeir hafi verið grunaðir um að hafa átt hlutdeild í dauða Geirfinns Einarssonar. í stefnunum kemur einnig fram, að bótakröfurnar gætu hækkað ef skjöl málsins gefa tilefni til þess, en þau hafi hvorki lögmenn né stefnendur fengið afhent þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. Með þeim fyrir- vara er tekið fram, að sundur- liðun krafnanna — sem vita- skuld eru sjálfstæðar stefnur hver um sig — verði I greinar- gerðum síðar. í einni stefnunni I þessu al- varlega máli segir m.a.: „A meðan gæzluvarðhalds- vistinni stóð óskaði stefndi eftir því að verða fluttur á sjúkrahús í einangrun þar, vegna inni- lokunarkenndar, sem hann hafði aldrei orðið var við fyrir gæzluvarðhaldsvistina, en var svo yfirþyrmandi að jaðraði við sturlun. Var þessum óskum hans og lögmanns hans ekki sinnt í neinu, þrátt fyrir til- mæli fangelsislæknisins, Guð- steins Þengilssonar, og gekk svo langt, að rikissaksóknari, Þórður Björnsson, neitaði að ræða þessi tilmæli við lögmann stefnanda og vlsaði honum á dyr er hann vildi ræða við hann um breytta tilhögun gæzlunnar til verndar heilsu stefnanda." Matthiasi A. Mathiesen fjár- málaráðherra og Þórði Björns- syni ríkissaksóknara hafa verið birtar stefnurnar. - ÖV Bifreiðaeftirlitið: Nú mæl hávaða ökutæ Umferðardynurinn við Borgar- túnió mælist 75—85 decibel sam- kvæmt nýjum hávaðamæli Bif- reiðaeftirlits rikisins. Hávaði er talinn geta verið óþægilegur nálægt 90 decibelum en pó fer það nokkuð eftir staðháttum. Rúnar Guðmannsson verkstjóri hjá Bifreiðaeftirlitinu sagði í viðtali við DB að mælirinn, sem ekki fer mikið fyrir — stærðin eins og á vindlapakka — kæmi þeim að góðum notum, þegar vafi léki á hvort bifreiðir væru of háværar. „Við höfum ekki enn þá farið með mælinn út í umferðina. Eins reynum við að mæla hávaða í bif- reiðum við sem eðlilegastar að- stæður," sagði Rúnar. Hann sagði, að þó hátt léti í bifreið, þegar „gefið væri i“ á planinu hjá þeim í bifreiðaeftir- litinu væri það alls ekki vist að bifreiðin væri of hávær við eðli- legar aðstæður við almennan Rúnar Guðmannsson með decibelmælinn, sem getur komið upp um ökumenn, sem aka um borgina á of háværum ökutækjum. — DB-mynd Sv. Þorm. akstur. Reyndu þeir að taka tillit til alls þessa. Reglur um hve hávaði í farar- tækjum megi vera mikill eru í undirbúningi. Þangað til hafa bif- reiðaeftirlitsmenn hliðsjón af reglum frá Norðurlöndunum. Samkvæmt þeim má hávaði í fólksbifreiðum og vörubifreiðum að 3,5 tonnum vera 86 db., vöru- bifreiðum yfir 3,5 tonn 92 deci- bel, skellinöðrum 82 decibel og bifhjólum 86 decibel. - ÓG Sölubömin okkar íGaröinum: Þau gera það gott! — sala blaðsins nær helmingi meiri en á nokkru öðru dagblaði þar Stærstan þátt í velgengni Dag- blaðsins eiga sölubörnin, bæði innan og utan höfuðborgarsvæðis- ins. Gott dæmi um það má finna i Garðinum. Sala blaðsins nálgast þar hundraðið, næstum helmingi meira en það blað sem næst kemur. Lengst af hefur Krist- björg Eyjólfsdóttir annazt lausa- söluna og lætur ekki aftra sér að þurfa að annast barnagæzlu um leið, — heldur ekur um og selur með Birtu Rós í vagninum. Fyrir sölulaunin er hún búin að kaupa sér skatthol, stól, hjól og fleira. En hún er ekki alveg ein um söluna, Eygló systir hennar hjálpar til og svo eru önnur börn sem selja lika, — Garðurinn er víðfeðmur — og sums staðar langt á milli húsa. Guðriður Svanhvit Brynjarsdóttir, 9 ára, og bróðir hennar, 5 ára, selja líka Dagblaðið ásamt Ingveldi Einarsdóttur, sem er lömuð, — en hjólastóllinn flytur hana á milli húsa, með aðstoð systkinanna sem ekki telja það eftir sér að ýta stólnum. Það eina sem að var þegar frétta- maður hitti þau og myndaði, var að þau vantaði fleiri blöð — alll uppselt. - emm Birta Rós, Kristbjörg og Eygló á hraðri yfirferð um Garðinn með Dagblaðið. Þrjátíu tilboð í Hjalteyrareignirnar: Aðeins hreppurinn vill kaupa allt „Það verður ekki fyrr en um miðjan mánuð að menn geta búizt við svörum við tilboðum sinum í Hjalteyrareignirnar," sagði Stefán Pétursson, lögfræðingur Landsbanka fslands, í samtali við DB. Alls hafa um þrjátíu tilboð bor- izt bankanum í eignir hans á' Hjalteyri við Eyjafjörð, ýmist í einstakar íbúðir eða stærri hluta eignanna. Aðeins eitt tilboð hefur borizt í þær allar — utan bújarð- irnar þrjár, Skriðuland, Bragholt og Ytri-Bakka — og er það frá hreppsfélaginu sjálfu. Abúendur jarðanna þriggja hafa allir leitað eftir kaupum á þeim, að sögn Stefáns Péturs- sonar. Hann sagði mikið verk að fara i gegnum tilboðin og kanna efni þeirra. Þegar því verki er lokið verður bankastjórn Landsbank- ans send greinargerð lög- fræðingadeildar bankans og einnig má búast við að bankaráð fjalli um sölu eignanna. Það er yfirlýst af hálfu Lands- bankans, að æskilegast væri að selja Eyrina I einu lagi, með það fyrir augum að þar yrði komið á fót atvinnurekstri, sem gerði kröfu til þess húsakosts, sem þai er. -ÓV TRILLA STRANDAÐI í SANDGERÐI Hálfyfirbyggð, ný trilla úr trefjaplasti strandaði rétt utan við hafnarkjaftinn í Sandgerði á tíunda timanum í gærmorg- un. Tveir menn voru um borð og varð þeim ekki meint af. Björgunarmenn voru komnir um borð, en trillan var föst og var að flæða undan henni. Trillan var að koma frá Hafnarfirði en á leió til Vest- mannaeyja, þar sem hún á heimahöfn. Einkennisstafir trillunnar eru VE-55. - GS/ÓV Smygl í Goðafossi Á föstudag og fimmtudags- kvöld fundu tollverðir smyglvarn- ing, 228 flöskur af áfengi, aðal- lega vodka, 26.800 vindlinga og litils háttar af áfengum bjór í ms. Goðafossi, þar sem skipið lá í höfn i Keflavík. Skipið kom til landsins 27. ágúst sl. frá Ameríku. Aðaleig- endur smyglvarningsins voru bryti á skipinu, stýrimaður og bátsmaður, skv. upplýsingum toll- gæzlustjóra. Mennirnir þrír voru yfir- heyrðir í gær og viðurkenndu þá sumir þeirra að hafa ætlað að selja varninginn. Þeim var sleppt að yfirheyrslu lokinni. -ÓV SÍMI í MÍMI ER 10004 Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám. Chevrolet Concours Til sölu Chevrolet Concours órg. 77. Til sýnis ó laugardag og sunnudag milli kl. 14 og 17 við Vesturvör 28 Kóp. Tilboð.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.