Dagblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 14
14 DACBLAÐIÐ. LAUÍJARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977. Birgðir gamalla Presleyplatna að seljast upp Eikarplatan erkomin iít: Með öðruvísi plötu en allir hinir EIvis. • Presley hækkar sig stöðugt á brezka vinsældalist- anum. Lag hans Way Dówn (Leiðin niður) er nú komið í annað sætið, næst á eftir. Float On með hljómsveitinni Floaters. Fróðlegt verður að sjá hvort lögin hafa sætaskipti i næstu viku. Way Down komst á vinsældalista fyrir nokkrum vikum en átti þá erfitt upp- dráttar. Dauði Presleys hefur nú lyft því I hæstu hæðir. En þó að Presley sé hátt skrifaður vegna Way Down er salan í stóru plötunum hans öllu athyglisverðari. Hvorkí meira né minna en fjórar þeirra eru nú komnar inn á vinsældalistann yfir stórar plötur — engin þeirra var þar í síðustu viku. Frá útgáfufyrir- tæki Presleys, RCA, berast þær fréttir að lagerinn af gömlum plötum rokkhetjunnar sé nú óðum að ganga til þurrðar. Þar á meðal eru jafnvel plötur sem ekki höfðu hreyfzt í verzlunum árum saman. Til stendur hjá RCA að pressa gömlu plöturnar upp á nýtt en fullvíst er talið að þurrð verði í Presleybirgðunum áður en þær plötur koma á markað- inn. tírezki vinsældalistinn er þokkalega líflegur að þessu sinni. Þar vekur sérstaka at- hygli lagið Magic Fly (Töfra- buxnaklaufin gæti það þýtt) sem er í sjötta sæti. 1 fyrri viku var lagið í 20. sæti og yfirleitt taka lög ekki svona stór stökk nema eitthvað verulega mikið sé spunnið í þau. Tvö ný nöfn eru á topp tíu í Bandaríkjunum. Ný nöfn eru kannski helzt til mikið sagt því að þar eru á ferðinni hljóm- sveitin Electric Light Orchestra og söngvarinn Leo Sayer — hvort tveggja brezk nöfn. E.L.O. er með lagið Tele- phone Line í níunda sæti. Það lag er af nýjustu LP-plötu hljómsveitarinnar, A New World Record. Flestöll lögin af þeirri plötu eru nú komin út á litlum plötum og hafa eins og stóra platan hlotið mjög góðar viðtökur. Leo Sayer er í tiunda sæti í Bandaríkjunum með lagið How Much Love. Undanfarið ár hefur ekki komið svo lag frá Leo Sayer að það næði ekki fyrsta sæti. Gaman verður að sjá hvort hann leikur sama leik- inn einu sinni enn. - AT- anna til að leika og syngja inn á sólóplötu. MoodyBlues kemursaman áný Eftir tveggja ára hlé hyggjast allir gömlu með- limir hljómsveitarinnar Moody Blues koma saman á nýjan leik. Hljómsveitin á bókaðan stúdíótíma í Los Angeles frá september- byrjun og fram í nóvem- berlok. Ráðgert er að ný plata komi síðan á markaðinn fyrir næstu jól. Þá hafa jafnframt heyrzt raddir um að plötunni verði fyigt eftir með hljóm- leikaferð vitt og breitt um heiminn. Þó að Moody Blues hafi ekki starfað síðastliðin tvö ár hafa meðlimir hljóm- sveitarinnar þó ekki verið aðgerðalausir á meðan. Trommuleikarinn, Graeme Edge, stofnaði sína eigin hljómsveit, Graeme Edge Band. Justin Heyward og John Lodge störfuðu undir nafninu Blue Jays og tveir meðlimirnir, þeir Ray Thomas og Mike Pinder, léku inn á sólóplötur. Justin Heyward er nú eini meðlimur Moody Blues, sem bUsettur er í gamla heimalandinu Englandi. Hinir eru allir flúnir yfir til Banda- ríkjanna vegna skatt- píningar. Mikið skelfilega hlýtur allt að vera gott í Ameríkunni... Fyrsta ,;öðruvísi“ plata ársins er komin út. Þar er á ferðinni fjölmennasta popphljómsveit landsins, Eik, með plötu sem nefnist Hríslan og Straumurinn, Tónlist plötunnar er ákaflega þung. Ut- gefandinn, Steinar Berg, virðist séu þess fyllilega meðvitandi að hlustendur melti plötuna ekki þegar í stað því að hann auglýsir eins árs ábyrgð á henni. Á Hríslunni og Straumnum eru átta lög, öll eftir meðlimi Eikar. Halldór Gunnarsson semur tvo texta og þrír eru eftir Gunnar Gunnarsson eða Gunter, eins og hann kallar sig gjarnan. Fyrsta stóra platan, sem Eik sendi frá sér, kom út fyrir nlu mánuðum. Sú bar nafnið „Speglun" og gáfu Eikarrnenn hana út sjálfir. Eins og flestum, sem á annað borð fylgjast með poppmúsik, er kunnugt hafa miklar breytingar orðið á hljómsveitinni síðan þá. Aðeins þrír eru eftir, þeir Lárus Gríms- son, Þorsteinn Magnússon og Haraldur Þorsteinsson. Hinir eru Pétur Hjaltested, Ásgeir Óskarsson, Magnús Finnur Jóhannsson og Tryggvi Hiibner. Upptaka plötunnar fór fram í Hljóðrita í Hafnarfirði. Upp- tökumaður var Tony Óook og stjórnaði hann upptökunni ásamt Eikarmönnum sjálfum. Sérlega smekklegt umslag plötunnar gerði Pétur Halldórs- son myndlistarmaður. -ÁT- ENGLAND — Melody Maker 1(1 ) FLOAT 01¥..............................FLOATERS 2. ( 9 ) WAY DOWN............. ...........ELVIS PRESLEY 3. ( 2 ) ANGELO.....................BROTHERHOOD OF MEN 4. (10) THAT'S WHAT FRIENDS ARE FOR....DENIECE WILLIAMS 5. ( 7 ) NOBODY OOES IT BETTER.............CARLY SIMON 6. (20) MAGIC FLY...............................SPACE 7. ( 3 ) I FEEL LOVE ...................DONNA SUMMER 8. ( 4 ) YOU GOT WHAT IT TAKES.........SHOWADDYWADDY 9. (12) NIGHTS ON BROADWAY............. CANDI STATON 10. ( 5 ) THE CRUNCH..........................RAH BAND BANDARÍKIN — Cash Box 1. (1 ) BEST OF MYLOVE.......................EMOTIONS 2. ( 3 ) YOUR LOVE HAS LIFTED ME..........RITA COOLIDGE 3. ( 5 ) HANOY MAN........................JAMES TAYLOR 4. ( 4 ) EASY 5. ( 6 ) FLOATON 6. ( 2 ) 1 JUST WANT TO BE YOUR EVERYTHING . 7. ( 9 ) DON TSTOP 8. ( 8 ) JUST A SONG BEFORE 1 GO 9.(11) TELEPHONE LINE tn. (1fc< . .«nV MUCH LOVE c Verzlun Verzlun Verzlun ) Glæsileg ÍTÖLSK smáborð SNýja SólsturgGrði ** LAUGAVEGI 134W REYKJA' Kigum glæsilegt úr- val af pólcruóum smáborðum m/- blómaútflúri i boró- plötu. Kinnig rokóko-boró m/út- skurói og/eóa Onix borðplötu. Sendum um allt land. Siminn er 16541. Skrifstofu SKRIFBORÐ Vönduó sterk skrifstofu skrif- boró i þrem stæróum. Á.GUÐMUNDSSON Húsgagnaver ksmidja, Auðbrekku 57 Kópavogi, Simi 43144 UCENTIA-VEGGHÚSGÖGN «t ■íit t( ií ■ N\ .y á 'h 1 YS m psw'- • - V II N Y F O RM STRANDGÖTU 4 SlMl 51818 — HAFNARFIRÐl. Biasalan SPYRNANsima?29330ogBSSÍ MÚRHdfiUN í UTIIM: Prýðið hús yðar utan sem Innan með COLORCRETE múrhúðun 1 f jölmörgum lltum að elgin vall. Varanlegt efnl, mjög vatnsver|andi en andar þó. Símar 84780 á daglnn en 32792 á kvöldfn. Steinhúðun hf Ármúla 36, Rvík. Katta- og hundaeigendur. Dýramaturinn frá Pedigree Petfood er vítamín- og steinefnabætt alhliða næring. Fæst I helztu mat- vöruverzlunum. Ingvar Hwrbortsson hoildv. ^ ^ Alftamýrl 35. Sfmi 38934. FAANLEGUR MEÐ OG AN SKEMILS UTSKURÐUR A ORMUM. LAUSIR PUÐAR I BAKI OG SETU. ÞRIAR BAKSTILLINGAR. SNUNINGUR OG RUGGA. AD tAUOAV 1 II 1VHIK OIAN HLtMM OG SIMINN IR 16S4I EINN GÓDUR V4

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.