Dagblaðið - 14.09.1977, Page 8

Dagblaðið - 14.09.1977, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1:977. T Vatnið fór úr síð--„^ ustu þrónni ígær ZíS Vatnið fór úr einu þronni sem eftir var við Kísiliðjuna við Bjarnarflag í gærmorgun. Sprunga liggur í norðaustur í gegnum þróna og fór vatnið þar niður. Samkvæmt upplýsingum Vésteins Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra fannst gatið fljót- lega og var gert við það í gærdag og var þá aftur hægt að hefja dælingu úr þrónni í verksmiðj- una. Kísilgúrinn sest til botns í þrónum og hverfur því ekki þó vatnið fari úr þrónum. Hins vegar verður vatn að vera í þeim til þess að pramminn geti dælt upp úr þeim. Vésteinn sagði að Kísiliðjan fengi nú gufu ui einni nolu við Bjarnarflag, holu 10. Sú gufa nægði verksmiðjunni nú. Skjálftavirkni er nú litil, en mikil gufuvirkni I kringum Kísiliðjuna og Bjarnarflag og kemur gufa víða upp úr sprungum og gjótum þar sem ekki sást gufa áður. - JH H Hér má sjá þróna sem brast í vor og síðan hefur verið unnið við viðgerð á. Sprungan sem myndað- ist nú í siðustu hræringum sést glöggt á miðri mynd. DB-mynd Hörður. Listasafnið fræðiralmenn ing um list „Listasafn íslands byrjaði á fræðslustarfsemi sinni vorið 1976 með því að gangast fyrir fræðsluhópum um ýmis efni myndlistar,“ sagði Ólafur Kvaran hjá Listasafninu í sam- tali við DB. „Þessari starfsemi verður haldið áfram nú í haust og vetur. Fyrstu fræðsluhóparnir byrja 15. september. Verða þeir um höggmyndalist á 20. öld. umsjónarmaður Júlíana Gott- skálksdóttir, ný viðhorf í mynd- list eftir 1960, umsjónarmaður Hrafnhildur Schram og um grafík, umsjónarmaður Richard Valtengojer Jóhanns- son. Hver fræðsluhópur kemur saman einu sinni í viku, tvo tíma í senn í f jórar vikur. Fyrirkomulagið er þannig að umsjónarmaður flytur fram- söguerindi og síðan geta þátt- takendur lagt fram spurningar sínar hvenær sem er en þurfa ekki að bíða þar til framsöguer- indinu lýkur. Þetta fyrirkomulag hefur mælzt mjög vel fyrir og voru að jafnaði 15—20 manns í hverj- um fræðsluhópi,“ sagði Ólafur. 15. október hefjast síðan tveir fræðsluhópar, annar um húsagerðarlist á 20. öld, um- sjónarmaður Hrafn Hallgríms- son og abstraktlist á 20. öld, umsjónarmaður Guðbjörg Kristjánsdóttir. 5. nóvember byrja enn aðrir tveir, um íslenzka myndlist á 20. öld og myndlist almennt á 20. öld. Umsjónarmaður er Ólafur Kvaran. Þá er einnig í ráði að hafa sérstakar kvikmyndasýningar um myndlist einu sinni í mánuði. I október mun Guð- björg Kristjánsdóttir list- fræðingur halda fyrirlestur um íslenzku teiknibókina í Arna- safni. Einnig verður efnt til nám- skeiðs fyrir kennara ef það mætti verða til þess að auka á heimsóknir barna á grunn- skólastigi í safnið. Listasafn Is- lands hefur einnig hug á að gangast fyrir fyrirlestrum og námskeiðshaldi úti á lands- byggðinni um erlenda og inn- lenda myndlist. Þegar hafa verið haldnir slíkir fyrirlestrar í Borgarnesi, Selfossi, Akranesi, Blönduósi, Siglufirði, Isafirði og að Reykj- um í Hrútafirði. Mæltist starf- semin vel fyrir og verður henni væntanlega framhaldið. - A.Bj. Axel Björnsson jaröeölisfræöingur LÆKNAR FRÆÐ- AST UM GIGTAR- SJÚKDÓMA Námskeið fyrir lækna um gigtarsjúkdóma stendur yfir þessa dagana i Domus Medica. Er það haldið á vegum læknafélag- anna og Gigtsjúkdómafélags ís- lenzkra lækna. Á námskeiðinu verða birtar at- huganir Hjartaverndar á liðverkj- um meðal tslendinga og einnig rannsóknarniðurstöður á erfða- þáttum gigtarsjúkdóma á Islandi. Þrir fyrirlesarar koma erlendis frá, prófessor Erik Allender frá Stokkhólmi sem talar um áhrif gigtarsjúkdóma á þjóðfélagið, prófessor W. Watson-Buchanan frá Glasgow sem fjallar um áhrif lyfjanotkunar á horfur liðagigtar- sjúklinga og Helgi Valdimarsson dósent fjallar um ónæmisfræði og gigtarsjúkdóma. Árið í ár er alþjóðlegt gigtarár og var að því tilefni stofnað Gigt- sjúkdómafélag Islands. SÍMI í MÍMI ER 10004 Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám. Líkur á að næsta virka svæði verði innan Kröfluöskjunnar „Vissar líkur eru á því ao næsta hrina og næsta virka svæði verði innan Kröfluöskjunnar og þá nær Kröflu en verið hefur í undan- gengnum hræringum," sagði Axel Björnsson í viðtali við Dagblaðið í gær. Svæðið norðan og sunnan við öskjuna er smám saman að fyllast .af hrauni og þao eyKur hættuna a gosi í öskjunni sjálfri. Landris er hafið að nýju og þróunin er öll svipuð og var í vor og hafa grófar spár spáð hræring- um á nýjan leik eftir þrjá mánuði, en um það er þó ekki hægt að segja með vissu. Unnið er að land- mælingum og upp úr helgi ætti ao vera hægt að gera alvöruspár. Allt er nú tiltölulega rólegt á svæðinu og ekki er að búast við neinum hræringum þarna á næstu dögum eða vikum, sagði Axel Björnsson jarðeðlisfræðing- ur. - JH Nákvæm ferðaáætlun fyrir Kfnaför: Hvorumegin götu ganga Eyjamenn f Kína? Tíu Vestmannaeyingar hafa lagt land undir fót, segir blaðið Brautin í Eyjum. Aö vísu er það engin nýlunda að Eyjaskeggjar ferðist, fáir landsmenn gera eins mikið að þvi og einmitt þeir. En þessir tiu fóru til Kína undir stjórn Páls Helgasonar og eiga langa og stranga ferð f.vrir höndum að sögn blaðsins, Siðan segir blaðið: „Er okkur tjáð, að hópurinn hafi þurft að leggja fram rnjög nákvæma ferða- áætlun. — jafnvel að tiltaka hvorum ntegin á götum þeir hygðust ganga, og m.vndir í tugatali." -JBP

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.