Dagblaðið - 01.10.1977, Side 2

Dagblaðið - 01.10.1977, Side 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 1977. Knattspyrna er án efa sú grein íþrótta sem langmestum vinsældum á að fagna hér á landi, sem og víða erlendis. Hún dregur að flesta áhorf- endur og skilar þar með mestum arði í fjárhirzlur íþróttahreyfingarinnar. Frægastur íslenzkra knattspyrnu- manna er Albert Guðmundsson og gerði hann um árabil nafn landsins frægt um alla Evrópu. Enn þann dag í dag er hann þekktur erlendis fyrir þau afrek sem hann vann a knatt- spyrnusviðinu. Albert var brautryðj- andi í atvinnumennsku hérlendis en síðan hafa margir íslenzkir knatt- spyrnumenn fetað í fótspor hans. Þekktastir í dag eru þeir Asgeir Sigurvinsson og Jóhannes Eðvaldsson en marga fleiri mætti upp telja því ekki færri en tíu íslenzkir knatt- spyrnumenn eru nú i atvinnu- mennsku erlendis. I Bretlandi má með sanni segja að knattspyrnan sé þjóðariþrótt. Þar lifir fólk og hrærist í knattspyrnunni og er ekki ofsagt að litið sé á knatt- spyrnumennina sjálfa sem dýrlinga. Áhorfendur taka svo mikinn þátt í leiknum að stundum keyrir um þver- bak. Eftir leiki logar ailt í slagsmál- um, dómarar fá morðhótanir og við liggur að þeir þurfi ekki síður verndar við en sumir þjóðhöfðingjar. íslendingar eru ekki eins „opin- skáir" áhorfendur og Bretar en þó hafa þeir sem viðstaddir hafa verið úrslitaleiki í enskri knattspyrnu sagt að sú stemmning sem verið hafi á áhorfendapöllunum hafi gjörsamlega hrifið þá með. En hvað um það. Islendingar sækja sífellt í sig veðrið á knattspyrnusvið- inu og sigra jafnvel þjóðir í lands- leikjum sem hafa eingöngu atvinnu- mönnum á að skipa í liðum sínum. Það væri fróðlegt að vita hvenær svo verður ástatt um íslenzka knatt- spyrnulandsliðið að í því leiki ein- göngu atvinnumenn. - rl. Hreinskúra mun hjarta mitt Pétur Georg var orðinn gamall maður á stríðsárunum síðari og er nú fyrir löngu genginn á fund feðra sinna. Hann var á sinum tima kunnur borgari fyrir ritstörf, blaðamennsku, þátttöku í verka- lýðshreyfingunni og stjórnmálum. En þegar hann sendi frá sér vísur sleppti hann föðurnafninu en ritaði bæði eigin- nöfn sín fullum stöfum, eins og hér er gert. Eftirfarandi vísur eru frá árinu 1942 — Sú fyrsta er um kunnan rithöf- und. Óðum magnast orðstír þinn, öllu þó að ljúgir. Þér er óhætt enn um sinn almenningur trúir. Pétur var um skeið í útvarpsráði og fannst útvarps- og auglýsingamálið dálít- ið undarlegt. Hann orti þessa vísu á því máli: Samkvæmt heimild háeff Ver Hörður emmbé fundinn er, sást frá essess Esjunni, ennennvaff af Straumnesi. Svo er hér kvenlýsing. Létt og ung hún var til víða að vinna mein. Grett og þung hún gerði síðan góðverk ein. Hernámsvísa. Víð er þýska vömbin, hún velur feita sauði. En Bretinn Ieggst á lömbin. — Eins líf er annars dauði. Vísur Valtýsson Ferskeytlan er ferðatöm, —flýgur vítt um geima — út um höfin er hún söm, enn sem fyrrum heima. Æsku vorri — ung og heit — örfaði 'ún hjartasláttinn. Síðan títt í lífsins leit létti hún andardráttinn. Helgi var áhugasamur útvarpshlust- andi, einkum á síðari árum. Utvarpsráð veit engin ráð, öll er ráðavoðin snjáð, fárra ráða fáráð náð, f jöldans ráðaieysi háð. Og hér er íhugun aldraðs manns. Öðlist ekki þessi þjóð þroska á hjartans meiði, bíður okkar örðug slóð á Auðnuleysisheiði. ★ Magnús Gislason á Vöglum lést á síðasta ári aldraður maður. Einhverju sinni fyrir fjölda mörgum árum hélt Vísur og vísnaspjall Jön Gunnar Jónsson Og þegar þjóðstjórnin sæla hafði um hríð setið við völd: I þessu landi er þjóðstjórn, í Þýskalandi er blóðstjórn, í sumum löndum sjóðstjórn, í sárafáum góð stjórn. úr bréfum eftir Helga karlakórinn Heimir söngskemmtun á Stóru-ökrum, var það á þrettándanum. Magnús orti. Eftir gengin glöpin stór gleði þrengist skíma, láir enginn karlakór þó kumri um fengitíma. ★ I vegavinnu voru nokkrir ungir menn í flokki í dal einum á Norðurlandi. Ball var haldið og komust sumir í kynni við heimasætur, einkum þótti ástarævintýri eins piltanna í frásögur færandi. Um hann orti verkstjórinn: Er sá maður ónýtur til allrar vinnu, þeirri happ sem hlýtur, ef Helgi gagnast kvinnu. ★ Hér eru þrjár allgamlar brúðkaups- stökur með sérstæðum kveðanda. Að því kimdi öldin þekk, ýmsir hlóu hlóu, Oddur sat á brúðarbekk beint hjá Gróu Gróu. Lúsagörmum sveipar sig, svipaður böðli böðli, en kvinnan ríður kurteislig keik í söðli söðli. Dustar lýs af darrastaf dúka jörðin jörðin. Hann má prísa héðanaf Hornaf jörðinn f jörðinn. e Kvensamur piltur orti: Eina veit ég auðgrund hér illa i lund og karga, sú vill ekki sinna mér né sáiu minni bjarga. Stúlkan svaraði: Ef að ég er örg i lund er það varla sáiarneyð, er þig rekur á minn fund, aðra skaltu velja leið. ★ Sigurður Jónsson bóndi í Katadal á Vatnsnesi orti um ógifta stúlku. Innra lengi ungri mær ama þrengir dróminn: Jurt, sem enga frjóvgun fær, fölnuð hengir blómin. ★ Þeir voru nágrannar í mörg ár ■ í Hveragerði Jóhannes úr Kötlum og séra Helgi Sveinsson. Einhverju sinni var presturinn að mála þak sitt úr allrót- tækri málningu, gladdi það náttúrlega auga Jóhannesar. Hann orti: Hreinskúra mun hjarta mitt hirðirinn okkar góði fyrst hann þannig þakið sitt þvær úr lambsins blóði. Helgi svaraði: Þig að fága þýðir lítt, þú ert ljóti kallinn. A þér nú er orðið hvítt ekkert nema skallinn. J.G.J. — S. 41046.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.