Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.10.1977, Qupperneq 4

Dagblaðið - 01.10.1977, Qupperneq 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 1977. Til sölu ANDRÉS HÆTTIR FRÆÐSLUSTJÓRN TIL AÐ RITA KAUPFÉLAGSSÖGU „Mig langar til að gera þetta. Ég hafði dregizt á það og ég verð nú að hrökkva eða stökkva," sagði Andrés Kristjánsson er frétta- maður DB spurði hann hvort hann væri að undirbúa ritun sögu Kaupfélags Þingeyinga. „Ég er ráðinn hjá kaupfélaginu frá 1. október næst- komandi til tveggja eða þriggja ára til þess að vinna þetta verk,“ sagði Andrés. Hann bætti við: „Það má ekki dragast lengur að ég byrji, því að ráð er fyrir því gert að ritið komi út á 100 ára afmæli Kaupfélagsins í febrúar 1982. Andr*s Krist ;a ísson er kunnur rithöfundurogritstjóri. sem hefur að undanförnu verið fræðslu- stjóri Kópavogskaupstaðar. Af því starfi lætur hann nú, alla vega um nokkurt skeið, til þess að snúa sér að áður- nefndu verki. Hannkvaðst viða að sér efni á ýmsan hátt. Meðal annars myndi hann kanna mikið safn bréfa, sem væru bæði fyrir norðan og eins hér. Andrés gat þess að I undirbúningi væri nú „Frelsisbarátta Þingeyinga" sem Gunnar Karlsson lektor ritaði. Andrés Kristjánsson er ágætlega ritfær maður. Nokkra alúð leggur hann trúlega í það verk sem hann hlýðir köllun til að vinna frekar en að sitja í tryggilegri stöðu við menntastjórn I einum stærsta kaupstað landsins. Blaðburöarbörn óskast strax i eftirtalin hverfi: Skúlagötu 54 og út Rauðarúrstíg Álftamýri Ásgarð Hólmgarð fró 36 og út Garðabœ Lundi, Sóleyjargata, Fjólugata Upplýsingar ísíma27022 tMMBIAÐIÐ 9 manna VW-Microbus. Litur rauður og hvítur. Nýupptekin vél og gírkassi. Verð kr. 650-700 þús. Til sýnis hjó Vegaleiðum, Sigtúni 1, R., símar 1-4444 og eftir kl. 18.00 í símum 86992 og 71749. Lögreglumenn voru jafnsam- taka og aðrir opinberir starfs- menn um að fella beri sátta- tillöguna um kjör þeirra. Fundir hafa verið haldnir í vikunni víða úti um land og einnig I Reykjavík. Hafa þeir verið mjög vel sóttir og einhugur mikill meðal félags- manna sem I fyrsta sinn geta nú samþykkt eða hafnað tilboði um launakjör sín. Myndin er frá fundi lögreglu- manna I Reykjavlk, Kópavogi og Hafnarfirði sem héldu sameigin- legan fund á mánudaginn. t ræðustóli er formaður Lögreglu- félags Reykjavlkur, Björn Sigurðsson. -DBmynd Sv. Þ. Ávísanamálið: „KEÐJUMENN“ KALLAÐIR FYRIR Yfirheyrslur I ávisanamálinu hófust á ný fyrir skömmu og hafa nokkrir aðilja hins meinta ávlsanahrings verið kallaðir fyrir Hrafn Bragason dómara. Snar þáttur í framþróun íslensks iðnaðar: flugfrakt FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR LSLAJVDS íi^Veljum islenskt „Þetta er svo sem ekkert," sagði Hrafn I samtali við DB „Þetta sem við erum að gera núna eru angar út frá aðalmálinu, athugun á þvl hvað við verðum að hafa með og hvað ekki. Þetta er geysilega umfangsmikið og' allt verður að skoðast.“ Hrafn kvað yfirheyrslur væntanlega eiga eftir að aukast á ný á sfðara stigi rannsóknarinnar. Hann vildi hins vegar engu spá um hversu lengi enn rannsóknin stæði. „Ég er I fríi frá Borgar- dómi til áramóta til að ljúka þessu verki,“ sagði Hrafn, „en ég vil engu spá um hvort það tekst.“ -ÓV. Kirkjudagur Óháða safnaðarins á morgun Kaffi ogbarna- bíó eftir messu A morgun, sunnudag, er kirkjudagur Öháða safnaðarins. Hefur hann verið haldinn einu sinni á ári allt frá 1951 eða árið eftir að söfnuðurinn varð til. Er hann haldinn til að auka tengsl og kynni meðal safnaðarins. Eftir messu munu konur úr kven- félagi safnaðarins standa fyrir kaffisölu I safnaðarheimilinu. Verður opið inn I kirkjuna og gefst fólki þá tækifæri til að skoða hana frá öðru sjónar- horni en unnt er við messur. Kirkjan á margt góðra n.una og má þar á meðal nefna altaris- töflu eftir Jóhann Briem og skírnarfont eftir Asmund. Jafnframt kaffisölunni verður börnunum boðið upp á mynda- sýningu klukkan hálffimm og á meðan börnin eru I biói fáfor- eldrarnir sér kaffisopa. Unglingar í ránsferð í Grafningi I gær hafði lögreglan hendur I hári nokkurra ungra pilta sem við rannsókn reyndust hafa verið nokkuð afkastamiklir við stuld I sumarbústöðum I Grafningi vestan Þingvalla- vatns. Sást til piltanna i gær og sat lögreglan fyrir þeim er þeir komu í bæinn. Stóðu yfir- heyrslur fram á kvörd I gær. Nokkurt þýfi fannst I bíl þeirra en annað höfðu þeir skilið eftir „á flóttanum". En I marga bústaði höfðu þeir farið. -ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.