Dagblaðið - 01.10.1977, Side 6

Dagblaðið - 01.10.1977, Side 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 1977. Glímt við tvö stórþjófnaðarmál Rannsóknarlögreglumenn glíma nú við lausn tveggja innbrotsmðla, skartgripa- ránsins á Frakkastig aðfara- nótt miðvikudags og peninga- þjófnaðarins I Bolungarvík fyrir nær hálfum mánuði. Ekkert mun enn hafa skeð sem varpar ljósi á þessi mál. Bolungarvíkurmálið „er í biðstöðu" eins og Njörður Snæ- hólm orðaði það í gær. Unnið er að rannsókn skartgripamálsins. -ASt. Útsala frá 1. — 7. okt. I tilefni þess að við höfum rekið sér- verzlun með áklæði í 5 ár veitum við 10 til 25% afslátt af áklæðum, snúrum og kögri. Einnig verða bútar seldir með miklum afslætti. Húsmunir, Hverfisgötu 82. Tœkniteiknari óskast Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða tækniteiknara í hálfs dags starf nú þegar. Umsóknum skal skilað á sér- stökum umsóknareyðublödum til raf- veitustjóra, sem veitir nánari upp- lýsingar um starfið. Rafveita Hafnarfjarðar. Vélstjóri óskast nú þegar að Hraðfrystistöð Þórs- hafnar, húsnæði fyrir hendi.Uppl. í síma 96-81137 og 81237. KVAllTMILIJ KLlJItKUlUNN Hið lapgþróða Islandsmeistaramót í sandspyrnu verður haldið sunnudaginn 2. okt. við Hraun í Ölfusi. Keppnin hefst kl. 2.00 en mótssvœðið verður opnað kl. 10.00. Keppt verður i mótorhjóla-, fólksbíla- og jeppa- flokkum. Komið og sjóið sprœkustu jórnfóka landsins. Þúsundir f lykkjast — stofnfundurinn í Háskólabíói klukkan 2 í dag samtakanna og einnig verða þar mennirnir gerðu sér vonir um og fluttar ræður og ávörp. má búast við miklu fjölmenni í Aður en fundur hefst mun Háskólabíói. Skólahljómsveit Kópavogs leika. Fundarstjóri á fundinum verð- Þátttaka í samtökunum er ur Eggert G. Þorsteinsson orðin mun meiri en forgöngu- alþingismaður. -ÖG. ÍS.Á.A Þúsundir íslendinga nafa sKráð sig sem stofnfélaga í Samtök áhugamanna um áfengisvanda- málið. Stofnfundurinn verður í dag klukkan 2 í Háskólabiói. Þá verður lögð fram stofnskrá Lions-félagar í Hafnar- firði selja Ijósaperur — til styrktar þroskaheftum Félagar í Lionsklúbbi Hafnar- fjarðar munu ganga i hús i Hafn- arfirði á laugardag og sunnudag og bjóða ljósaperur til sölu. öllum ágóða af perusölunni verður varið til styrktar þroska- heftum börnum. I fyrra afhenti Lionsklúbbur Hafnarfjarðar bæjarstjórn Hafn- arfjarðar eina milljón kr. sem varið var til sama málefnis. Nú er komin aðstaða fyrir þroskaheft börn á dagheimilinu Viðivöllum í norðurbæ Hafnarfjarðar. Þess er vænzt að Hafnfirðingar bregðist vel við og kaupi perur af Lionsfélögum. Með því styrkja þeir gott málefni og fá ljósaperur á hagstæðu verði. -JH ÞjóAleikhúsiÖ TÝNDA TESKEIÐIN Grályndur gamanleikur aftir Kjartan Ragn- arsson. Loikmynd og búningar: Guörún Svava Svav- arsdóttír. Lýsing: Krístinn Daníelsson. Leikstjórí: Bríat Héöinsdóttir. Með Týndu teskeiðinni finnst mér Kjartan Ragnarsson minna á tvo aðra höfunda, Hk- lega að flestu öðru leyti alls ólíka sín í milli — þá Edward Albee og leikrit hans Allt I garðinum sem sýnt var I Þjóð- leikhúsinu fyrir allmörgum árum, og svo Þorstein Marels- son og leikrit eftir hann sem nefndistVenjuleg fjölskylda og Leikfélag Þorlákshafnar lék í Kópavogi í fyrra. Hvað sem þeir annars eiga eða ekki eiga sammerkt Kjartan, Albee og Þorsteinn þá vilja þeir allir eða þykjast vilja lýsa ofur- venjulegu, hversdagslegu fólki og svo óbóta- og myrkraverkum sem svo örgrunnt leynast undir yfirborði hversdagslegrar far- sældar. Það er kannski óhætt að sleppa Þorsteini Marelssyni strax úr þessu dæmi. En hjá Edward Albee í Allt í garðinum verður það svo Ijóst sem á verður kosið að myrkraverkin, hór og morð eru i senn af- leiðing og forsenda farsældar- innar, þar er allt er látið falt i eftirsókn eftir imynduðum lifs- gæðum. Öhugnaður eða ádeila leiksins verður virk vegna hversdags-raunsæis hans, þeirra rauntrúu manngerða sem leikurinn leiðir fyrir sjónir og bera uppi atburðarásina með öllum sínum öfgum. Grólegar vendingar Við fyrstu sýn fer Kjartan Ragnarsson í Týndu teskeiðinni með kunnugleg efnisatriði og persónugerðir úr ýmsum fyrri Islenskum farsa- og gamanleikj- um og ádeilubornum skáld- sögum. Þar eru litlu nýriku hjónin, Júlla og Aggi: Þóra Friðriksdóttir og Gísli Alfreðs- son sem lifa og dafna í skjólinu af miklu meiri peningamanni, Boga guð- og lögfræðingi: Róbert Arnfinnssyni og kon- unni hans, Ástu: Sigríði Þor- valdsdóttur. Og i kjallaranum búa ögn rustaleg alþýðuhjón, Begga og Baldi, sem vel má vera að velferð þeirra hinna í rauninni rísi á: Guðrún Stephensen og Flosi Ólafsson. Má nú eiga á ýmsu von þegar takast ástamál milli dóttur- innar á hæðinni, Jóu: Lilju Þórisdóttur, og stráksins úr kjallaranum, Rúnars, sem ofan á annað þykist vera bolséviki: Randvers Þorlákssonar. í Týndu teskeiðinni tekur þetta sögufólk og söguefni brátt býsna grálegri vendingu. Þannig æxlast til að Baldi karl úr kjallaranum ryðst fullur inn í samkvæmi til fólksins á hæð- inni sem einhvern veginn ekki hefur lag á því að koma honum af sér með góðu. Þetta fer ekki betur en svo að fyrir slysni verða þau honum að bana. Og gengur svo atburðarás i leiknum út á það hvaða ráðstöfun eigi að gera á líkinu svo að dauði Balda fulla verði ekki fína fólkinu i leikn- um að falli. Hún verður ekki nánara rakin hér, enda sjón sögu ríkari. En áður en lýkur er komið á daginn að fólkið í leiknum erallt hvað sem annað, þjófar þeir sem ekki eru mann- dráparar, að þegar hagsmunir þess og stundargæði eru í húfi er allt látið falt, æra, samviska og sannfæring, faðir og móðir, eiginmaður og eiginkona, ef svo ber undir. Grettir og Flosi Týnda teskeiðin er að mörgu leyti hugvitsamlegt og hnyttið leikrit — þótt gamanið sé að sönnu grátt mjög og virðist ein- att einkum að þvi stefnt að ganga fram af áhorfandanum. Einhverjum verður sjálfsagt nóg boðið í öðrum þættinum þar sem verið er að fara með slátrið úr Flosa Ólafssyni á sviðinu og henda af honum hausnum á milli manna. Eina bótin að annað eins hefur skeð í fornsögum, sbr. hausinn af Gretti sem saltaður var ofan i kassa. En hvað um það: ef saman- burði er haldið áfram við Albee og Allt í garðinum má segja að á skorti í Týndu teskeiðinni rökfestu atburðanna í eðlisfari og lifsháttum fólksins sem hér er verið að lýsa. Eiginlega gerast óbótaverkin í leiknum af tómri slysalegri tilviljun eða óheppni. Þetta held ég að sé undir því komið hve persónu- sköpun er ansi mikið einhæf, allt fólkið í leiknum f rauninni einleiknar farsapersónur. Þær eru svo sem hnyttilega dregnar hver og ein fyrir sig, og mörg atvik og orðsvör fleyg og fyndin í leiknum, en einhvern veginn skortir á nóga samloðun í milli þeirra innbyrðis og þar með samsvörun þess smáheims sem leikurinn sýnir við heiminn utan sviðs. En þá fyrsl yrði hin afkára atburðarás í leiknum óhugnan- leg fyrir alvöru ef unnt væri að festa trú á fólkið í leiknum utan farsans. Eða þá, öfugt við: nógu hjólliðugur og leikandi fyndinn farsi gæti sjálfsagt snúið óhugnaði efnisins upp i tóman afkáraskap, dáralegt gys um altíðar manngerðir og gildismat. En það tekst ekki heldur, ef til þess var stofnað. Burt með vit og rœnu Það sem nú var sagt breytir ekki því að mér finnst Kjartan Ragnarsson hafa fest sig í sessi sem leikritahöfundur með sínu þriðja leikriti: Týnda teskeiðin er ótvírætt miklu markvissara, vandlegar samið verk en ærsla- leikur hans frá í fyrra, Blessað barnalán. Eins og skapsmunum og fyndninni i leiknum er háttað er þess varla að vænta að honum hlotnist vinsældir hinnar frjálslegu góðglöðu Saumastofu sem enn gengur í Iðnó. Týnda teskeiðin er kann- ski ekki ýkja frumlegt verk að hugmyndafari eða persónugerð frekar en fyrri leikritin tvö. Samt held ég að Kjartan Ragnarsson komist hér næst því til þessa að semja gildan skopleik, hæðnisádeilu sem sýni áhorfendum í raunver-u- Iegan spéspegil með öllum sín- um afkárahætti. Það sem vinnst felst kannski fremur í einstökum atvikum, viðvikum leiks en samfelldri at- burðarás eða mannlýsingum. En margt i lýsingu þeirra fínu riku hjóna, Boga og Astu, sam- leik þeirra Róberts og Sigríðar, lýsti ansi meinlegri sálfræði- legri athugun. Þau Gisli Al- freðsson og Þóra Friðriksdóttir virtust nú engan veginn sam- valið hjónafólk í sýningunni. En i miðri sláturtíð annars þáttarins var eins og um sinn rofnuðu skefjar farsans af Gisla og sæist inn í raunveru- lega mannlega neyð. Karl og kerling úr kjallaranum fela í sér vísi að endurmati alkunnra manngerða eins og Guðrún og Flosi leiddu þau fyrir sjónir. Og taka má eftir því að í leiknum er eins og leiðin til sannleikans liggi í gegnum brennivín. Hinn óþolandi fylliraftur úr kjallar- anum er kannski einasta heila manneskjan í leiknum í sínum frábæra rustaskap. Og Júlla frú á efri hæðinni þarf að drekka frá sér vit og rænu til að sjá í þriðja þættinum sjálfa sig og sitt sálufélag ófölskvuðum aug- um. Enda kostar það hana lífið. Það er sem sé ansi nöturleg heimssýn sem nýja leikrit Kjartans Ragnarssonar lýsir sínum grálundaða og hráslaga- lega hætti: þar leiðir glæp af glæp og óbótaverkin læsast i keðju. Þetta er á sviðið sett sem afkáralegur farsi um og upp úr alkunnum manngerðum, við leikmynd sem lýsir með ögn stílfærðu móti alkunnu reyk- vísku landslagi. En kveikjan i hinu gráa gamni er grimm al- vara.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.