Dagblaðið - 08.10.1977, Side 22
22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. OKT0BER 1977.
STJÖRNUBÍÓ
Grizzly
íslenzkur texti.
Æsispennandi, ný, amerísk kvik-
mynd í litum. Leikstjóri: William
Girdler. Aðalhiutverk: Christo-
pher George, Andrew Prine,
Richard Jaeekel.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
H
NÝJA BIO
I
íslenzkur texti.
Vegna fjölda áskorana verður
þessi ógleymanlega mynd með
Elliott Gould og Donald Suther-
land sýnd í dag og næstu daga kl.
5, 7 og 9. Ailra siðasta tækifærið
til að sjá þessa mynd.
AUSTURBÆJARBÍÓ
I
Fjörið er ó
Hótel Ritz
(The Ritz)
Bráðskemmtileg og fjörug ný,
bandarísk gamanmynd i litum,
byggð á gamanleik eftir Terrence
McNally.
Aðalhlutverk: Jack Weston, Rita
Moreno.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
1
HAFNARBÍÓ
I
Örninn er setztur
Afar spennandi og viðburðarík,
ný, ensk Panavision litmynd með
Michael Caine, Donald Suther-
land o.m.fl.
Leikstjóri John Sturges.
tslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8.30 og 11.15.
Hækkað verð.
Ath. breyttan sýningartíma.
8
HÁSKÓLABÍÓ
Í
Sími 22140
Laugardagur:
Nickelodeon
Sýnd kl. 5 og 9.
Síðasta sýningarhelgi.
Sunnudagur:
Nicelodeon
Sýnd kl. 5 og 9.
Sfðasta sinn.
Bugsy Molone
Sýnd kl. 3.
Síðasta sinn.
Mánudagsmyndin
Piltur og stúlka
(En fyr og hans plge)
Sænsk mynd er fjallar um vanda-
mál ungs fólks á óvenjulegan og
skemmtilegan hátt.
Leikstjóri: Lasse Hallström.
Þetta var fimmstjörnu mynd í
Danmörku.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ
Hin óviðjafnanlega Sarah
N
t*maviMo«i* TfiKnrtrítor* By Reader’s Digest
DiunhulnJ by < jncmi InlcnulHnll (áirpnraliun 'í)ji
Ný brezk mynd um Söru Bern-
hard, leikkonuna sem braut allar
siðgæðisvenjur og allar reglur
leiklistarinnar, en náði samt að
verða frægasta leikkona sem
sagan kann frá að segja.
Framleiðandi: Reader’s Digest.
Leikstjöri: Richard Fleischer.
Aðalhlutverk: Glenda Jackson
Daniel Massey og Yvonne
Mitchell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
íslenzkur texti.
Svarti drekinn
Hörkuspennandi ný karatemynd.
Enskt tal, enginn texti.
Sýnd kl. 11.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Borg dauðans
Hörkuspennandi amerísk ævin-
týramynd.
Aðalhlutverk: Yul Brynner og
Max von Sydow.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5.
Bönnuð börnum.
Kvenhylli og
kynorka
Stórskemmtileg
gamanmynd.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
og djörf ensk
Shaft í Afríku
Ný æsispennandi kvikmynd.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hefðarfrúin
og umrenningurinn
Barnasýning kl. 3.
Imbakassinn
(The groove tube)
Brjálæðislega fyndinn og
óskammfeilinn „Playboy".
Aðalhlutverk.: William Paxton,
Robert Fleishman.
Leikstjóri: Ken Shapiro.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Útvarp
Sjónvarp
9
Útvarpídag
kl. 14.30:
Arfleifð ítónum
Látnir tónlistar-
menn slá í gegn
„Ég hef verið með svona þætti
stundum á haustin," segir Baldur
Pálmason um þáttinn Arfleifð í
tónum sem á dagskrá er í dag rétt
eftir hádegi. Þáttur Svavars Gests
hætti síðasta laugardag og verður
að minnsta kosti ekki í vetur hvað
sem má um sumarið næsta segja.
„I þessum þáttum hef ég leikið
lög með eða eftir þekkta músík-
menn sem látizt hafa árið áður. í
fyrra létust anzi margir merkileg-
ir menn. Má til dæmis nefna
söngkonurnar Lotte Lehmann,
Lilly Pons, Maggie Teyte og Eliza-
beth Rothberg. Það er eiginlega
skrýtið hvað hún er lítið þekkt
hér á landi og minna en margar
aðrar því hún var prímadonna við
Metropolitan óperuna í 20 ár.
Svo dóu nokkrir góðir píanó-
leikarar. Til dæmis Alexander
Brailovisky og Géza Anda sem var
ungverskur og dó ungur eða á
milli tvítugs og þrltugs.
Svo er það einn karlsöngvari,
Paul gamli Robeson. Hann dó líka
á síðasta ári.
Ég leik svo létt lög svona á
milli. Til dæmis með Bobby Haat
sem lengi lék með Louis Arm-
strong. Hann dó líka í fyrra. Og
ein stúlknanna úr Supremes,
hún Florence Balland," sagði
Baldur Pálmason.
DS.
Sjónvarp á morgun
kl. 18.00:
Stundin okkar
Kristfn og
Fúsi flakkari
Stundin okkar er enn á gömlu
línunni og endurtekur á morgun
nokkuð af gömlu efni. Þar á
meðal er þáttur um þau Kristínu
Ölafsdóttur, sem einu sinni var
stjórnandi barnatima, og Fúsa
flakkara, leikbrúðu sem Jón E.
Guðmundsson gerði af meistara-
höndum. Myndin er af þeim vin-
unum.
Sjónvarp annað kvöld kl. 22.30: í takt við tilveruna
TAÓISMI - AÐ VERA í SAM-
RÆMIVIÐ NÁTTÚRUNA
„Þetta er gömul heimspeki-
kenning upprunin í Kína og hefur
breiðzt nokkuð þaðan til Vestur-
landa í ýmsum rnyndum," sagði
Öskar Ingimarsson er hann var
inntur eftir því hvað taóismi væri.
I sjónvarpinu annað kvöld er þátt-
ur um taóisma og heitir hann I
takt við tilveruna. Óskar er þýð-
andi og þulur þessa þáttar.
„Taóismans hefur orðið vart í
ýmsum listgreinum hér á Vestur-
löndum,” hélt Óskar áfram. „Þar
má til dæmis nefna myndlist og
leirkeragerð.
Upphafsmaður taóismans var
gamall heimspekingur að nafni
Lao Tzu. Tao þýðir í rauninni
vegur og er það vegurinn sem
leiða á menn til samræmis við
náttúruna. Menn eiga samkvæmt
kenningunni að vera í samhljómi
með alls kyns náttúrustraumum,
t.d. í trjám, vötnum og öllu öðru í
náttúrunni. Ef menn gera það
ekki líður þeim illa. Þetta er því í
rauninni eins konar afturhvarf til
náttúrunnar.
Menn iðkuðu taóismann á meg-
inlandi Klna hérna áður fyrr en
eru hættir því að mestu núna að
minnsta kosti opinberlega. Aftur
á móti er hann enn vinsæll á
Formósu. Þar er iðkað sérstakt
jóga tengt heimspekinni," sagði
Óskar Ingimarsson.
A þessum síðustu og verstu tím-
um þegar menn eru komnir í það
mikla andstöðu við náttúruna að
raddir eru uppi um að þeir séu að
eyðileggja hana ætti taóisminn að
vera þörf kenning.
DS.
Sjónvarp annað kvöld kl. 21.00: Gæfa eða gjörvileiki
GÍFURLEGA VINSÆLL ÞÁTT
UR í HEIMALANDISÍNU
Það verður víst ekki af
sjónvarpinu skafið þessa dagana
að mjög er vandað til efnis.
Framhaldsþættirnir eru hver
öðrum betri og kvikmyndirnar
fyrsta fiokks. Þannig er fram-
haldsflokkurinn Gæfa eða
gjörvileiki sem hófst siðasta
sunnudagskvöld og haldið verður
áfram annað kvöld með betri
flokkum, sem gerðir hafa verið,
að mati Bandaríkjamanna að
minnsta kosti. Þó að íslendingar
séu ef til vill ekki alveg sammála
því og telja þáttinn Undir sama
þaki enn betri er það samt
staðreynd að sjónvarpið gerir
mjög vel með þvi að fá hingað svo
fljótt þátt sem notið hefur svo
mikilla vinsælda i heimalandi
sínu. Satt að segja hefðu menn
ekki búizt við þvi að óreyndu að
svo skjótt yrði brugðið við.
Söguþráðurinn í Gæfu eða
gjörvileika er mjög bandarískur,
og e.t.v. ekki eins við hæfi
Islendinga og Kana. Sagt er frá
þýzkum innflytjanda, Jordache,
sem finnst nýja landið ekki hafa
verið eins gott og af er látið. Hann
er bakari og býr sjálfur í húsinu
sem brauðið er bakað í. En
skipulagt hefur verið nýtt hverfi
á staðnum, þannig að rífa á húsið.
Jordache missir því ekki aðeins
atvinnuna heldur heimilið líka.
Ray Milland og Dorothy McGuire tilheyra bæði eldri kynslóð leikara i
þáttunum.
Jordache er giftur konu einni
seiri er afar guðhrædd og fellur
það ekki alltof vel við hugmyndir
hans um að enginn guð sé til.
Þeim kemur því ekki of vel
saman. Tvo syni eiga þau sem eru
eins og dagur og nótt bæði hvað
útlit og innræti varðar. Ruby er
skyldurækinn og vill komast
áfram í heiminum, svo hann megi
reyna sjálfur hvernig það er að
vera ríkur. Tom er aftur á móti
hálfgerður pörupiltur. Honum
finnst ekki foreldrar sínir veita
sér nægilega athygli og heldur að
bezta ráðið sé að gera eitthvað af
sér svo þau taki eftir honum. En
afleiðingin verður sú að hann er
rekinn úr bænum með skömm á
tncðan að eldri bróðir hans er
kostaður i háskóla.
Leikarar i þættinum eru eigin-
lega tvenns konar, gamlir og
þekktir annars vegar og ungir og
óreyndir hins vegar. Af þeim
eldri og reyndari má nefna
Dorothy McGuire sem leikur
móður strákanna, Ray Milland,
Gloriu Graham og fleiri.
Þeir yngri eru ekki síðri. Tom
er leikinn af Nick Nolte sem
hlotið hefur heimsfrægð fyrir.
Eftir helgina verður þýdd grein
um hann i DB. Ruby leikur Peter
Strauss og Júlíu unnustu hans,
leiktt Susan Blakely.
Stuðzt er við söguna Rich man
Poor man eftir Irving Shaw. Sú
saga setti sölumet 1 heima-
landinu. Ekki er vitaskuld alveg
farið eftir henni enda slíkt erfitt.
En þættirnir þurfa ekki að vera
verri fyrir það.
-DS.