Dagblaðið - 13.10.1977, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKT0BER 1977.
Augndeild Landakotsspítala göngudeild:
Þar eru nær öll fjögurra ára
ItAHM a ftAfff|MA^11A — riímlega600mannskomaþangað
VUffl dJfUfffff UIUU íglákuskoðun reglulega
Um tíu af hverjum hundrað
krökkum í grunnskóla þurfa að
nota gleraugu. Þegar lengra
kemur í námi fjölgar gleraugna-
gUmunum jafnt og þétt og í
menntaskólum og háskóla eru 30
til 40 af hverjum hundrað nem-
endum með gleraugu. Það er því
töluverður fjöldi fólks sem þarf
að leita til augnlækna, en eflaust
hafa margir rekið sig a að ekki er
það auðsótt mál. Annaðhvort er
að bíða marga klukkutíma á stofu
augnlæknisins eða hringja og fá
pantaðan tíma marga mánuði
fyrirfram. Þeir sem eru svo
heppnir að ná sambandi símleiðis
og geta pantað tíma sieppa við
biðina á stofunum.
En hvernig er þá augnlækna-
þjónustan og eigum við ekki von á
að úr rætist? Við lögðum leið
okkar á augndeild Landakotsspít-
alans og ræddum þessi mál við
Guðmund Björnsson yfirlækni.
Við fáum úrlausn mála
eftir þrjú til fjögur ár
Guðmundur Björnsson yfir-
læknir sagði að eftir um það bil
þrjú ár myndi ástandið lagast. Þá
ætti ekki að verða eins erfitt að
ná fundi augnlæknis og nú er.
Erlendis eru nú átta til tíu læknar
við sérnám í augnlækningum.
Þeir koma væntanlega heim nú a
næstu árum og bæta úr því
ástandi sem hefur verið samfara
augnlæknaskortinum. Guðmund-
ur sagði að erfitt væri að komast í
sérnám í augnlækningum erlend-
is. Þeir sem væru við nám væru
t.d. í Kanada, Bretlandi, Svíþjóð
og Þýzkalandi.
En hvernig er bilið brúað
meðan augnlæknar eru svo fáir?
Fá landsmenn nægilega gott eftir-
lit með sjón sinni?
Við augndeildina a Landakoti
er starfandi göngudeild, sem Guð-
mundur Björnsson veitir for-
stöðu. Þar er fylgzt með rangeygð-
um börnum og fullorðnu fólki
með glákusjúkdóm.
Öll fjögurra ára börn eru
sjónprófuð
Starfsemi göngudeildarinnar
skiptist í tvo staði. Annars vegar
er fylgzt með glákusjúklingum og
hins vegar meðhöndluð börn með
sjóngalla. öll fjögurra ára börn
eru sjónprófuð um leið og þau fá
Það var þröng á þingi í hiðslof-
unnL.
síðustu sprautuna hjá ungbarna-
eftirlitinu. Síðustu tvö árin hafa
nær öll fjögurra ára börn verið
skoðuð hjá ungbarnaverndinni I
Reykjavík, Akranesi og Selfossi.
A árinu 1976 voru 1100 börn skoð-
uð og f ljós kom að um tlu af
hverjum hundrað þurftu að leita
til augnlæknis vegna sjóngalla
eða sjóndepru. Þessi börn komu
öll á göngudeildina og voru
skoðuð þar og fengu viðeigandi
meðferð.
Guðmundur yfirlæknir sagði
það nauðsynlegt að ná til barna
með sjóngalla áður en þau næðu
skólaskyldualdri. í flestum tilfell-
um er hægt að laga sjóngalla, ef
börnin koma til meðferðar nógu
snemma. Þegar þau eru orðin sjö
til átta ára getur það verið of
seint.
Við göngudeildina er sérstök
augnþjálfunardeild. Þar starfa
tvær stúlkur, sem eru sérmennt-
aðar sem augnþjálfar, en það er
strangt þriggja ára nám eftir
stúdentspróf og aðeins hægt að
Guðmundur Björnsson yfirlækn-
ir á göngudeildinni. DB-mynd
Hörður.
læra það erlendis. Til þeirra
koma biirn, sem eru með sjón-
galla, sem hægt er að laga með
sérstakri þjálfun. Börn sem eru
t.d. rangeygð er hægt að þjálfa
þannig að þau beiti báðum augum
jafnt.
Stúlkurnar hafa farið út um
land og leiðbeint hjúkrunarfræð-
ingum á heilsugæzlustöðvum,
hvernig á að sjónprófa börnin.
Þannig er hægt að finna flest
fjögurra ára börn, sem þurfa á
meðferð að halda vegna sjóngalla
einhvers konar.
Sjúkrahúsþjónustan
er fullnœgjandi
Á augndeild Landakotsspítala
eru starfandi fjórir sérfræðingar,
þar eru einhig tveir aðstoðar-
læknar við sérnám. Guðmundur
Björnsson sagði að sjúkrahús-
þjónustan væri fullnægjandi og
augndeildin á Landakoti væri eina
sinnar tegunöar á landinu. Sá
sem þarf á augnuppskurði að
halda, verður e.t.v. að biða í
nokkra mánuði, en það þykir ekki
saga til næsta bæjar. Ef slys ber
að höndum er alltaf sérfræðingur
á vakt á sjúkrahúsinu. Einnig er
augnlæknir á vakt á slysadeild
Borgarspftalans.
Rúmlega 600 koma
reglulega í glákuskoðun
Á göngudeildina koma einnig
sjúklingar sem þarf að fylgjast
náið með vegna gláku, en hún
leiðir til blindu, ef viðkomandi
kemst ekki undir læknishendur í
I « *
I4F
I 16.18 20. r
Aslaug, sem er 4 ára, fær hér meðferð hjá Marianne Blandon, sem er augnþjálfi að mennt, en það nám
tekur þrjú ár eftir að lokið er stúdentsprófi.
tæka tíð. Unnt er að stöðva sjúk-
dóminn á þvi stigi sem hann
finnst, en ekki er hægt að lækna
hann.
Þeir sem fara í rannsókn hjá
Hjartavernd eru glákuprófaðir.
Þannig finnast margir, sem svo
þurfa að vera undir stöðugu eftir-
liti hjá göngudeildinni. Á siðasta
ári komu 600 manns reglulega til
skoðunar.
Þegar fólk er orðið fimmtugt er
æskilegt að það láti athuga augu
sín reglulega. Glákan gerir engin
boð a undan sér, hún kemur eins
og þjófur á nóttu. Sjúkdómnum
fylgir enginn sársauki og sjúkl-
ingurinn verður hans ekki endi-
lega var, vegna þess að sjónsviðið
minnkar smátt og smátt svo hægt
að viðkomandi veitir því ef til vill
ekki athygli að hann hefur misst
sjón, fyrr en sjúkdómurinn er
kominn á töluvert hátt stig.
verður að hafa það í huga að a
Öldugötuna komu 600 sjúklingar
til skoðunar reglulega vegna
gláku ásamt öllum börnunum sem
fá þar ómetanlega bót á sjón
sinni, sem annars myndi há þeim
alla tlð, ef göngudeildar nyti ekki
við og sjónverndarstarfs sem þar
er unnið.
- KP
Mikið og gott starf unnið
við erfiðar aðstœður
Þrátt fyrir að mikill skortur sé
á fullnægjandi augnlæknaþjón-
ustu, þá er mikið öryggi að vita til
þess að vel er fylgzt með sjón
barna og hægt er i flestum tilfell-
um að laga ýmsa sjóngalla áður en
skólaganga hefst. Síðar má vera
að viðkomandi þurfi á gleraugum
að halda, verði t.d. nærsýnn, og þá
kemur að því að reyna að fá tíma
hjá augnlækninum. Guðmundur
yfirlæknir á göngudeildinni sagði
að nærsýni væri ættgeng, hún
stafaði ekki af miklum bóklestri,
eins og oft hefur verið talað um.
Sú staðreynd að 30 til 40 af hverj-
um eitt hundrað nemendum í
mennta- og háskóla nota gleraugu
hefur oft orðið til þess að gefa
þeirri tilgátu byr undir báða
vængi, að nærsýnin stafaði af
miklum lestri, en svo er ekki.
Þessl gleraugu eru notuð við augnrannsókn og börnin látin skoða
sérstakar myndir með þelm. Áslaug var látin horfa á mynd af flugu og
var svo beðin að taka í vænginn á flugunni; hún var smeyk fyrst í stað,
en af því að þetta var bara þýkjustu fluga var það allt í lagi. DB-mynd
Hörður.
Húsakynni göngudeildarinnar
að Öldugötu 17 eru mjög ófull-
nægjandi. Húsið er gamalt og var
auðvitað aldrei ætlað til þessarar
starfsemi. Sem dæmi um þrengsl-
in þar má taka það fram að stúlk-
urnar sem þjálfa börnin gera það
í herbergi sem er einnig kaffi-
stofa. Biðstofan er i senn herbergi
fyrir þann sem tekur á móti pönt-
unum og skráir niður tíma sjúkl-
inganna. Herbergið rúmaði ekki
alla og sumir þurftu að standa
frammi á gangi, þar til þeir voru
kallaðir inn til læknanna. Einnig
Marianne er með spjiild með merkjtim á. sem Aslaug á að likja eftir
með þeim ta-kjum sem henni eru fengin. DB-mynd Hörðnr.