Dagblaðið - 13.10.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977.
&
Dagur íherbúðunum:
„ÍÞoríákshöfn!
Á Skattstofuna!
í Tónlistarskólann! ”
Ekki er annað að sja er komið
er inn í aðalstöðvar BSRB í
Reykjavík en að þar hafi menn
verið viðbúnir verkfalli. Fjöldi
manns er þar a þönum við alls
kyns störf, vaktaskipulag að því
er manni finnst allfullkomið, yfir-
nefnd og undirnefndir verkfalls-
nefnda starfa undir stjórn Júlíus-
ar Sveinbjörnssonar, snaggara-
legs ungs manns, og hafði einhver
a orði að þeir vissu ekki hvað þeir
ættu að gera þegar hann þyrfti að
fara að sofa.
Verkfallsnefndum er skipt nið-
ur í nefnd er fylgist með sjúkra-
húsum og heilsugæzlu, mennta-
stofnunum, hinum ýmsu ríkisfyr-
irtækjum, lögreglu og svo fram
eftir götunum.
Hafa sjaifboðaliðar gefið sig
fram úr öllum þessum starfs-
greinum og vaka yfir því að verk-
fallsbrot verði ekki framin.
„Við vorum að senda menn til
Þorlákshafnar,“ sagði Birgir
Sveinbjörnsson úr einni verk-
fallsnefndinni.„Þar hefur verið
reynt að tengja rafmagn í Lands-
höfninni og hleypt var a vatni
sem er auðvitað óleyfilegt enda
eru hafnarstjóri og menn hans í
verkfalli. Eins erum við að fylgj-
ast með framvindu maia varðandi
togarann Vigra hér i Reykjavík
en þar ætlaði útgerðin að fara í
kringum verkfallslögin með því
að flytja aflann úr togaranum inn
að Kletti og vigta hann þar.
Annars sagði Birgir að mikið
hefði borizt af undanþágubeiðn-
um beint til verkfallsnefndar
BSRB, en ekki til kjaradeilu-
nefndar, menn tryðu bersýnilega
að þeir fengju skjótari afgreiðslu
þarna a skrifstofunni, sem vel ma
vera. Þa nefndi hann sérstaklega
menntamaiaraðuneytið sem ja-
k ^æðan aðila varðandi verkfallið
Verkfallsverðir ræða við hinn
meinta verkfallsbrjót a Skattstof-
unni sem stendur í skjóli við lög-
fræðing stofnunarinnar.
DB-mynd HP.
og hefðu samskipti við það verið
vinsamleg.
Loka Tónlistarskólanum!
Komið hafði- í ljós að Jón Nor-
dal, skólastjóri Tónlistarskólans í
Reykjavík, er í Landssambandi
framhaldsskólakennara en skól-
inn hélt enn afram störfum.
Verkfallsnefnd úrskurðaði að
skólanum skyldi þegar í stað lok-
að, enda þótt stundakennarar
væru þar í miklum meirihluta,
skólastjórinn ætti að vera í verk-
falli og þar með yrði skólinn að
hætta störfum.
Pélur i uppvaskinu.
Jón Nordal skólastjóri var ekki
a skrifstofu sinni er verkfalls-
verði bar að garði en yfirkennari
hafði samband við hann símleiðis
og tilkynnti honum hvernig kom-
ið væri.
Bar hann síðan verkfallsvörð-
um bau skilaboð Jóns að hann
Nemendur í Tónlistarskólanum tóku því með vinsemd að skólanum
var lokað: Astæðan: Skólastjórinn er í LSFK. DB-mynd Sveinn Þorm.
sætti sig við orðinn hlut og yrði að
loka skólanum.
Flestir kennarar tóku þessu vel
en fiðlukennarinn hafði a orði að
hann myndi kenna nemendum
sínum heima. Svo marseraði öll
hersingin út.
Kaffi og kökur
Samband ísl. barnakennara er
með sérstaka verkfallsvörzlu en
gegnir ennfremur, an þess að ég
þori að selja það dýrara en ég
keypti, því hlutverki að sjá aðal-
stöðvunum fyrir kökum. Höfðu
farið' spurnir af því hversu vel
SÍB-menn byggju í kökumaium
og er DB var þarna a ferð voru
fyrstu kökusendingarnar að ber-
ast.
Þarna hita menn einnig sterkt
kaffi og veitir víst ekki af því
verkfallsvarzlan er starfrækt all-
an sólarhringinn. Tvær ungar
stúlkur úr félagsvísindadeild MH,
sem ætlað höfðu sér að fylgjast
með verkfallsaðgerðum, höfðu
óvart lent í uppvaskinu en einnig
hafði tíu ara strákur, Pétur Ein-
arsson, sonur eins starfsmann-
anna, tekið til við uppvaskið.
Gripu þær því fegnar það tæki-
færi að fa að'fara með niður a
Skattstofu þar sem einn starfs-
manna var grunaður um meint
verkfallsbrot.
Júlíus yfirmaður verkfallsvörzlu, fer yfir plögg I aðalstöðvunum.
Ilaraldur Steinþórsson framkv.stj. BSRB og verkfallsverðir fylgjast
með.
Á Skattstofuna!
Er þangað kom var allt auðvit-
að harðlist en verkfallsverðir
fundu smugu og börðu að dyrum
hja skattstjóraembættinu.Halldór
Sigfússon skattstjóri tók mönnum
ljúfmannlega og færði þa til hins
grunaða sem dró fram skilríki.
Kom þa i ljós að hann var
skráður viðskiptafræðingur og
atti samkvæmt þvi að vera í BHM
en einhver vanhöld höfðu orðið a
því að ákvarða nánari stéttarfé-
lagsstöðu hans því BHM hafði
ekki kannazt við hann.
Ekki var gripið til neinna að-
gerða þarna á staðnum, heldur
héldu verkfallsverðir a brott með
skilríkin og lögðu þau í dóm verk-
fallsnefndar. Þar sat málið er síð-
ast fréttist en sýnir glögglega að
naið er fylgzt með því að engir
geri tilraunir til verkfallsbrota.
Allt í bróðerni
„Við reynum að leysa þetta allt
1 bróðerni," sagði einn verkfalls-
varða og auðséð var að fara verð-
ur að ó.lu með gát.
Þannig hafði þeim á Hvanneyri
verið leyft að hirða nautin þar a
staðnum, borizt hafði beiðni fra
RARIK um að fa að gera við raf-
línu norðanlands, verktakafyrir-
tæki í Kópavogi hafði orðið fyrir
óþægindum vegna hinnar ströngu
passaskoðunar lögreglunnar a
Keflavíkurflugvelli og þar fram
eftir götunum.
En menn voru í góðum húmor
og sögðu brandara um Matthías,
DB-maðurinn kunni engan þá, en
lærði vísu uppi a ritstjórn sem
hann ma til með að la.ta flakka í
góðu:
Ofan gefur skatt a skatt
skattalögin þéttast.
Alltaf fitnar Matti Matt,
meðan aðrir léttast.
Höf. ókunnur.
-HP
Óskum að ráða
röskan og áreiðanlegan starfskraft á
auglýsingadeild DB nú þegar, hálfan
eða allan daginn. Vélritunar- og
íslenzkukunnátta nauðsynleg. Uppl. í
síma 27022.
JiMEBIAÐIÐ
með slitsterkum sólum
LOÐFOÐRAÐIR LEÐURKULDASKOR Hrágiímmíáferð
Teg.411
Nr. 38—46.
Kr. 4.800.
Litur: Brúnn.
Teg. 403.
Nr. 38—46.
Kr. 6.830.
Litur: Svart
með rennilás.
Teg. 427
Nr. 38—46
Kr. 6.260.
Litur: Brúnn.
Teg. 7359
Kr. 40—46.
Kr. 8.190.
Litur: Brúnn.
Póstsendum Opið föstudag til 6.30
samdægurs Iaugardag9-12
Domus Medica
Eiríksgötu 3 Sími