Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER 1977.
Leikbrúöur:
ELDGAMLAR
EN SÍUNGAR
Brúðuleikur kemst nú sífellt
meira f tizku. Fyrir svo sem
einu til tveim arum voru brúðu-
leikrit aðeins færð upp fyrir
börn sem nokkurs konar „mini-
leikhús". En nú fara sýningar
sífellt að stækka og þeim fjölg-
ar óðfluga. Fullorðnir, ekki síð-
ur en börn, hafa lika gaman af
brúðunum. Kröfur þær sem
gerðar eru til brúðuleikhús-
anna aukast lika. Og stjórnend-
ur þeirra fá sifellt meira lof og
eru margir hverjir heimsfræg-
ir, t.d. Jim Henson pabbi Prúðu
leikaranna.
En upphaf leiks með brúður
er órafjarri í sögunni og í raun-
inni óþekkt. Þó er vitað með
vissu um nokkra menn f forn-
öld sem bjuggu sér til brúður
og settu upp sýningar með
þeim. I Grikklandi S sögutim-
um var brúðuleikur mjög vin-
sæll. Ekki ómerkari menn en
Herodotus (uppi 458-425 fyrir
Krist) flutti þð hefð yfir frá
Egyptalandi. Meistari brúðu-
leikjanna i Aþenu var Xenoph-
on (uppi 430-352 fyrir Krist)
sem meðal annars var nemandi
Sókratesar.
Rómverjar tóku svo upp
þennan skemmtilega leik.
Upphaflega fluttu þeir inn
brúður fra Grikklandi. Valda-
menn þjóðarinnar á borð við
Marcus Aurelius sýndu mikinn
áhuga á brúðuleik. Á þeim tima
voru brúðurnar búnar til úr
brenndum leir og settar saman
á mjöðmum og öxlum.
Kínverjar komu með nokkrar
brúður til Japans að sögn á 12.
öld. En þær brúður gleymdust
brátt. En nokkru seinna komu
þær aftur fram í Japan og voru
þá nefndar Bunraku eftir
manni þeim sem fann þær upp,
ef svo má taka til orða. Höfuðið
var úr tré en hægt var að
hreyfa það. Bunrakurnar gátu
þannig brosað og lokað augun-
um. Sögurnar sem aðallega
voru sagðar með hjálp brúð-
anna voru gamlar riddarasög-
ur. Eitt leikhús f Bunraku stíl
er ennþá til i Osaka.
En í Kina voru brúður þekkt-
ar í mörg þúsund ár áður en
þær náðu til Evrópu. Þar voru
notaðar bæði strengja- og hand-
brúður og jafnvel brúður sem
stóðu á priki sem fært var til.
Brúðurnar voru mjög vinsælar
þar í landi og miklar og stórar
brúðuleiksýningar fóru fram.
Miðaldakirkjan var ekki allt
of hrifin af brúðunum. Þær
voru taldar af hinu illa þar sem
þeim tókst að ná meiri athygli
en kirkjunni tókst. En yfir-
menh kirkjunnar sáu þó að til-
gangslaust var að banna brúð-
urnar svo þeir ákváðu í leynd
að nota þær trúnni til fram-
dráttar. Og þá var tekið upp það
nafn á svona brúðum sem enn
er notað víðast hvar i Evrópu
Marionette — litla Maria.
Helgileikir með brúðum urðu
þá brátt ákaflega vinsælir
meðal fyrirfólks. A mörkuðum
og öðrum stöðum þar sem al-
múginn kom saman voru brúð-
ur teknar fram mönnum til
gleði. Oftast voru þó ekki færð
upp eins merkileg stykki og í
húsum aðalsins. Það varð til
þess aðvaldamennfóruað reyna
að fá þvi framgengt að brúð-
urnar yrðu bannaðar. En það
tókst ekki
I nútíma lífi eru brúður eins
sjálfsagður hlutur og mest get-
ur verið. Börnin eru send að sjá
meistara Jakob og við fullorðna
fólkið sitjum fyrir framan sjón-
varpið þegar Prúðu leikararnir
birtast. En brúðurnar núna eru
ólíkt fjölbreyttari en þær voru.
Þó eru enn gerðar leirbrúður
sem ekki geta hreyft nema
hendur og fætur. A meðfylgj-
andi myndum getur að Hta'
nokkrar slikar brúður sem
gerðar voru i Salzburg. Þær
voru síðan látnar leika óperur
Mozarts við mikla hylli áheyr-
enda og áhorfenda.
DS-þýddi.
c
Verzlun
Verzlun
verziun
BUeHTAL
keramikflísar.
„ÚTI & INNI“
Á GÓLF 0G VEGGI.
Komið og skoðið
eitt mesta flísaúrval
landsins.
JL-húsið
Bvggingavörukjördeild
Sími 10600.
Þungavinnuvélar
\llar gerðir og slærðir vinnuvéla og vörubila á söluskrá.
Hlvemnn úrvals vinnuvélar og bíla erlendis frá.
Vlarkaðstorgið, Einliolli 8, simi 28590 og 74575 kviildsimi.
MOTOROLA
Allernalorar í liila og hála, (i/12/24/32
volla.
I'lalinnlausar transislorkveikjur i flesla
bila.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. Anpúla 32. Simi 37700.
0&B
Simi 40299_______
INNRÉTTINGAR
Auðbrekku 32, Kópavogl.
Eldhúsinnréttingar. Hnota og eik.
Til afgreiðslu innan 2ja til 3ja vikna.
Upipstilltar ávstaðnum.
Vhrzlunin ÆSA auglýsir:
Setjum gulleyrnalokka I eyru
með nýrrl tækni.
Notum dauðhreinsaðar gullkúlu
Vinsamlega pantið i sima 23622.
Munið að úrvalið af tizkuskart-
grlpunum er í ÆSU.
12.
Á