Dagblaðið - 18.11.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER1977.
9
S- „SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
viðskipta- 77 r
» ÆTTIAÐ RAÐA MUN MEIRU”
„Kosningabarátta mín er nú
aðallega fólgin i því að ég hef
gefið út kynningarbækling, sem
dreift hefur verið,“ sagði Konráð
Adolphsson viðskiptafræðingur
og forstöðumaður Dale Carnegie-
Sigurður Angantýs-
son deildarstjóri
tæknideildar
Sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar:
„Heilbrigðismálin eru mér auð-
vitað efst í huga en þau eru það
fjölþætt, að varla er hægt að
nefna neitt eitt sérstakt," sagði
Sigurður Angantýsson rafvirki í
viðtali við DB. „Ég er deildar-
Konráð Ingi
Torfason
byggingameistari:
Konráð Ingi Torfason
„ATVINNUMALIN OG VINNU-
LÖGGJÖFIN ERU MÍN MÁL”
„Atvinnumálin eru mér, sem
iðnaðarmanni, ákaflega hug-
stæð,“,sagði Konráð Ingi Torfa-
son byggingameistari í viðtali við
DB. „Ég er innilega sammála
þeirri umræðu sem orðið hefur
um atvinnumál okkar Reykvík-
inga að undanförnu og mér finnst
eins og fleirum borgin hafa orðið
útundan og þurfa að snúa til
sóknar gegn landsbyggðinni."
Konráð er í framboði til próf-
kjörs sjálfstæðismanna hér í
Reykjavík núna um helgina.
Hann hefur starfað lengi í Sjálf-
stæðisflokknum, er formaður
sjálfstæðisfélagsins í Arbæjar-
hverfi og starfaði lengi í Heim-
dalli.
„Það er að mínu viti ljóst að
landsbyggðin hefur notið snöggt-
um stærri hluta fvrirgreiðslu til
framkvæmda og er það óeðlileg
þróun gagnvart okkur Reykvík-
ingum. Eins þyrfti að skoða
vinnulöggjöfina nánar, þessi tíðu
verkföll eru engum til góðs, enda
þótt afstaða launafólksins sé
skiljanleg."
Konráð kvaðst ekki myndu
standa í mikilli kosningabaráttu
úr þessu og sagði framboð sitt
þannig til komið að kjörnefnd
flokksins hefði leitað til hans um
framboð og hann slegið til.
- HP
Sigurður Angantýsson
Kaupa flugskýli fyrir 161 millj.
Flugleiðamenn tóku fram
sparisjóðsbókina á dögunum og
keyptu sér flugskýli númer 4 á
Reykjavíkurflugvelli. Verð
byggingarinnar var 161.5 millj-
ónir. Seljandi er samgöngu-
ráðuneytið. Skýli þetta hýsir nú
verkstæði, sem notuð eru til
viðgerða, viðhalds og eftirlits
með flugvélum Flugfélags ís-
lands hf. Var það tekið i notkun
skömmu eftir að flugskýli 5 á
flugvellinum brann. Áður hafði
skýlið aðeins verið notað til að
hvsa flugvélar.
Flugmálastjórn hefur síðan
látið gera við skýli 4, ytra
byrðið og einangrun þess. Flug-
leiðir létu og reisa 1000 fer-
metra hús við hliðina á skýlinu,
auk þess sem nyú raflögn var
lögð og vinnuljós sett upp.
námskeiðanna í viðtali við DB.
„Ég hef verið áhugapólitíkus í
mörg ár og alltaf haft áhuga á
landsmálum.
Ef til þess kæmi að ég veldist á
lista Sjálfstæðisflokksins myndi
ég leggja áherzlu á að stefnu
flokksins yrði framfylgt mun
betur en verið hefur. Með því er
ég ekki að segja að stjórnarstarfið
hafi ekki verið gott en ég tel að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði mátt
ráða þar meiru um stefnuna."
- HP
Konráð Adolphsson
„Heilbrigðismálin eru
efst á listanum”
stjóri tæknideildar Sjúkrastofn-
ana Reykjavíkurborgar og hef því
sem slíkur haft afskipti af heil-
brigðismálum."
Sigurður hefur vei^ið í stjórn
málfundafélagsins Öðins frá 1970
en hann gekk i Sjálfstæðisflokk-
inn árið 1956.
„Framboð mitt er þannig
tilkomið að nokkrir vinir mínir
fóru fram á þetta við mig og skil-
uðu inn meðmælendalista. Eg hef
vegna starfans ekki haft mikinn
tíma tii eiginlegrar kosningabar-
áttu en ég mun ekki liggja á liði
mínu ef ég verð valinn á listann."
- HP
SS-Austurveri opnar Sparimarkað:
Vörulager stórverzlunarinnar
opnaöur öllum almenningi
Vörur frá á annað hundrað heildsölum á markaði við Háaleitisbraut
A sama tíma og verið er að
leyfa hækkun álagningar hjá
Verðlagsnefnd harðnar stríðið
um að hafa sem ódýrastar vörur
á markaðinum. í dag kl. 2 opn-
aði svokallaður Sparimarkaður
sem tengdur er SS-búðinni í
Austurveri. Opnun Sparimark-
aðarins táknar á vissan hátt
tímamót í verzlunarháttum f
höfuðborginni.
Sparimarkaðurinn á Háa-
leitisbraut er byggður upp
þannig, að vörulager hinnar
stóru SS-búðar í Austurveri er
opnaður almenningi. Stendur
hann öllum opinn eftir klukkan
2 dag hvern.
í Sparimarkáði SS er aðeins
hægt að kaupa í heilum kössum
eða f stórum einingum. Er um
verulegan afslátt að ræða þegar
þannig er keypt. Álagningin er
yfirleitt 15% í stað álagningar
allt upp f eða yfir 50%. Þarna
er gífurlegt vöruúrval, þvf
stórar markaðsbúðir eins og SS
í Austurveri hafa breiðara og
fjölbreyttara vöruúrval en
nokkrar aðrar búðir. Og þar
sem Sparimarkaðurinn er
sjálfur vörulager verzlunarinn-
ar getur þar að líta ótrúlegt
vöruval.
Auk nýlenduvara og niður-
suðuvara er á Sparimarkaðin-
um stærðar kæliklefi. Við-
skiptavinir markaðarins aka
vögnum sínum inn í þennan
klefa, velja sér þar ávexti og
alls kyns landbúnaðarafurðir.
Þar eru t.d. ostar og smjör á
sama verði og í Osta- og
smjörsölunni.
Komið var fyrir á fagernum
stærðar frystiborði, þar sem
viðskiptavinum er boðið kjöt i
heilum skrokkum sagað niður á
ýmsan hátt. Allt er þetta tilbúið
f plastpokum.
A Sparimarkaðinum er að
finna t.d. sælgæti í kartonum,
alls kyns vörur til bruggunar
öls og léttra vfna og er allt
ódýrara en annars staðar.
Þá er það nýjung að gos sé
selt f heilum kössum með af-
slætti. Nemur afslátturinn 7%.
Nýtt er að afsláttur er veittur
af tóbaki í kartonum, nemur
hann 3%.
Jóhannes Jónsson verzlunar-
stjóri sagði að Sparimarkaður-
inn verzlaði við alla heildsala
Reykjavíkur, birgðastöð SÍS og
allar þjónustustöðvar í mat-
vælaiðnaði. Það talar sínu máli
um vöruvalið.
Auk afsláttarins geta neyt-
endur þarna tryggt sig fyrir
verðbólgu fram f tímann, því
vörur hækka mjög oft, og með
þvf að kaupa í stærri einingum
búa menn lengur að vöru á
eldraverði. - ASt.
I nýja Sparimarkaðnum sem komizl er i með því að fara suðurfyrir nýbygginguna við Austurver. Hér
sér inn í kæliklefann. Jóhannes verzlunarstjóri (á hvítum siopp) Gunnar lagerstjóri lengst t.v. og
starfsfólk.