Dagblaðið - 18.11.1977, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER1977.
Undanfarið hefur fólki orðið
talsvert tíðrætt um hin auknu
umsvif hins opinbera á hinum
ýmsu sviðum þjóðlífsins, ekki
hv^ð síst í atvinnuvegunum.
Hefur fólk verið misjafnlega
ánægt með þá þróun að ríkis-
báknið þenjist sifellt út, og
hafa menn mjög skipst í flokka
eftir afstöðu sinni til þessara
mála.
Aukin ríkisumsvif
í stjórnartíð
sjálfstœðismanna
Þrátt fyrir að nú sitji að
völdum í landinu ríkisstjórn
sem margir vilja nefna hægri
stjórn, undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins, þá hafa umsvif
hins opinbera aukist á valda-
tíma hennar. Fjárlögin hafa
hækkað ár frá ári og ríkið
grípur nú inn í á æ fleiri
sviðum þjóðlífsins. Er það að
vonum að þetta hefur valdið
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins miklum vonbrigðum,
enda var á það lögð mikil
áhersla, er flokkurinn var í
stjórnarandstöðu, að opinber
umsvif yrðu að minnka.
Það eru einkum ungir sjálf-
stæðismenn sem hafa lagt
áherslu á að hér sé verið að fara
út á óheillavænlegar brautir og
hafa þeir lagt mikla áherslu á
að draga verði úr umsvifum
hins opinbera. Hafa þeir lagt
mikla vinnu í undirbúning og
kynningu þessara stefnumála
sinna, og varla mun það manns-
barn vera til í landinu sem ekki
veit hvað stefnan sem felst í
orðunum „Báknið burt“ þýðir.
Eiga ungir sjálfstæðismenn
miklar þakkir skildar fyrir
þetta framlag sitt til þess að
benda á raunverulega stefnu
Sjálfstæðisflokksins, ekki hvað
síst fyrrum formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna,
Friðrik Sophusson.
Það er ótvírætt stefna Sjálf-
stæðisflokksins að hlúa að
einstaklingsrekstri í landinu og
jafnframt að sjá til þess að
opinber umsvif vaxi ekki úr
hófi fram. Þessara stefnumála
hefur núverandi ríkisstjórn
ekki gætt nægilega vel og því er
full ástæða fyrir þeirri gagn-
rýni sem ríkisstjórnin hefur
orðið fyrir frá sjálfstæðismönn-
um sjálfum. Sá er vinur er til
vamms segir og ætti því þessi
gagnrýni að vera vel þegin.
Ekki skal hins vegar reynt að
Einkarekstur
fái aukin
tækifærí
draga fjöður yfir það að erfitt
er að starfa með framsóknar-
mönnum í ríkisstjórn og ekki
við því að búast að við sjálf-
stæðismenn náum fram öllum
okkar stefnumálum f þessu
stjórnarsamstarfi. En einmitt
það ætti að verða okkur hvatn-
ing til að gera enn betur í
kosningunum í vor en áður því
aðeins enn aukið fylgi Sjálf-
stæðisflokksins getur tryggt
framgang stefnumála hans.
Barátta gegn ofvexti rikis-
báknsins ætti að geta verið
öllum sjálfstæðismönnum sam-
eiginleg enda er hér um að
ræða það mál sem greinir Sjálf-
stæðisflokkinn frá öðrum ís-
lenskum stjórnmálaflokkum,
öðrum málum fremur.
Afstaðan til einkareksturs og
ríkisreksturs er það sem öðru
fremur skiptir Islendingum f
stjórnmálaflokka.
Ekki lögmói frum-
skógarins heldur
eðlileg sjólfs-
bjargarviðleitni
Það, að barist er gegn
sfaukinni útþenslu rfkis-
Kjallarinn
Hrönn Haraldsdóttir
báknsins, þýðir hins vegar ekki
að hér eigi að gilda lögmál
frumskógarins, að hnefa-
rétturinn skuli ráða f samskipt-
um manna.
Heldur ekki að félagslegri
þjónustu skuli hætt eða hún
minnkuð hættulega mikið.
Það sem til umræðu er, er að
einstaklingarnir fái að spreyta
sig f atvinnulífinu, þeim sé gert
kleift að eiga sfn eigin fyrir-
tæki, stór og smá, en ekki að
allt sé ofurselt valdi stjórn-
málamanna er ferðinni ráða
hverju sinni. Reynslan sýnir að
þar sem eintaklingarnir og
félög þeirra fá að starfa er út-
koma fyrirtækja einna best.
Þar kemur til betri rekstur og
betri stjórnun sem eiga
skýringar f því að fólk leggur
sig meira fram ef það er að
starfa f eigin fyrirtækjum, ef
það uppsker eins og það sáir, í
stað þess að vinna við stór og
mikil fyrirtæki í eigu hins
opinbera.
Það mun því óhætt að
fullyrða að eigi að koma efna-
hag landsins aftur á réttan kjöl
verður að gera einstaklingana
virkari f athafnalífinu. En til
þess að svo megi verða verður
að stöðva þá óheillaþróun, að
ríkið taki sífellt til sfn meira og
meira fjármagn, en sú þróun
hefur verið mjög ríkjandi und-
anfarin ár. Spariskírteini og
happdrættislán sem tekju-
öflunarliður rfkisins hefur gert
það að verkum að tilfinnanleg-
ur skortur er á fjármagni f
bankakerfinu. Fjármunir þeir
sem ella hefðu farið inn á
reikninga sparifjáreigenda
liggja nú hjá rfkinu. Þvf er
það að bankarnir eru því nær
lokaðir og fyrirtæki fá þvf ekki
nauðsynleg lán til uppbygging-
ar og reksturs.
En um leið og rætt er um að
einstaklingunum og félögum
þeirra skuli gefið meira frelsi
til athafna, skal skýrt tekið
fram, að þessi stefnumál eiga
alls ekki að bitna á félagslegri
þjónustu þeim til handa er
hennar þarfnast. Enginn ber
brigður á rétt aldraðs fólks til
mannsæmandi eftirlauna eða
rétt öryrkja til örorkubóta.
Hins vegar þarf að gæta þess að
einkum þeir, sem á slfkri aðstoð
þurfi að halda, njóti hennar, en
ekki hver sem er án tillits til
tekna og annarra aðstæðna.
Ljóst er að fjöldi fólks hér á
landi nýtur ýmiskonar styrkja
og bóta án þess að þurfa á því
að halda. Þetta þarf að koma f
veg fyrir, enda er það ein for-
senda þess að unnt sé að gera
vel við þá sem raunverulega
eru hjálparþurfi.
Aukum athafnafrelsi
einstaklinga, minnkum
opinber afskipti
I því prófkjöri, sem nú
stendur fyrir dyrum hjá sjálf-
stæðismönnum, er þvf þess að
vænta að sjálfstæðismenn veiti
því fólki brautargengi sem
berst fyrir auknu frelsi
eintaklinganna í atvinnullfinu,
enda er lítið orðið eftir af
stefnumálum Sjálfstæðis-
flokksins ef það er látið liggja í
láginni.
Bætt staða einkareksturs í
landinu þýðir betri stöðu
þjóðarbúsins í heild. Bætt staða
einkareksturs í landinu þýðir
að meira fé verður unnt að
veita til þeirra sem eru hjálpar-
þurfi. Bætt staða einkareksturs
1 landinu mun færa fjölda fólks
hamingju við að fá að starfa I
eigin fyrirtækjum, án alltof
mikilla afskipta hins opinbera
sem aðeins ætti að grípa þar
inn í sem annað verður ekki
umflúið. En hvar sem þvf
verður viðkomið ætti að gefa
einstaklingunum tækifæri til
þess að spreyta sig, slfkt mun
borga sig þegar frammf sækir.
Hrönn Haraldsdóttir
forstjóri.
Verzlun
Verzlun
Verzlun
Framleiðum eftirtaldar
gerðir:
Hringstiga, teppa-
stiga, tréþrep, rifla-
jórn, útistigc úr óli
og pallstiga.
Margar gerðir af
inni- og útihand-
riðum.
VÉLSMIÐJAN
JÁRNVERK
ARMULA 32 — SÍMI 8-
4606.
Kynnið yður okkar hagstæða verð
SJIIBl4 SmiBBHI
IsleniktHiigvitúgHaiiðmk
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
ISVERRIR HALLGRÍMSSON
1 SmfBattofa,Trönuhra»nl 5. Sfml: 51745.
Vérzlunin /ESA auglýsir:
Setjum guneyrnalokka í eyru
með nýrri tækni. ^
Notum dauðhreinsaðar gullkúlu
Vinsamlega pantið í sima 23622.
Munið að úrvalið af tfzkuskart-
t,- ipun um er i /Lsl'.
A
Skemmtilcgar
krossga'tur
°S
brandarar
\jJAH
KADSS •
um
Nýjar
krossgátur
nr. 11 komnarút.
Fæstiöllumhelztu
söluturnum og
kvöldsölustöium
iReykjavik
og litumlandii.
•
Einnig iöllum
meiriháttar
bókaverzlunum
umlandiiallt
Austurlenzk
undraveröld
opin á
Grettisgötu 64
S/MI 11625
MOTOROLA
Allernalurar i bila og hála. 6/12/24/32
volta.
IMalinulausar transistorkveikjur i flesta
bila.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. Anpúia 32. simi 37700.
s\k \MÁI. \S(ii;i k
SAKAMALA-
SÖGUR
Ógn næturinnar
Týnda konan
\ ■ Ástkona satans
Féll á sjálfs síns bragöi
' Síöasta verk
/j *> lögreglustjórans
■WmÁ Gleöikonan fagra
FÁSTIBÓKA- OG BLAÐSÖLUSTÖÐUM
Skrífstofu
SKRIFBQRD
Vönduó sterk
skrifstofu ikrif-
boró i þrem
stæróum.
Á.GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiöja.
Auóbrekku 57. Kópavogi. Simi 43144
Þungavinnuvélar
Allar gerðir og stærðir vinnuvéla og vörubila á söluskr^.
Utveguin úrvals vinnuvélar og bíla. erlendif frá.
’ Markaðstorgið. Einholti 8, sími 28590 og 74575 kvöldsimi.