Dagblaðið - 24.11.1977, Side 13

Dagblaðið - 24.11.1977, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER 1977. Kjallarinn Kristinn Snæland Eg hef raunar lengi haldiö fram að vinna á skrifstofu Flat- eyrarhrepps sé tveggja manna verk og verði ekki, miðað við svipaðar framkvæmdir, með nokkru móti unnin sómasam- lega af einum. Þetta sjónarmið er nú jafnvel viðurkennt af Hendrik Tausen. Höfuðpaurarnir í þeirri óreiðu, sem skapaðist í bókhaldinu, erum því við tveir, Hendrik Tausen og ég, og mun- um við sjálfsagt axla hvor sína ábyrgð. Reikningarnir eru nú í endurskoðun og mun niður- stöðu að vænta fyrir áramót. Við þá endurskoðun hafa unnið Þórður Gíslason og fleiri en ekki hef ég verið spurður álits um þá menn. Mitt álit er að vinnubrögð Þórðar hafi verið þannig, eftir að hann hóf þau. störf, að ég geti ekki unað af- skiptum hans af málinu né niðurstöðu. Þórður hefur ítrekað lýst því yfir og borið það út að ég væri búinn að týna gögnum sem hann hefur þó fundið í vörzlu sinni. Til dæmis krafði hann mig um tvær möppur með öllum fylgiskjölum heilsugæzlustöðvarinnar á Flat- eyri og bar það út að ég væri búinn að týna þeim. Þessar möppur fann hann svo á skrif- stofu sinni í Reykjavík. Ekki er útilokað að hann hafi lánað þær Hendrik Tausen til skoðunar þann tíma er Þórður taldi þær týndar. Vinnubrögð Þórðar og tengsl hans við Hendrik Tausen eru þannig að óviðunandi fyrir mig að hann vinni við reikningana. Vœngir hf. Kaflinn „víða liggja þræðir“ væri beint hlægilegur ef ekki væri jafnframt haft í huga hve Dagblaðið hefur fjandskapazt við Guðjón Styrkársson, stjórnarformann Vængja hf. „Víða liggja þærðir“ er dular- fullt heiti á kafla sem fjallar á óskiljanlegan hátt um mál sem allir Flateyringar gjörþekkja nema Hendrik Tausen. 1. marz 1976 hætti þáverandi umboðsmaður Vængja á Flat- eyri störfum og ekki fékkst annar 1 hans stað. Málið var nokkrum sinnum rætt á hrepps- nefndarfundum (án bókunar) og loks ákveðið sem þrautaráð að sveitarstjóri sæi um flugið fyrst um sinn eða uns umboðs- maður fengist. Umboðið hvíldi á hrcppnum tvo mánuði en i maí var verkfall hjá Vængjum. I lok þess mánaðar var haldinn aðal- fundur Kaupfélags önfirðinga og fyrir þann fund tók stjórn félagsins þá ákvörðun að taka að sér umboðið. Sú ákvörðun var tekin eftir að sveitarstjóri hafði beitt talsverðum þrýstingi. Stjórnarformaður kaup- félagsins og kaupfélags- stjóri tóku þó fram að það skilyrði væri sett að hreppurinn hlypi undir bagga með akstur á flugvöll, ef svo stæði á. Einstaklingur hafði löngum séð um þennan akstur (tuttugu og fjórir kílómetrar hvora leið) en í forföllum hans hafði sveit- arstjóri stundum tekið að sér aksturinn, enda með meirapróf og eins það að aksturinn lenti gjarnan á hádegismatartímum og þoldi maðurinn vel sveltinn. Þá var og einatt erfitt að fá lausa menn með meirapróf til að hlaupa í skarðið. Þessar ferðir, sem að miklu leyti lentu á einkatíma sveitar- stjóra fóru því a taugarnar á Hendrik Tausen , og fleiri hreppsnefndarmönnum, sem að sjálfsögðu þótti heldur ekki ,,fínt“ að sveitarstjórinn stund- aði aksturinn. Fór því svo að á hreppsnefndarfundi 20. janúar 1977 var samþykkt eftir fyrir- spurn frá sveitarstjóra að hann færi ekki oftar í akstur fyrir Vængi hf. Sunnudaginn 6. febrúar 1977 er næsti hrepps- nefndarfundur og á þann fund er hringt og leitað eftir aðstoð vegna aksturs á flugvöll. Sam- þykkt var af öllum hrepps- nefndarmönnum að sveitar- stjóri viki af fundinum til þess að bjarga málinu. Hendrik Tausen sat báða þessa fundi. Eftir þetta hljóp sveitarstjóri oft undir bagga með akstur og spurði engan leyfis. Vandamál hreppsnefndar varðandi Vængi hf. eru nú leyst þannig að ökumaðurinn, sem öllu bjargaði, er nú starfs- maður Kaupfélags önfirðinga en núverandi sveitarstjóri hefur ekki meirapróf þannig að hvorki ekur hann fólki á völl né snjóbíl á f jöll. Vandaðurfrágangur Vegna fullyrðinga um marg- ar útgáfur reikninga 1974 og 1975 er nauðsynlegt að taka fram að. fyrri útgáfurnar voru einungis vinnuplögg sem óheiðarlegur maður getur vissulega látið líta út sem endanlega framlagða reikninga. Staðreyndin var sú að þessi vinnuplögg voru vandlega unnin, og vandlega vegna þess að ekki var reiknað með að þau yrðu misnotuð af slíkri mann- gerð sem Hendrik Tausen. Dagblaðið neitar um leiðréttingu Varðandi „Tökum lyklana af Kristni" er það að segja að Dag- blaðið ruglar saman tveim mönnum og segir einungis hálf- an sannleikann, þó allur sann- leikurinn liggi fyrir hjá því í fundargerðunum. Kristján J. Jóhannesson, nú- verandi sveitarstjóri, kom hvergi nálægt lyklamálinu og hann greiddi heldur ekki sjálf- um sér atkvæði í hina nýju stöðu. Kristján V. Jóhannesson, aðal- fulltrúi Frjálslyndra í hreppsnefnd, lagði þetta til í reiði við oddvitann en dró þessa tillögu sína til baka á næsta hreppsnefndarfundi. Kristján J. Jóhannesson var síðan ráð- inn sveitarstjóri með at- kvæðum sjálfstæðismannsins Einars Odds Kristjánssonar, at- kvæði fulltrúa Frjálslyndra, Kristjáns V. Jóhannessonar, og með atkvæði Magnúsar Bene- diktssonar. Athyglisvert við þennan lokaþátt er það að Dagblaðið hefur neitað Kristjáni J. Jóhannessyni um að leiðrétta þennan hluta söguburðarins. 0g svo Er nú svo komið að Dag- blaðið hefur fallið verulega í áliti þeirra mörgu Flateyringa sem það lesa. Hendrik Tausen er í Færeyj- um og ekki viðstaddur lögtök og deilur vegna framkvæmda þeirra í Vatnsfirði sem hann veitir forstöðu. Karvel Pálmason undirbýr valdatöku í Alþýðusambandi Vestfjarða með Tausen í huga sem framkvæmdastjóra og jafn- framt framboð sitt utanflokka á Vestfjörðum með aðstoð Tausens. Til þrautavara ætlar Hendrik sér að verða fræðslu- fulltrúi A.S.V. til að standa þó allavega vel að vigi í út- breiðslustarfinu. Flateyringar láta sér hins vegar fátt um finnast, bíða rólegir eftir niðurstöðu reikninga, kveða ekki almennt upp hvatvíslegan dóm né heldur að þeir ati auri þá menn, sem þó margt hafa gert vel. Flateyringar eru sannarlega gott fólk og vandað, þó átján undantekningar sanni regluna. Kristinn Snæland, fyrrverandi sveitarstjóri, Flateyri. 13 f 1 " .. ^ Myrkur verkfallsins í fyrri grein minni lofaði ég að reyna að skýra nánar núverandi „efnahagsundur“ Færeyinga. Ég gat þess að afkoma Færeyinga væri mjög góð og að aðalorsök þess væri að rikisumsvif væru mjög lítil, ef litið er á hið tröllaukna, stórhættulega ríkisbákn, sem þjóðin okkar stynur nú undir og kemur (að vísu af mörgu fleiru) í veg fyrir að íslenzk alþýða geti haft svipaðar tekjur og frændur okkar í Færeyjum. Færeyingar nota danska alvörukrónu og hafa þess vegna lítið af verðbólgu að segja. Utanríkisþjónustan er kostuð af Dönum, vegamál, samgöngur og margs konar þjónusta er allt dvergvaxið miðað við hið yfir- þyrmandi og á mörgum sviðum alóþarfa þjónustubákn okkar. Fleiri orsakir koma þarna eflaust til greina. Sameiginlegt herbragð Það er nú öllum ljóst að síðasta verkfall, verkfall BSRB, hafði verið vel undirbúið og skipulagt með fullum stuðningi og samþykkt ASl-forystunnar. Nægir að minna á verðbólgu- söng Björns og Kristjáns í út- varpi og víðar. ASÍ-forystan lofar því alltaf fyrir hvert verkfall að semja við alla starfshópa þjóðfélagsins. Þetta hefir ætíð verið svikið, það sannar verkfall hinna opinberu. Því var ekki samið við þá um leið? Eg get ekki skilið hvers vegna verkfallsherinn tekur ekki völdin alfarið í landinu. Alveg sérstaklega hefði það verið auðvelt í síðasta verkfalli: Allt lögregluliðið á bandi verk- fallsmanna, algerlega óhugs- andi að nokkur andstaða yrði. Eru þeir kannski þrátt fyrir „gæsaganginn" og herbúða- gleðina svo miklir aumingjar að þora ekki að taka á sig nokkra ábyrgð en vilja heldur geta sakað einhverja ímyndaða yfir- stétt um þjófnað og yfirgang og heimta allt af öðrum? Það er víst hægt en ósköp er þeir menn auvirðilegir sem haga sér þannig. Útvarpsþulurinn Einn ágætur útvarpsþulur skrifaði mikið um húsbónda- vald fyrir löngu síðan og hvernig þeir beittu því valdi gegn hjúum sínum. Það er hálfleitt þegar gamlir og góðir jafnaðarmenn horfa ætíð til löngu liðinna tíma viðurkenna ekki breytta tíma og sja þess vegna ekki hinn mikla mismun launþegabaráttu fyrr og nú, þegar engan skortir yfirleitt neitt. I fyrsta lagi eru verk- föllin hápólitísk. For- sprakkarnir þurfa að sýna mátt sinn og megin og að þeir hafi húsbóndavaldið á þjóðar- heimilinu og svo er verkfalls- baráttan nú mikil átök milli Kjallarinn IngjaldurTómasson hagsmunahópa sem ætíð endar með sigri þeirra sem bezt eru settir á kostnað láglauna- manna. Agæti útvarpsmaðurinn og fleiri láta gamminn geisa á síðum dagblaðanna en aðeins gegn grein Sigurðar Llndal. Það er eins og þeir sjái ekki fjölmargar greinar sem hafa birzt gegn hinum lúalegustu verkfallsaðgerðum sem þekkzt hafa, að minnsta kosti nú í seinni tíð. Sigurður er áreiðan- lega fullfær að svara fyrir sig, enda flest í hans grein óhrekjanlegar staðreyndir. Það sannast hér að „sannleikanum er hver sárreiðastur". Utvarpsþulurinn afsakar og hvítþvær allar hinar alóþörfu ofbeldisaðgerðir verkfallsins.. Ég nefni aðeins að hann heldur að allar framkvæmdir í læknis- fræði og nýtízku tækni á sjúkrahúsum og víðar sé verk- fallsbaráttunni að þakka. Er það þess v.egna að sjúklingar, bæði á spítölum og heima, eru ekki látnir óáreittir? Ég varð undrandi að þulurinn skyldi geta minnzt á Alþýðubankann! Ljós í myrkri verkfallsins Athyglisverðasti ljósgeislinn í verkfallinu var lokun brennivínsútsölu rikisins. Þótt víst sé að margir vínsalar og einstaklingar hafi birgt sig vel upp fyrir lokunina, sannaðist það fullkomlega að lokun er möguleg. Umferðarslysum og öðrum slysum vegna óspekta af drykkju fækkaði stórlega. Slysavarðstofan hafði það náðugt. Areiðanlega hafa færri leitað læknis vegna drykkju. Það verða sennilega 30-40 dauðaslys á þessu ári. Ég fullyrði að helmingur þessara slysa verður vegna víndrykkju. Þar við bætast hin fjölmörgu slys sem orsaka meiri og minni örorku. Tryggingar bíla verða óhóflega dýrar. Allt þetta kost- ar þjóðina mörgum sinnum meira en víngróða ríkisins nemur. Ætli það væri ekki reynt eitthvað til bjargar ef svo sem tvær togaraskipshafnir færust á ári? Eitt af því jákvæða í þessu verkfalli er að það hefir sýnt sig að þjóðin getur á mörgum sviðum stórminnkað hina ýmsu opinbera þjónustu. Ég nefni aðeins útvarp og sjónvarp. Ég held að þjóðin hefði bara gott af því, bæði uppeldislega og andlega, að dagskrá þessara stofnana yrði stytt að miklum mun. Fólk hefði þá tíma til að slappa af í kyrrð og næði.taka rykfallnar bækur úr bóka- skápum. Margir eiga ágæt hljómflutningstæki og geta val- ið tónlist að vild. Þvi miður er margt af því sem þessir fjöí- miðlar flytja þjóðinni ýmist hörmulega lélegt eða beinlínis mannskemmandi. Þó vil ég taka fram að margt gott er þar flutt. Hvar ó að taka peningana? í samtökum BSRB eru yfir átján þúsund félagar. Gera má ráð fyrir að um tuttugu þúsund manns vinni hjá „hinu opinbera". Segjum að hver hafi tvo á sinu framfæri, það gerir sextíu þúsund manns af liðlega tvö hundruð þúsund manna þjóð. Utgjöld vegna launa- hækkana verða um eðá yfir tlu milljarðar á ári. Það vita allir að annaðhvort verður þessi fjárupphæð tekin af þjóðinni I auknum sköttum eða miklum niðurskurði á bráðnauðsynleg- um verklegum framkvæmdum. Allir vita líka að islenzka þjóðin vinnur ekki fyrir sér. Mismunurinn er jafnaður með stöðugum erlendum lántökum og falskri seðlaprentun (lög- legri þó). 1 grein I Dagblaðinu var haldið fram að margir opinberir starfsmenn hefðu sjálfstæðan atvinnurekstur í aukavinnu og gæti hugsazt að aðalstarfið sæti á hakanum og þá unnin eftirvinna við það. Bent var á að margir opinberir starfsmenn hefðu tvöfalt sumarkaup og allir vissu um hið mikla atvinnuöryggi sem þeir hefðu. Þessu hefur hvergi verið mótmælt. Hvað segir Pétur hér um? Allir vita um hið mikla öryggi sem opinberir starfs- menn njóta I lifeyrismálum. Þeir einir eru fullkomlega gulltryggðir að grafarbakka og líka makinn sem eftir lifir. Þarna hefir skapazt eitt óhugnanlegasta misrétti gagn- vart öðrum landsmönnum, sem um getur. Þessu verða stjórn- völd að breyta með einhverjum ráðum. Ingjaldur Tómasson, verkamaður.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.