Dagblaðið - 24.11.1977, Side 16

Dagblaðið - 24.11.1977, Side 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER 1977. Litið inn á Pálssons Restaurant í New York MR SEMISLENZK KONA RÆÐUR RÍKJUM MED RAUSN Fyrir matelskandi fólk er New York lík og himnaríki á jörðu. Þar er hægt að fá allar hugsanlegar tegundir af mat. Nú er einnig hægt að fá þar íslenzkan og skandínavískan mat. Er það í Pálssons Restaurant, veitingastað sem opnaður var 4. júlí. Einn af eigendum hans er Stella Páls- dóttir eða Pálsson, eins og hún kallar sig hér. Fréttamaður og ljósmyndari DB heimsóttu Páls- sons Restaurant á dögunum. Eins og vin í eyðimörkinni Þegar komið er inn í veitinga- staðinn af háværri götunni er það líkt og komið sé inn í annan heim. Veggirnir eru allir viðarklæddir en Stella, sem er innanhússarki- tekt, hannaði sjálf allar innrétt- ingarnar. Viðurinn á veggjun- um er að visu ekki íslenzkur heldur fenginn frá Connecticut. En matsalurinn er byggður 1 ís- lenzkum baðstofustíl. Á veggjunum hanga listaverk eftir norsku listakonuna Liv Hassel og einnig eru þarna batik- myndir eftir Katrfnu og Stefán. Þessi listaverk eru mjög falleg og f ara vel á viðarveggjunum. Þarna eru einnig eins konar hnútalista- verk eftir systur Stellu, Sigþrúði Pálsdóttur. Eftir salnum endilöngum er bekkur með Gefjunaráklæði, mjög smekklegu, í mosagrænu og hvítu. Það fellur mjög vel inn í heildarmynd staðarins. Kokkurinn sómi kokkostéttorinnar Sex manns vinna á Pálssons Scandinavian Restaurant& Bar aurant Samkeppnin í veitingahúsabransanum i New York er hörð en Stella og félagar hennar hafa ekki yfir neinu að kvarta. Staðurinn er þegar orðinn vinsæll meðal þeirra sem sækja ieikhúsin og hafa gaman af því að fá sér gott að borða. lil fuímM iSp* < Hnútalistaverk í borðsalnum sem er innréttaður í baðstofustíl. Fréttamaður DB, Anna Atladóttir skoðar matseðlinn við barinn, sem er vel útbúinn eins og slíkur staður þarf að vera. Kestaurant, einn barþjónn, tvær þjónustustúlkur og er önnur þeirra íslenzk, Hólmfríður að nafni, aðlaðandi stúlka sem býður af sér góðan þokka. Þrír vinna í eldhúsinu. Kokkurinn er finnskur, Martti Menson, og er kokkastéttinni til mikils sóma. Matseðillinn er mjög skandinavískur, mjög fjölbreytt- ur, margir fisk- og kjötréttir fyrir utan hið fræga „smörgásbord" Einnig er hægt að fá ýmsa banda- ríska rétti eins og nautasteikur margs konar, enda varla hægt að hugsa sér matsölustað í New York sem ekki byði upp a slíka rétti. Hráefnið til matargerðarinnar er að mestu Ieyti keypt i New York og engum erfiðleikum er Gömlu skíðin hennar Stellu prýða cinn vegginn.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.