Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.11.1977, Qupperneq 28

Dagblaðið - 24.11.1977, Qupperneq 28
ÞörungaævintýriðíReykhólum: r „ GERVIHAGNAÐUR HJA HEIMAMONNUM — dagblöðin gerð að eigendum „Þar voru mættir 38 karlmenn, bæði hluthafar og starfsfólk verk- smiðjunnar en það sat fundinn i boði stjór'nar Þörungavinnslunn- ar með fullu málfrelsi", eins og segir í frétt af aðalfundi Þörunga- vinnslunnar sem haldinn var fyrir nokkru. Urðu miklar umræður um rekstur verksmiðjunnar og fjár- hagsafkomu og sýndist sitt hverj- um. í skýrslu forstjóra verksmiðj- unnar, Ömars Haraldssonar, kom fram, að miðað við aðstæður hefði reksturinn gengið vel eftir að Heimamenn sf. tóku við honum og lægi fyrir að rekstrarafgangur væri rúmar 12 milljónir króna. Þá ræddi hann hinn mikla skort á heitu vatni, sem væri verksmiðj- unni fjiitur um fót. Vilhjálmur Lúðvíksson talaði næstur og gagnrýndi upplýsingar Omars. Sagði liann að í reikning- um sínum hefðu Heimamenn sf. ekki tekið tillit til afskrifta og vaxta og myndi tapið á rekstri verksmiðjunnar sennilega nema um 150—155 milljónum króna, þegar allt væri talið. Kvartaði Vil- hjálmur einnig um gagnrýni á verksmiðjuna, sem fram hefði Þangprammarnir hafa revnzt illa; i sumar lá við stórslysi þegar einum þeirra hvolfdi. komið í fjölmiðlum, einkum Dag- blaðinu. Bragi Björnsson, öflunarstjóri verksmiðjunnar, kvaddi sér hljóðs og taldi rétt að þeir sem sæju um þangöflun kynnu eitt- hvað til sjóverka. Þessu til stuðn- ings minnti hann á, að hann og- Sigurður Hallsson efnaverkfræð- ingur myndu vera þeir menn sem mest hefðu skriðið um fjörur í Breiðafirði. Sagði hann skurðar- prammana hinar mestu vand- ræðafleytur, þeim væri sífellt að hvolfa og væru stórhættulegir. I framhaldi af umræðum um fjölmiðlana og gagnrýni þeirra á vcrksmiðjuna kom fram fyrir- spurn frá Sveini Guðmundssyni hvort honum væri heimilt að gefa Alþýðublaðinu, Dagblaðinu, Morgunblaðinu, Vísi og Þjóðvilj- anum hverju um' sig hlutabréf i verksmiðjunni, 5000 krónur hvert. Var það má! tekið ti! athug- unar hjá stjórninni, en fyrst verða aðrir hluthafar sér forkaupsrétti. afsala - HP „Myndin túlkar góða mannlýsingu," sögðu dómnefnd- armenn í Minoltakeppninni meðal annars um þessa mynd eftir Lars Björk, sænskan ljós- myndara, sem búið hefur hér á landi um margra ára skeið. Lars fékk 3. verðlaun í Minolta- samkeppninni hjá Dagblaðinu og Vikunni fyrir mynd þessa. Bakkröfum Blaðaprents hf. á hendur Dagblaðinu hrundið fyrir dómi I borgardómi Reykjavíkur var nýlega kveðinn upp dómur í máli, sem Blaðaprent hf. höfð- aði á hendur Dagblaðinu hf. Tildrög þess, að mál þetta kom til dómstólameðferðar, voru í meginatriðum ágreiningur á milli Blaðaprents annars vegar og Dagblaðsins hins vegar um álagsprósentu á prentungar- kostnað þann tíma sem Dag- blaðið var prentað hjá prent- smiðju Blaðaprents hf. Stofnsamningur Blaðaprents hf. kveður á um beztu kjör fyrir prentun þeirra blaða, sem að honum stóðu. Dagblaðinu var gert að greiða tiltekið álag á þau kjör, þegar það hóf við- skipti sín við prentsmiðjuna. Hafði Dagblaðið greitt þá reikninga sem fram höfðu verið lagðir af hálfu Blaðaprents hf. Sem fyrr segir varð ágreining- ur um álagsprósentu á prent- unarkostnaðinn. Taldi Dagblaðið hf. eftir at- vikum rétt að láta dómstóla gera út um ágreininginn, ef Blaóaprent hf. kysi að fara þá leið. Krafa Blaðaprents hf. nam rúmlega 6.6 milljónum króna auk vaxta og málskostnaðar af þeirri fjárhæð. 1 dómsorði borgardóms segir svo: Stefndur Dagblaðið hf. greiði stefnanda, Blaðaprenti hf., krónur 1.544.220,00 með 13% ársvöxtum frá 1. febrúar 1976 til greiðsludags og krónur 78 þúsund upp í málskostnað. Að öðru leyti á hvor aðili að bera sinn kostnað af málinu. Magnús Thoroddsen borgar- dómari kvað upp dóminn. Hafnaði dómurinn þannig al- farið meira en þrem fjórðu hlutum kröfugerðar Blaða- prents hf. á hendur Dagblaðinu og kveður sérstaklega á um, að málsaðilar verði sjálfir að bera kostnað af málinu að öðru Ieyti en þeirri fjárhæð, sem óum- deild var, ca kr. 250 þús. Var þannig hrundið bakkröf- um Blaðaprents hf. á hendui Dagblaðinu að öðru leyti en því, sem að framan greinir. - BS 3. verðlaun ÍMINOLTAKEPPNINNI: MANNLYSING Bæjarst jórinn st jómar nú dísilmótomum Blindbylur var á Eskifirði í gær og hafði einnig snjóað nótt- ina áður. Sást varla á milli húsa í gær en á flestum stöðum var unnið af kappi, m.a. verið að pækla síld. Eskfirðingar hafa haft nóg rafmagn síðan á föstudaginn, en þá var það síðast skammtað. Austfirðingar hafa annars fengið að kenna óþyrmilega á rafmagnsleysi í vetur, því skorturinn byrjaði i fyrstu snjó- um og frostum fyrir hálfum mánuði. Þrátt f.vrir aðeins smá- frost, fjórar gráður, stoppuðu bæði Lagarfossvirkjun og Grímsárvirkjun samtímis. Varð þá alit í senn, rafmagnslaust, sjó.nvarpslaust og símalaust. Nú er á Eskifirði keyrður dísilmótor til rafmagnsfram- leiðslu og er Jóhann Klausen fyrrum bæjarstjóri mótoristi. Fer honum það starf mjög vel úr hendi, enda er hann katt- þrifinn maður og engin hætta á að dísilvélarnar stoppi vegna vanhirðu. - Regína/ ASt. frjálst, áháð daghlað FIMMTUDAGUR 24. NÖV. 1977. Mata Hari íReykjavík Mata Hari, njósnarinn og gagn- njósnarinn frægi sem flestir hafa ugglaust lesið um, hefur heldur en ekki hlotið upphefð. 1 síðasta Lögbirtingarblaði er fyrirtæki eitt auglýst, nýtt firma, og ber það nafn þessa alræmda kvenmanns, Mata Hari hf. Að sjálfsögðu er hér um að ræða tízkuverzlun. Nöfn þeirr.a þykja bera af í nafngiftum. Tízku- búðin mun eiga að starfa í Reykjavík. Sorptunnur úr plasti ogáhjólum —reyndaríhöfuð- borginni. Stærri íláten veriðhafa eigaaðleysaaf hólmiótaítunnur Allsherjarúttekt fer nú fram á öllu er varðar sorpmál Reykyík- inga og má líklegt telja að ýmsar breytingar verði á framkvæmd þeirra mála er yfir lýkur,“ sagði Pétur Hannesson, fbrstöðumaður hreinsunardeildar Reykjavíkur- borgar í samtali við Dagblaðið. „Jón Erlendsson verkfræðingur vinnur alveg að úttektinni og nýtur aðstoðar tveggja annarra verkfræðinga eftir þörfurn." Pétur sagði að i úttekt þessari væru allar hliðar málsins skoðaðar, sorphirðingin og að- ferðir við hana, sorpeyðingin og aðferðir við hana og skipulagið á sorphaugunum. Meðal þess sem verið er að athuga eru sorpílát við hús. Hafa verið keypt til reynslu stærri ílát en núverandi tunnur. Eru það t.d. 240 lítra plasttunnur og aðrar Í20 lítra. Plastílátin sem nú er verið að reyna eru á hjólum og því meðfærilegri en núverandi ílát fyrir þá er að sorphirðingunni vinna. Er verið, með þessum til- raunum, að reyna að finna auð- veldari og fljótlegri leið við sorp- hriðingu en nú tíðkast. Þykja nokkur vandkvæði á miklum fjölda sorptunna við hvert hús og ætla menn að haganlegra sé að hafa þar stærri ílát. Pétur sagði að samræming allra þátta sorphirðingarinnar væri mjög þýðingarmikil því miklar fjárhæðir væru í veði. Niður- stöður úttektarinnar munu liggja fyrir innan skamms og á þeim verða byggðar nýjar úrbætur og breytingar. - ASt. i í i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.