Dagblaðið - 21.12.1977, Page 8

Dagblaðið - 21.12.1977, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977. Bandaríkin: r MITCHELL UR FANG- ELSI í SJÚKRAHÚS John Mitchell fyrrum dóms- málaráðherra Bandarikjanna verður leyft að yfirgefa fangelsi það sem hann dvelst i í Alabama í næstu viku. Að sögn opinberra aðila vestra þarf Mitchell að leggjast inn á sjúkrahús vegna veikinda í mjöðm. John Mitchell var dómsmála- ráðherra í ríkisstjórn Nixons fyrr- um Bandaríkjaforseta. Varð hann að segja af sér embætti vegna tengsla sinna við svokallað, Watergatemál og tilraunir til að þagga það niður. Hlaut dómsmála- ráðherrann fyrrverandi í fyrstu 30 mánaða til átta ára dóm en sfðastliðið haust var dómurinn mildaður og hljóðar nú ekki upp á nema eins til fjögurra ára fang- elsi. Heimild Mitchell til að dvelja utan fangelsisins er aðeins tima- bundin að sögn Griffen Bell nu- verandi dómsmálaráðherra. Ráð- herrann sagði ekki hve lengi John Mitchell yrði heimilað að dvelja utan fangelsismúranna. Admlrai Loksins á íslandi Búningar: ENGLAND - WEST HAM - LEEDS - M. UNITED 0. FL. einnig ADMIRAL ÆFINGABÚNINGAR BERRI og HENSON búningar á flest fclenzk lið — Póstsendum Danskir æfingagallar — Gott verð Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44—Sími 11783 John Mitchel!, fyrrum dómsmálaráðherra Nixons, sem kom svo mikið við sögu Watergatemálsins, fer nú á sjúkrahús vegna sjúkdóms í mjöðm. Begin kominn heim Menachem Begin, forsætisráð- herra Israels, kom í gær til Tel Aviv úr ferð sinni til Washington og Evrópu en þar gerði hann Carter Bandaríkjaforseta og öðrum vestrænum ráðamönnum grein fyrir nýjum tillögum sínum til friðar í Miðausturlöndum. Begin mun hitta Sadat forseta Egyptalands á jóladag á heimili hins síðarnefnda í borginni Ismalibad. Landvarnaráðherra Israels, Ezer Weizman, kom í óvænta heimsókn til Egyptalands í gær. Ræddi hann við egypzka land- varnaráðherrann og einnig Sadat forseta. Ekki hefur verið sagt neitt opinberlega um erindi Ezer Weizman til Kairo en búist er við að hann vinni að undirbúningi fundar þeirra þjóðarleiðtoganna Begins og Sadats. r ÍSLENZKAR ÚRVALSGREINAR II Annað bindi safnritsins sem Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala- vörður og dr. Finnbogi Guð- mundsson landsbókavörður hafa búiö til prentunar. Fyrsta bindi úr- valsgreinanna kom út í fyrra og hlaut miklar vinsældir. ALMANAK Hins íslenska þjóðvinafélags með ÁRBÓK ÍSLANDS Almanakið er eitthvert fróölegasta heimildarit sem út er gefið á ís- lensku. Ritstjóri er dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur en höfundur árbókarinnar Ólafur Hansson prófessor. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 - Reykjavík - Sfmi: 13652 ANDVARI 1977 Aðalgrein hans er ævisöguþáttur Egils Gr. Thorarensens kaupfé- lagsstjóra í Sigtúnum á Selfossi eftir Guömund Daníelsson rithöf- und, en aó auki flytur tímaritiö fjölbreytt efni. Ritstjóri er dr. Finnbogi Guðmundsson lands- bókavörður. Erlendar fréttir Bandaríkin: CARTER r A HNETU- BÚINU UM JÓLIN Jimmy Carter Bandaríkjafor- seti flýgur í dag til heimabæjar síns, Plains í Georgia, þar sem hann ætlar að dvelja um jólin. Að sögn talsmanna hans mun hann undirbúa heimsreisu sína en að öðru leyti hafa hægt um sig. Carter hyggst dveljast til 26. desember í Plains en síðan hefur hann fyrirhugaða ferð sína hinn 29. des. og fyrsti viðkomustaður- inn verður Pólland. Síðan er ferð- inni heitið til íran, Indlands, Saudi-Arabíu, Frakklands og Belgiu. Bandaríkjaforseti mun verða kominn aftur til Washington 6. janúar á næsta ári.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.