Dagblaðið - 21.12.1977, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
9
íran:
343 látnir i
jarðskjálfta
Vitað er um að minnsta kosti
þrjú hundruð fjörutiu og þrjár
manneskjur sem látið hafa lífið
í jarðskjálftanum sem varð í
tran í gær.
Ottazt er að manntjón hafi
orðið mun meira því leitar- og
hjálparsveitir hafa ekki getað
leitað að fullu í rústum þorpa í
Suðaustur-Iran en þar varð
skjálftinn harðastur. Nærri
þrjú hundruð manns hafa særzt
samkvæmt opinberum upp-
lýsingum. Flugvélar og þyrlur
vinna nú aó því að koma lyfj-
um, matvælum, tjöldum og
öðrum gögnum til heimilislauss
fólks sem hefst við á víðavangi.
Fremur kalt er nú á þeim
slóðum þar sem jarðskjálftinn
olli mestu tjóni en það mun
vera í um það bil 700 kílómetra
fjarlægð frá höfuðborg tran,
Teheran.
Jarðskjálftinn mældist 6,2
stig á Richterskvarða og mesta
tjónið varð í borginni Zarand
og fjórum þorpum í nágrenni
hennar.
Kanadastjórn lánar
Pólverjum
Kanadastjórn ákvað í gær að
lána Pólverjum 295 milljónir doll-
ara eða jafnvirði um það bil 60
milljarða íslenzkra króna. Lánið á
að nota til að kaupa kanadískar
vörur á næstu tveim árum. Ætla
Pólverjar meðal annars að styrkja
pappírsiðnað sinn með auknum
vélákaupum. Einnig verða keypt
tæki til námugraftar, efnaiðnaðar
og raforkuiðnaðar.
Ennfremur munu Kanadamenn
ætla að selja Pólverjum tæki og
vélar til ferðamannaiðnaðar og til
notkunar um borð í skipum.
Ráöherra
rekhm fyrír
stuðning við
Suður-Afríku
Malcolm Fraser forsætisráð-
herra Ástralíu brá skjótt við og
rak einn nýskipaðan ráðherra
sinn fyrir að láta i ljósi stuðning
við kynþáttaaðskilnaðarstefnu
Suður-Afríkustjórnar i gær.
Glenister Sheil var skipaður ráð-
herra aðeins fyrir mánuði, eftir
kosningasigur Frasers og stuðn-
ingsflokka hans.
Sagðist Fraser hafa ráðfært sig
við aðstoðarforsætisráðherra_sinn
Doug Anthony sem einnig er for-
maður þess flokks sem ráðherr-
ann rekni tilheyrir.
Öánægja með opinberan stuðn-
ing Glenister Geil kom fljótlega í
ljós eftir að hann var skipaður í
embætti. Upp úr sauð þó þegar
hann lýsti stuðningi sínum i við-
tali við dagblað í Melbourne og
sagðist telja að kynþáttaaðskiln-
aðarstefnan ætti erindi til Astra-
líumanna, sem gætu margt af
henni lært.
Aðrir ráðherrar í ríkisstjórn
Ástralíu voru fljótir að lýsa yfir
andstöðu við sjónarmið Sheil en
hann lét sér ekki segjast og
undanfarna daga hefur hann ít-
rekað stuðning sinn við stjórnir
hvftra manna í Suður-Afríku og
Ródesíu.
Sagðist hann mundi styðja þær
hvenær sem væri og ítrekaði
einnig þá skoðun sína að hann
teldi Ástralíu eiga að taka stefnu
hinna tveggja ríkja í Afríku til
fyrirmyndar.
Ekki kom á óvart þó Fraser
forsætisráðherra ræki Sheil úr
ráðherraembætti því hann er
þekktur fyrir andstöðu sina gegn
kynþáttaaðskilnaðarstefnu.
Linda Blair ákærð
fyrir meðferð
á eiturlyfjum
Leikkonan Linda Blair, sem
varð sem frægust fyrir leik sinn
í kvikmyndinni Exorcist, var
handtekin i Connecticut og sek-
uð um að hafa flúið frá Florida,
en þar hafði 'nún verið ákærð
fyrir að hafa verið í einhverj-
um tengslum við kókaínsölu-
menn að sögn lögreglunnar þar.
Upphaf málsins mun hafa
verið að Linda Blair v^r við-
stödd útför hljómsveitarstjóra
rokkhljómsveitarinnar Lynyrd
Skynyrd I Florida. Nokkrir
meðlimir hljómsveitarinnar
fórust í flugslysi fyrir nærri
tveim mánuðum. Hefur lögregl-
an í Florida ákært þrjátíu og
átta manns veena þess að hún
telur þá hafa neytt ýmissa
eiturlyfja við útförina.
Leikkonan var handtekin í
borginni Wilton i Connecticut.
Lögreglan þar hefur einnig
ákært hana fyrir að hafa I fór-
um sínum eiturlyf við handtök-
una.
Linda Blair var látin laus
gegn tryggingu i gær en sagt er
að meðal þeirra sem flæktir séu
í eiturlyfjamál þetta séu sonur
og dóttir öldungadeildarþing-
manns frá Florida.
Linda Blair, sem þekkt varð fyrir hlutverk sitt i kvikmyndinni
Exorcist þar sem hún lék stúlku sem haldin var illum anda var
ákærð í Florida fyrir nokkru um að hafa neyttog haft eiturlyf undir
höndum. A myndinni er hún með leikaranum Richard Burton.
ALGJÖR NÝJUNG
■ Polyamide
VISCOSUISSE
Hekmcct
22 dtex
Sokkabuxur og nærbuxur í einu lagi
Svissnesk gæðaframleiösla
Buxnahlutinn styrkturmeð
HelcmxxL
sem lætur vel að húðinni,
einnig með mjúkri baðmullarbót
MJÚK BAÐMULLARBÓT
FÁST EINNIG MEÐ FROTTEBUXNAHLUTA
OG V-SNIDI — LITIR: PERLE BAMBI,
COSTA BR., 0G FLANÉLLE VERÐ KR.
670.
Póstsendum
Domus Medica — Egilsgötu 3
Pósthólf5050 - Sími 18519