Dagblaðið - 21.12.1977, Page 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
12
r
v
Að koma lagi á myndasafnið
Draumur um veruleika,
íslenskar sögur um og eftir
konur.
Helga Kress valdi sögurnar og
sá um útgáfuna.
Mál og menning, Reykjavík
1977, 203 bls.
Það hefur sannarlega verið
upplífgandi að lesa bókmennta-
greinar Helgu Kress í Skírni á
undanförnum árum, þar sem
hún hefur tekið til gagngerðs
endurmats stöðu kvenna í
íslenskum bókmenntum. Henni
hefur tekist að blása nýju lífi í
þetta æruverðuga rit, þar sem
karlmenn hafa ráðið öllu í
rúmlega eina og hálfa öld, og
vakið með greinum sínum sára
reiði karlrithöfunda, bók-
menntafræðinga og gagnrýn-
enda. Ég hef aldrei, hvorki fyrr
né síðar, lesið bókmennta-
greinar sem meir vekja til
umhugsunar og andsvars..
TIL ERU
KVENRITHÖFUNDAR
Og nú hefur Helga annast
útgáfu á smásögum um og eftir
konur, Draumur um veruleika,
þar sem hún velur sögurnar
með þrjú höfuðsjónarmið í
huga, eins og hún segir í for-
mála, sem eru „jafnt af listræn-
um, félagslegum sem sögu-
legum toga“. Hún segir enn-
fremur að erindi þessa safns sé
tvíþætt: ,,Því er ætlað að vekja
athygli á því, að til eru íslenskir
kvenrithöfundar, þótt ekki fari
mikið fyrir þeim í bókmennta-
sögum eða á öðrum opinberum
vettvangi. Jafnframt á það að
geta veitt nokkra innsýn í
hugarheim kvenna, viðhorf
þeirra og vitund á hverjum
tíma“ (8).
AF HVERJU SVO FÁAR?
Sögunum er fylgt úr hlaði
með stórfróðlegum inngangi
,,Um konur og bókmenntir“ þar
sem þetta fyrirbæri er skoðað
frá nýrri hlið og margt dregið
fram í dagsljósið. Helga leitast
við að finna svar við spurning-
unni: ,,Af hverju eru kvenrit-
höfundar svo fáir?“ og kemst
að þeirri niðurstöðu, eftir að
hafa vitnað í ýmsa kvenrit-
höfunda allt frá Virginíu Woolf
og Theódóru Thoroddsen til
Asu Sólveigar, að „Það hefur
aldrei verið ætlast til þess af
konum að þær yrðu rithöf-
undar.“ Ástæðan er félagsleg,
rótgrónir hleypidómar og alda-
gömul kúgun.
„KONUR GERÐARSVO
TIL ÓSÝNILEGAR"
Helga útskýrir á hvern hátt
„bókmenntastofnunin'* svo-
nefnda, þ.e. útgefendur, fjöl-
miðlar, gagnrýnendur, bók-
menntafræðingar, bókmennta-
leg ráð (og úthlutunarnefndir),
háskólinn og rithöfundar
sjálfir, er skoðanamyndandi, og
hvernig þessi stofnun ræður
því hvern sess ritverk öðlast i
bókmenntasögunni. Þar er
sláandi dæmið um Sigurð
Nordal prófessor, sem sagðist
vera vinveittur kvenrithöfund-
um, en valdi ekki verk eftir
eina einustu konu í fyrstu út-
gáfu sína af íslenskri lestrar-
bók.
Helga telur að viðfangsefni
og gildismat kvenna fari í taug-
arnar á gagnrýnendum og að
þeir „afskrifi gjarnan sem eitt-
hvert óþarfa mas“ allt tal kven-
rithöfunda um ástir og hjóna-
bönd, börn og heimilislíf. Þá
eru nú sjóferðir, stríð og
íþróttir eitthvað annað og
merkilegra og þær bækur
mikilvægar, sem um slíkt fjalla,
segir bókmenntastofnunin.
„Konur verða að hafa eitt-
hvað að segja,“ sagði rit-
höfundur nokkur við mig á
dögunum, þegar mál þetta bar á
góma. Svo er nú það.
KVENFRELSISSJÓNAR-
MIDIÐ BANNFÆRT?
Helga skiptir sögunum í þrjá
kafla: 1880-1930, 1930-1970 og
1977. Hún telur að saga
ísl. kvennabókmennta sé ná-
tengd kvenréttindabaráttunni
og hefjist með Torfhildi Hólm
um 1880. Næsta tímabil tengir
hún við lýðveldisstofnunina og
tímaritið Melkorku. Hið þriðja
og síðasta hófst með nýju kven-
frelsishreyfingunni og tengist
höfundunum Svövu Jakobs-
dóttur og Jakobínu Sigurðar-
dóttur. Það er hárrétt hjá
Helgu, að ritdómurum yfirsést
gjarnan kvenfrelsissjónarmiðið
í verkum þessarar höfunda.
Myndu þær annars hafa hlotið
náð hjá „bókmenntastofnun-
inni“?
AÐ ÞRÁ — BÍÐA —
DREYMA 0G DEYJA
Það fer ekki mikið fyrir
baráttu eða uppreisn kvenna í
fyrsta þætti sagnanna. Sög-
urnar eru fremur lýsandi og
ádeilan liggur undir yfir-
borðinu.
Prósaljóð Vilborgar Dag-
bjartsdóttur, „Draumur“, er
hér undantekning, enda valið
sem einkunnarorð bókarinnar.
„Jafnvel sjálfur Öðinn á ekki
nema eitt erindi við konur“,
segir Vilborg. „Og ég sem hélt
ég væri skáld“ (37).
Torfhildur Hólm leggur sögu
sína í munn karlmanni og lýsir
miklum vonbrigðum hans
vegna framhleypni og
uppástöndugheita unnustunnar
sem vill fá að halda fram þekk-
ingu sinni. Það hefur verið
djarft uppátæki af stúlku um
1880 að fleygja trúlofunarhring
sínum í pytt.
I sögu Ölafar frá Hlöðum
þráir konan ást og hlýju manns-
ins, „Hvernig átti hann að þrá
hana eins og hún hann, hann,
sem var sjálfum sér nógur og
þurfti hennar auðvitað ekki“
(54).
Theódóra Thoroddsen segir í
sögu sinni frá hversdagslegu
amstri húsfreyju, m.a. kaupum
á kartöflum í „Matardeild
Sláturfélagsins". Söguna um
sniglana, sem hún finnur i
moldinni innan um kartöfl-
urnar, má lesa sem tákn fyrir
hennar eigin verk eins og hún
lítur á þau og hlutskipti hennar
sem rithöfundar.
Ingunn frá Kornsá lýsir
einum degi úr ævi sinni, þegar
amma hennar var jörðuð, og
segir hann einn ljósasta blett-
inn í endurminningum sínum.
Ekki hafa hinir dagarnir verið
beysnir. í þessari sögu túlkar
Ingunn á nokkuð róttækan hátt
þjóðsöguna um tröllið sem
seiddi til sín sængurkonuna.
„Hún hefði heldur kosið að
gista i fossinum með litla
barnið sitt, en að mæta oftar
slíkri harðýgi - og skilnings-
leysi“ (64).
„Síðsumarkvöld" eftir Huldu
lýsir vel hvernig konur eru al-
gjörir þolendur í ástamálum,
hvernig hún leitar útrásar í
faðmi náttúru eða situr við
gluggann og horfir á stjörnuna
sína, en það er það eina sem
hún á eftir af unnustanum
þegar hann er farinn út í heim.
í þessari ljóðrænu sögu tengir
hún ást og dauða og sættir sig
við minninguna eina.
LAGT TIL ATLÖGU
I miðkafla bókar gerast
konur herskáari. Elínborg
Lárusdóttir lýsir þjónustustörf-
um húsmóður í þögn og
umburðarlyndi, þar til kvöld
eitt að konan hefur fengið nóg
Bók ,
menntir
Rannveig G.
Ágústsdóttir
og fer á kvenréttindafund án
þess að þvo upp, bursta skóna
stráksins eða rétta karlinum
skyrtuna hans.
Bókin dregur nafn sitt af
sögu Ragnheiðar Jónsdóttur,
„Draumur um veruleika".
Helsta leið konunnar til að
umbera veruleikann er að
hverfa á vit draumsins. En í
þessari sögu snýst þetta við,
draumur konunnar, þar sem
hún sér fyrir sér framtíðina
■
MOSFELLSSVEiT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT
KjlBWfCMÍ
0PIÐ TIL KL. 22ALLA DAGA
Bökunarvörur
á tilboðsverði
Hátíðamatur
á hvers manns borð
Ódýru
reyktu rúllupylsurnar
Hangiframpartar
ágamla verðinu
meðan birgðirendast
Það verða gleðilegjól íKjörvali
VERIÐ VELKOMIN
Þverholti - 270 Mosfeilssveit - Sími 66620
íslenzkar bækur. Leikföng frá Airfix, Bambola, Lego, Matchbox,
Playmobile og m.fl.
Jólakort og jólaskraut í úrvali, fallegt jölakort af Lágafellskirkju.
Ritföng. Erlend blöð. Vasabrotsbækur. Filmur, filmuframköllun. Hop-
timistarnir vinsælu. Gjafavara. Opið til kl. 8 alla virka daga nema
föstudaga til kl. 10. Opið laugardaga. Verið velkomin og reynið
viðskiptin.
RADÍÓVALSF.
MOSFELLSSVEIT - SÍMI66640
Utvarps- ogsjónvarpsverkstceði — verzlun
Tiljólagjafa:
Mikið úrval af hljómplötum og
kassettum, kassettutöskum.
Plötustatíf, hillusett, skúffuskáp-
ar, ferðatæki, segulbönd, tölvuúr,
•vasatölvur og m.fl.
Utvarpstæki, kassettutæki, bíl-
tæki, bíltæki m/kassettum, kass-
ettutæki í bíla, hljómflutnings-
tæki, hátalarar í bíla, sjónvarpsi
loftnef.
Opið 9-8 virka daga, einnig á laugardögum
ÞVERH0LT
MOSFELLSSVEIT
BENSÍNOG OLÍUR
FRÁSHELLOGBP
—Filmur og tóbak—
—ís og ístertur — Gos ogsœlgœti—
Ath. Mikið úrvalafkonfektkössum
MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT
I