Dagblaðið - 21.12.1977, Síða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
STIFTUNG
WARENTEST
Qualitátsurteil:
Nýjasta gerðin af BRAUN gufukrullu-
jórni er með hitastilli, þ.e. lógt hita-
stig fyrir fínt hór, meðalhitastig fyrir
venjulegt hór og hótt hitastig fyrir
þykkt hór. Hentug vegghalda fylgir
krullujórninu. Krullu járnið er bœði
fyrir 110 og 220 volt. JÓLAGJÖF SEM
GLEÐUR ALLAR KONUR:
teetl/77und 10/77
sehr
guí
helHt: 29 Baktnmiarar
TntaM: 4
Þeir prófuðu
25
rafmagns-
rakvélar
BRflUn
Hið óháða vestur-þýzka neytendablað TEST (Stiftung
Warentest) tók ýmsar tegundir af rafmagnsrak-
vélum til prófunar í blöðunum 1/77 og 10/77.
Af 25 mismunandi gerðum af rakvélum var BRAUN
MICRON eina rakvélin, sem fékk dóminn SEHR GUT
eða MJÖG GÓÐ.
BRAUN vörumerkið sjáið þér í öllum verzlunum,
sem selja góð raftœki.
Aðalumboð
Hvernig hár heíiir þú?
Curl
Braun
a
BRflun
ÍSLENZKUR OSTUR
ÓDÝRARI í
NEW YORK
EN HÉR HEIMA
Mikið hefur verið rætt um verð
á íslenzku kjöti á erlendum mörk-
uðum undanfarið. Þykir það ekki
góð stefna að selja íslenzkar af-
urðir erlendis langt undir því
markaðsverði sem hér er.
í Bandaríkjunum er íslenzkur
ostur á markaðinum og hefur ver-
ið lengi. Hann er seldur í
kræsingadeildum stór-
markaðanna undir vörumerkinu
Öðinn. Er þetta venjulegur 30%
brauðostur og kostar hann 1,59$
punduð. Það samsvarar að kg.
kosti 743,90 ísl. kr. Til saman-
burðar má geta þess að álíka
amerískur ostur (cheddar
cheese) kostar 1,99$ pundið eða
sem svarar 930,70 kr. kg.
Frændur okkar Norðmenn fá
heldur betra verð fyrir sinn ost
sem þeir selja í sams konar
verzlunum. Er sá seldur undir
vörumerkinu Jarlsberg og kostar
pundið 2,19$ eða sem svarar
1024,00 ísl. kr. á kg.
Ekki er islenzki osturinn þó
ódýrastur, það er hollenzkur
ostur, sem kostar 1,49$ pundið
eða 697,50 ísl. kr. kg.
í verzlunum í Reykjavík kostar
30% ostur hins vegar í heilum
stykkjum kr. 945 kr. hvert kg. og
954 kr. í bitum.
-A.Bj.
Hvað eru marg-
ir á röltinu?
— Um 30 manns gista gamla
Farsóttarhúsið um iólin
Um jól er ekkert gamanmál að vera á vergangi. Sem betur fer er séð
fyrir því að heimilislausir í borginni þurfa ekki að eyða jólanóttinni í
kulda og matarleysi.
Líklegt má telja að um 30
,,útigangsmenn“, eða þeir sem i
daglegu tali eru nefndir ,,rónar“,
séu á ferðinni i höfuðborginni um
hátíðarnar og eins og veðrið hefur
verið undanfarna daga fer ekki
hjá því að fólk spyrji sig, hvar
þeir séu eiginlega niðurkomnir?
Öruggt má telja að þessi árstími
sé ekki þeirra „vertfð“, því að
skemmtiferðaskipin og blundur í
sólinni á Austurvelli er óralangt
undan.
„Það er sennilega ekki mikið af
þeim í bænum núna, a.m.k. ekki
þeim sem eru drukknir," sagði
Rúnar Guðmundsson varðstjóri í
stuttu rabbi við Dagblaðið. „Tvær
síðustu nætur hafa þrír þeirra
gist hjá okkur, en þeir hafa verið
fluttir upp að Hlaðgerðarkoti."
Rúnar sagði, að þessum mönn-
um hefði fækkað verulega á und-
anförnum árum, unnið hefði
verið að því að koma þeim fyrir á
drykkjumannahælum eins og
Gunnarsholti og Hlaðgerðarkoti.
,,Þá er að nefna Farsóttarhúsið
gamla. Þar dveljast alltaf þó
nokkrir, svo lengi sem þeir hald-
ast sæmilega edrú,“ sagði Rúnar
ennfremur.
„Hjá okkur eru 10, sem eru
edrú, en þeim fer sennilega fjölg-
andi nú þegar nær dregur jólum,“
sagða Júlíus Snorrason, forstöðu-
maður Farsóttarheimilisins í
viðtali við DB. „Þá eru hérna
fjórir, sem eru að láta renna af
sér og um einn veit ég sem er úti á
„röltinu" eins og það er kallað —
hann er nýdottinn".
Júlíus sagði að hjá honum
hefðu verið um 30 manns um
jólin í fyrra „og ég geri ráð fyrir
að þeir verði ekki færri í ár."
Mönnunum er gefinn matur í
Farsóttarhúsinu á jóladag og
nýársdag, en Júlíus benti á að
mörg undanfarin ár hefði Vernd
verið með jólamat f.vrir útigangs-
mennina á aðfangadag og hefði sú
jólahátíð þeirra verið haldin í
húsi Slysavarnafélagsins á
Grandagarði.
-HP.