Dagblaðið - 21.12.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
15
Hvað gera þingmenn við
sitt langa jólaf rí?
segir Karvel Pálmason
„Auðvitað að und-
irbúa kosningar”
Þingmenn fá allra manna
mest jólafrí. Þeir fara nú I fri i
um það bil mánuð. Hvað gera
þeir við þetta? DB spurði lands-
byggðarþingmanninn Karvel
Pálmason þeirrar spurningar.
„Ég fer heim beint í kjara-
samninga," sagði Karvel. Vest-
fjarðafélögin hafa sagt upp
samningum. „Svo fer ég
auðvitað að undirbúa kosning-
ar.“
„Ég tel, að þingmenn reyni
eftir megni að ferðast um
kjördæmi sín og hafa samband
við fólk í þessu hléi, en það fer
að sjálfsögðu eftir staðháttum
og veðráttu, hvernig til tekst
um það. Svo er meira og minna
sem safnast fyrir, meðan menn
eru á þingi í Reykjavík. Svo
taka þingmenn þátt i alls konar
félagsmálastarfsemi heima í
héraði. Ég heid, að þetta hlé sé
ekki of langt, en slíkt er þó
alltaf álitamál. Það kann að
vera slæmt nú, að þingmenn
séu fjarverandi, þegar
spurningin er: Hvað ætlar
ríkisstjórnin að gera í sam-
bandi við atvinnuvegina?“
sagði Karvel.
Hnotubrjóturinn — jólasýning Þjóðleikhússins
Þegar uppselt á
fyrstu sýningarnar
Það verða stór nöfn í
jólasýningu Þjóðleikhússins að
þessu sinni, en það er Hnotu-
brjóturinn, ballett við tónlist
eftir Tjækovskí. Aðalkarldans-
arinn verður Helgi Tómasson og
dansar hann á fimm fyrstu
sýningunum. Með honum er
ballerína frá Bandarikjunum,
Anna Aragno, en hún hefur áður
dansað hér á listahátíð. Þegar er
uppselt á þessar fimm sýningar,
en írumsýningin verður að vanda
annan jóladag.
Þegar Helgi fer aftur utan
tekur einn af beztu dönsurum
Finna í dag, Matti Tikkanen við
aðalhlutverkinu. Stúlkur úr
tslenzka dansflokknum munu
síðan skiptast á að dansa aðal-
kvenhiutverkið. Sýning þessi er
mjög dýr í uppsetningu, enda er
hún fjölmenn. Leikstjóri er Yuri
Chatel frá Bandaríkjunum, en
hann kom hingað i haust til þess
að setja upp þessa sýningu með
íslenzka dansflokknum. Enn ein
bandarísk ballerína fer með hlut-
verk í ballettinum, Mitzy McKee.
Una Collins sér um búninga, en
hún starfaði hér á árum áður og
Sigurjón Jóhannsson teiknaði
leikmyndir.
-JH.
' vsiassmmmmmmBmsMimmaai
Félagar úr tslenzka dansflokkn-
um tóku sér smáhlé frá æfingun-
um og fengu sér kaffisopa er
Bjarnleifur ljósmyndari kom I
heimsókn í gær.
Skólabörn
keppa um
góð verðlaun
1 desember efnir Umferðarráð
til getraunar fyrir skólabörn víðs
vegar um landið og er getrauna-
seðlum dreift til nemenda á
aldrinum 6-12 ára.
Getraunin er unnin í samstarfi
við menntamálaráðuneyti, lög-
regluyfirvöld og bæjarfélög.
Dreift er 30.500 getraunaseðlum.
Verðlaun eru veitt í hverju
byggðarlagi og eru gefendur
verðlauna ýmsir aðilar, svo sem
bæjarfélög, tryggingarfélög og
þjónustuklúbbar. Dregið er úr
réttum svörum og hljóta þeir
heppnu verðlaun. Algengast er að
lögregluþjónar færi verðlauna-
höfum verðlaunin heim á
aðfangadag eða sem næst jólum.
Með getraun þessari er stefnt
að auknu samstarfi við foreldra
um umferðarfræðslu og er til þess
ætlastaðgetraunin sé unnin undir
handleiðslu foreldra og kennara.
Fjórir bitar
komnir í
Borgar-
fjarðar-
brúna
Nú er lokið við að setja niður
stólpana 12 í Borgarfjarðarbrúna
en því var lokið seint I sumar.
Settir hafa verið fjórir bitar á
milli stólpa — griðarmiklir bitar
sem hver um sig vegur 64 tonn.
Verð er að vinna við að steypa
bitana, en alls verða þeir 52. Eins
og sagði vegur hver um sig 64
tonn, er 2.25 metrar á hæð og rétt
tæpir 40 metrar að lengd. Ekki
verða fleiri bitar settir í ár, þá
vegna veðurs.
Nú er verið að vinna við að
leggja veg frá Vesturlandsvegin-
um að eyrinni, við sunnanverða
brúna. h. haiis.
■
Jólahyasintur
Jólablóm á hverju heímilí
Þeim fjölgar sem nota hyasintur til að setja punktinn
yfir jólaskreytinguna á heimilinu. Lifandi blóm í mildum
litum sem stendur lengi og varpar Ijóma á umhverfið.
Hyasintur standa lengst séu þær vökvaðar lítillega og
hafðar á svölum stað á nóttunni.
^Blóma
fiamleióendur
i