Dagblaðið - 21.12.1977, Síða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
19
Genm msældakosnkigamar að mark-
tækri hemild um poppmarkaðm ídag
Vinsældakosning Dag-
blaðsins og Vikunnar er nú að
komast á fullt skrið. Útfylling-
arformið verður endurbirt hér
í dag og á morgun í Vikunni, ef
svo skyldi hafa farið að
einhverjir hefðu misst af
herlegheitunum í síðustu viku.
Atkvæðaseðlarnir eru þegar
farnir að berast. Ástæða er til
að skora á þátttakendur að
senda lausnirnar sem fyrst til
að hægt verði að byrja að
reikna út úrslitin strax um árá-
mót. Skilafrestur er annars til
28. desember í allra síðasta
lagi. Og utan á umslagið á að
skrifa Vinsældaval Dag-
blaðsins og Vikunnar,
Síðumúla 12, Reykjavík.
Enn sem komið er hefur
aðeins verið kvartað yfir einu
atriði í vinsældakosningunum
— reyndar úr spurningalistan-
um. Stúlka í Keflavík kvaðst
ekki þekkja haus né sporð á
söngvara hljómsveitarinnar
Sex Pistols. Nafn hans stæði
ekki einu sinni á nýjasta plötu-
umslagi hljómsveitarinnar.
Því er til að svara að fáir eða
engir skemmtikraftar hafa
verið meira í sviðsljósinu á
þessu ári en einmitt Sex
Pistols og sér í lagi söngvari
hljómsveitarinnar. Við vor-
kennum því engum að brjóta
heilann í svo sem hálfa mínútu
eða spyrja kunningjana.
Eins og lesendur ættu að sjá,
eru vinsældakosningarnar í
þrennu lagi. I fyrsta lagi eru
það kosningarnar sjálfar. En
til að lífga aðeins upp á þær.
Spurningar
1. Hvað heitir Megas réttu nafni?
gefst þátttakendum kostur á
að svara tíu spurningum um
popp, bæði innlent og erlent.
Loks geta þátttakendur valið
þrjú viðfangsefni til að glíma
við.Þau eiga að vora í ritgerðar-
formi, einhvers staðar í knng-
uin þúsund orð. Þeir, sem hafa
gaman af að tjá sig og hafa
ákveðnar skoðanir á einhverj-
um þessara þriggja viðfangs-
efna fá hér tilvalið tækifæri til
að vinna til verðlauna. Nú, og
svo er mögulegt að nýta rit-
gerðina í skólanum, ef
íslenzkukennararnir gefa færi
á frjálsu efnisvali einhvern
tíma i vetur.
Það er ekki eftir neinu að
bíða. Yddið blýantinn eða fyll-
ið pennann af bleki og gerið
Vinsældakosningar Dag-
blaðsins og Vikunnar að mark-
tækri heimild um stöðu
poppsins á Islandi í dag.
Amen. -ÁT-
Valefninþrjú
Valefnið þarf að vera ritsmíð upp á svo sem 1000 orð, þó að
lengdin sé ekkert skilyrði. Veljið eitt efni eða fleiri. Skilið
ritgerðunum vélrituðum, ef tök eru á, þá ætti allt að komast
óbrenglað til skila. — Þrenn verðlaun verða veitt fyrir beztu
valefnin.
A. ER HLJÓMSVEITARFORMIÐ SEM SLÍKT AÐ DEYJA
ÚT HÉR Á LANDI?
B. ER ÞÖRF Á BETRI UMFJÖLLUN DÆGURTÓNLISTAR
í SJÓNVARPI 0G HLJÓÐVARPI?
C. ERU ÍSLENZKAR HLJÓMPLÖTUR SAMBÆRILEGAR
VIÐ ERLENDAR HLJÓMPLÖTUR?
6. Hvað var Elvis Presley gamall, er hann lézt 16. ágúst siðastliðinn?
2. Aldinn söngvari lézt síðsumars. Hann söng lag á plötu, sem er sú söluhæsta
heimi. Hvað heitir lagið?
7. Söngkonan Shady Owens söng með fjórum hljómsveitum hérlendis á sínum
tíma áður en hún fór utan með hljómsveitinni Ieecross. Hvaða hljómsveitir voru
þetta?
3. Gunnar Þórðarson samdi tónlist við umdeilda sjónvarpsmynd eftir Hrafn
Gunnlaugsson. Hvað heitir myndin?
8. Hver er höfundur lagsins „Blowing In The Wind“?
4. Ræflarokkhljómsveitin Sex Pistols er sú hljómsveit sem mest hefur staðið í
sviðsljósinu í ár. Hvað heitir söngvari hljómsveitarinnar?
9. Þegar hljómsveitin Change leystist upp á sínum tíma ákvað einn meðlimurinn
að verða eftir á brezkri grund og starfa þar. Hvað heitir hann?
5. Nefnið þrjú lög eftir Jóhann G. Jóhannsson, sem komið hafa út á hljómplötum
10. Hvað heitir nýjasti meðlimur hljómsveitarinnar Hauka?
Innlendur markaður
HLJOMSVEIT:
1___________
2___________
3___________
SONGVARI:
1.________
2_________
3_________
S0NGK0NA:
1_________
2_________
PLATA ARSINS:
1______________
2______________
3______________
LAG ÁRSINS:
1____________
2____________
3____________
HLJOÐFÆRALEIKARI:
1_________________
2_________________
3_________________
LAGASMIÐUR:
1___________
2___________
3___________
TEXTASMIÐUR:
1____________
2____________
SJÓNVARPSÞÁTTUR:
1________________
2________________
3________________
UTVARPSÞATTUR:
1______________
2______________
3______________
Érlendur markaður
HLJÓMSVEIT:
1___________
2___________
3___________
S0NGK0NA:
1_________
2____:_____
3__________
SONGVARI:
1_________
2_________
3_________
HLJÓÐFÆRALEIKARI:
1_________________
2_________________
3_________________
LAGASMIÐUR:
1___________
2___________
3___________
PLATA ARSINS:
1_____________
2_____________
3_____________
VINSÆLDAVAL DAGBLAÐSINS
0G VIKUNNAR1977
Sendandi:
Nafnnúmer:.
Heimilisfang:
Óvenjuleg plata-ólík flestum öðrum
Doildarbungubrœöur — ENN Á JÖRÐINNI
Útgefandi: lcecross (IS-004)
Upptökustjóri: Axel Einarsson
Upptökumenn: Tony Cook og Jónas R.
Jónsson.
Útsetningar: Deildarbungubrœöur.
Skuröur: Malcolm Davies. PYE London
Pressun: CBS Holland
Hljóöritun: Hljóöriti Hafnarfiröi.
I fyrsta laginu (?) á Enn á
jörðinni syngja Deildarbungu-
bræður um hinn fullkomna
stjórnmálamann. Lagið nefnist
Jákvæður miðlínumaður. Ég
spurði höfund lagsins, Axel
Einarsson, eitt sinn að því,
hvort þarna væri sungið um
framsóknarmenn. Hann neit-
aði þessu skelfingu lostinn.
„Þessi jákvæði miðlínu-
maður er ekki til,“ sagði hann,
„en auðvitað væri æskilegast
að þeir væru sem flestir. Því
miður er þaö svo að allir
pólitíkusar hallast ýmist til
vinstri eða hægri. Séu þeir
hins vegar settir á brotastrik
og deilt á milli og stytt, þá
kemur hinn jákvæði miðlínu-
maður út.“
Sé plata Deildarbungu-
bræðra, Enn á jiirðinni, sett á
strik og deilt og stytt, þá
kemur út ágætis plata og i
mjög mörgu frábrugðin öllum
þeim sem gerðar eru hér á
landi. Meðlimir hljómsveitar-
innar, þeir Axel Einarsson,
Kristinn Sigurjónsson, Olafur
Garðarsson og Árni Sigurðsson
kunna vel til verka í stúdíói.
Lög þeirra eru ágæt og mörg
vel grípandi við fyrstu at-
rennu. Textarnir eru alimiklu
blandaðri. Sumir eru sérstakir
og skemmtilegir — aðrir
klúðurslega samansettir. Öll
bragfra'ði viröist vera þenn
sem biblía búddatrúarmanni.
Sé Enn á jörðinni Imrin
saman við f.vrri plötur Deildar-
bungubræðra, Sögu til næsta
bæjar, þá má merkja framfarir
í flestu tilliti. Það eina sem á
skortír á nýju plötunni er
hljómborðaleikurinn, sem var
með ágætum á Sögunni.
Á Sögu til næsta bæjar voru
nokkur erlend lög, sem áttu
stóran þátt í þeim viðtökum
sem platan hlaut. Sérstaklega
má þar nefna lagið María
draumadís. Vonandi á það ekki
eftir að spilla fyrir Enn á
jörðinni að hún er alislenzkt
og alvarlegri en hin. Deildar-
bungubræður eru með nokkra
sérstöðu hér á landi hvað laga-
val varðar, en það er mesti
misskilningur að hljómsveitin
sé grínhljömsveit lengur. Ilún
er hljómsveit, sem vissara er
að fara að fylgjast
gaumgæfilega með.
-AT-