Dagblaðið - 21.12.1977, Side 32
ER SALTAUSTURINN
HELZTIORSAKAVALDUR
ÁREKSTRANNA?
Uppleyst asfaltið leggst sem
skán á dekkin og virkar líkt og áburður á skíði
Hinir tiðu árekstrar sem
orðið hafa í vetur af völdum
hálku valda mörgum áhyggjum
og eru í raun íhugunarefni
fyrir ábyrga aðila. Einn þeirra
sem um þessi mál hafa mikið
hugsað er Ingvi Hjörleifsson
ljósameistari hjá Sjónvarpinu.
Hann hefur komizt að raun að
hljólbarðar bíla í höfuðborg-
inni verða fljótt ílla nothæfir til
aksturs vegna tjörulags sem á
þá sezt.
Ingvi telur ljóst að hér eigi
saltausturinn mikla sök á.
Saltið leysir upp asfaltið og á
hvern hjólbarða sezt skán af
tjöru eftir stuttan akstur á salt-
ausnum borgargötunum. Þessi
tjöruskán á hjólbörðunum
verkar líkt og áburður sem
borinn er undir skíði. Verða
hljólbarðarnir glerhálir og sé í
þá komið minnsta slit, eru þeir
eins og skautar undir bílunum
og við bílana verður litt ráðið
þegar snjóar svo aftur ofan í og
vfir saltbornar göturnar.
Ingvi sýndi okkur fjóra hjól-
barða er hann tók af bil á
sunnudag. Á þeim var þykk
tjöruskán. sleip og giampandi
er hún var þornuð. Ingvi sagði
að algengt væri að þessi tjöru-
skán festist i bílskúrsgólfi yfir
nótt og rifi upp málningu á
gólfi þá er bíllinn er hreyfður
að morgni. Tjöruskán þessi
getur orðið margir millimetrar
að þykkt og getur fært nagla í
hjólbörðum í kaf.
Engar rannsóknir munu hér
fara fram á áhrifum saltausturs
á götur en byggt er á rannsókn-
um erlen-iis, þar sem asfalt er
af allt ann. rri blöndu og söltun
gatna miklu fátíðari en hér.
Hér er á ferð mál sem réttir
aðilar ættu að taka til athug-
unar. Árekstrasúpan sem hér á
sér daglega stað vegna hálku
kostar oft hundruð þúsunda á
dag og milljónatugi yfir árið. Sé
hægt að fækka þessum árekstr-
um með einhverju móti er
mikið unnið. - ASt.
1»
Ljóslega má sjá tjöruskánina á
hjóibarðanum til vinstri. Hjól-
barðinn tii hægri er hreinn af
tjöru.
MÁ BJÓÐA ÞÉR
SKÖTU í MATINN?
Gamall siður sem enn er íheiðri hafður,
að borða skötu á Þorláksdag
,,Við erum líklega með svona
um hálft tonn í bleyti, fyrir utan
þessa þurrkuðu," sagði Jón Árna-
son starfsmaður i fiskverzluninni
Sæveri I Miðbæ við Háaleitis-
braut. Jón var I miðju kafi við að
skera niður stórlúðu þegar blm.
og ljósmyndara bar að garði.
„Blessuð vertu, hún er vel kæst
þessi, áður en hún er útvötnuð.
Svo er hún líka til kæst og ósöltuð
og þurrkuð. Hún er bara söltuð í
pottinn eins og venjulegur fiskur.
Það er sú vestfii zka.“
— Borðar þú skötu - jálfur?
,,Já, það er nú líklega, ég er
fæddur og uppalinn á Vestfjörð-
um, sagði Jón. ,,En ég vil heldur
þá sem er útvötnuð. hin er aðal-
,lega borðuð norðan til á Vest-
fjörðum, eins og við ísafjarðar-
djúp.“
Það er gamall siður á Islandi að
borða kæsta skötu á Þorláks
messu, sem er á morgun. Kílóið
kostar 474 kr., sama og saltfiskur.
A.Bj.
H
Jón Arnason með skötuna sem
verður á borðum Reykvíkinga á
Þorláksmessu. — DB-mynd
Hörður Vilhjálmsson.
Karvel stððvaði uppreisn gegn Gylfa
„ÞARNA SÉST HVAÐ ÓHÁÐUR
ÞINGMAÐUR GETUR HAFT AÐ SEGJA”
„Það hefur verið stefna
okkar í Samtökunum allt síðan
1974 að láta kosningar I
Norðurlandaráð afskiptalausar.
Eg ákvað að þessu sinni að láta
þær áfram afskiptalausar.
Þarna kom I ljós hvað óháður
vestfirzkur þingmaður getur
haft að segja. Hann gat ráðið
úrslitum."
Þessi afstaða Karvels varð til
þess, að „uppreisn" tveggja
þingmanna Alþýðuflokksins
um að fella Gylfa Þ. Gíslason
frá áframhaldandi setu 1
Norðurlandaráði, fór út um
Karvel Pálmason.
þúfur. Jón Armann Héðinsson
og Eggert G. Þorsteinsson
hugðust styðja Magnús Torfa
Ölafsson (Samtökunum) I
ráðið. Þeir félagar gerðu sér
vonir um stuðning tveggja eða
þriggja framsóknarþingmanna
við slíkt framboð. Hefði Gylfi
þá fallið en hvort tveggja
gerðist að Karvel fékkst ekki
með í þetta bandalag og Fram-
sóknarmennirnir brugðust. Þá
hefðu Magnús Torfi og Gylfi
getað fengið þrjú atkvæði hvor
og „uppreisnarmenn" vildu
ekki láta reyna á hlutkesti.
Gylfi hefði haft stuðning
Benedikts Gröndal og Sig-
hvatar Björgvinssonar.
Kosningunum var frestað um
tíma, meðal annars til að koma
reglu á í liði framsóknarmanna.
Loks voru listar lagðir fram og
komu fram þrir listar. Á lista
stjórnarliða voru Ragnhildur
Helgadóttir (S), Jón Skaftason
(F), Sverrir Hermannsson (S)
og Halldór Ásgrímsson (F). Al-
þýðubandalagið bauð fram
Magnús Kjartansson og Al-
þýðuflokksmenn Gylfa Þ. Gísla-
son. Urðu allir sjálfkjörnir.
- HH
frjálst, áháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 21. DES. 1977
Tveir drukkn-
ir sjómenn
dregnir upp
úr höfninni
— annar flúði við dyr
Slysavarðstofu, hinn
lét ófriðlega
Lögreglan dró tvo drukkna
sjómenn úr Reykjavíkurhöfn f
nótt. Voru þeir þá orðnir all-
þrekaðir og kaldir enda höfðu
þeir verið allt að 10 mínútur milli
skipa i höfninni. Sjómennirnir
hresstust fljótt er á land kom.
Flúði annar úr höndum lögregl-
unnar er að Slysavarðstofunni
kom, þar sem hlynna átti að
mönnum tveimur. Hinn var ódæll
og lét ófriðlega við hjúkrunar-
fólk.
Lögreglan var tilkvödd kl. 1.10 í
nótt að mb. Hákoni ÞH 250.
Annar mannanna hafði þá fallið i
sjóinn. Hinn hugðist kippa
honum upp úr en féll við þá
hetjulegu tilraun sjálfur í höfn-
ina og gat nú hvorugur aðra björg
sér veitt en hanga í bjarghring
sem til þeirra var kastað.
Lögreglumenn drógu mennina
upp og voru þeir á þeirri stundu
allþjakaðir.
Að venju var haldið rakleitt í
slysadeild til að hlúa að mönnun-
um. Strax á leiðinni létu þeir
ófriðlega og við dyr slysadeildar
hljóp annar á brott og segir ekki
meir af honum. Hinn lét mjög
ófriðlega þó blautur væri. Honum
virtist ekki verða meint af sjó-
baðinu þessa mestu skammdegis-
nótt ársins, sem er eitt mesta
slysaár í sögu þjóðarinnar.
ASt.
Jólaferð
þjófanna lauk
f morgunsárið
Piltarnir tveir sem í fyrri viku
urðu uppvísir að hálfrar milljón
króna þjófnaði frá drykkjufélaga
þeirra í Reykjavík verða I dag
leiddir til yfirheyrslna. Uppvíst
varð ekki um þjófnað tvímenning-
anna fyrr en þeir voru komnir
áleiðis til Kaupmannahafnar í
Flugleiðavé! á föstudagsmorgun-
inn i síðustu viku. Er yélin lenti
biðu danskir lögreglumenn pilt-
anna og handtóku þá.
Piltarnir komu aftur heim til
Islands i nótt eftir tafsama ferð.
Lenti vélin ekki fyrr en á fimmta
tímanum í morgun, að sögn
Njarðar Snæhólm. Danskir
lögreglumenn fylgdu piltunum til
tslands. ASt.
Drengur
drukknaðií
A-Landeyjum
Enn eitt banaslysið varð i gær
er fjögurra ára drengur féll í frá-
rennslislæk f Austur-Landeyjum
og drukknaði. Slysið varð um
klukkan eitt en þá var drengur-
inn á ferð frá fbúðarhúsi á staðn-
um til útihúss. Eftir því sem
bezt verður séð hefur honum
skrikað fótur á snjódyngju við
lækinn með þeim hörmulegu
afleiðingum að hann féll f lækinn
og lét þar lífið.
Lffgunartilraunir voru hafnar
á drengnum þegar eftir að til
'hans náðist en þær báru ekki
árangur.
Drengurinn átti fjögurra ára
afmæli f gær. Ekki er unnt að
birta nafn hans enn sem komið er.
ASt.