Dagblaðið - 30.12.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977.
Það er hreint ekkert sárt að gefa blóð!
Gefið ykkur f ram því nú vantar blóð
í bankann
„Svei mér þá, ég trúi þessu
ekki,“ sagði Sigurbjörg
Jóhannsdóttir hjúkrunarkona
þegar hún rannsakaði blóðið í
blm. DB sem kominn var í Blóð-
bankann til þess að gefa blóð.
Blm. brá svolítið, hélt að hann
væri e.t.v. dauðans matur eða
eitthvað í þá áttina. Svo var
kreist meira úr litla fingri —
rannsakað aftur en þá kom í
ljós að blm. hafði svo háa blóð-
prósentu að með ólíkindum var.
Sigurbjörg ætlaði ekki að trúa
nýju tölvumaskínunni, sem
tekin var í gagnið rétt fyrir
jólin og mælir blóðið mjög ná-
kvæmlega.
Eftir að hafa drukkið smá-
vegis ávaxtasafa lagðist blm því
á bekkinn og úr honum voru
teknir 4 dl. af blóði. Hafi blm.
einhverntíma haldið að þetta
væri sárt eða óþægilegt á ein-
hvern hátt, — þá er það úr
sögunni. Það finnst hreinlega
ekki fyrir því þegar nálinni er
stungið inn. Það er ekki einu
sinni torkennileg lykt á staðn-
um! Svo var boðið upp á meiri
ávaxtasafa og siðan kaffi og
með því.
Það var heilmikil ös á meðan
Dagblaðsmenn stóðu við,
mættir voru starfsmenn úr
prentsmiðjunni Hólum og ísa-
fold ásamt fleirum.
„Það hafa bæði verið slys, —
Það verður að skoða allt blóð í krók og kring áður en það er látið í
blóðþegann. Ljósm. Ragnar Th. Sigurðsson.
Karlmenn eru i mikljm meirihluta blóðgjafa því þeir eru yfirleitt blóðríkari en konur. Þessi
kveinkaði sér ekki hið niiftnsta.
sjúkrahúsin hafa líka þurft á
miklu blóði að halda, og svo
færri blóðgjafar komið vegna
hátíðanna," sagði Sigurbjörg.
Hún sagði einnig að starfs-
hópar brygðust mjög vel við
þegar hringt er og kallað eftir
blóði. Má geta þess að allir á
ritstjórn DB höfðu það nýlega
gefið blóð að þeir gátu ekki
l arið í gær, — nema undirrit-
aður og ljósmyndarinn. — En
karlmennirnir eru í miklum
meirihluta blóðgjafanna vegna
þess að konur eru oft það blóð-
litlar aó þær eru ekki hæfar
sem blóðgjafar. Kannski konur
séu bara hreint ekkert blóð-
litlar og geti vel gefið blóð eins
og hvaða karlmaður sem er!
Árlega koma um 8 þúsund
einingar (úr hverjum einstakl-
ing kemur ein eining) af blóði í
bankann, traffíkin er misjöfn.
Það koma allt frá tíu upp í
hundrað blóðgjafar á dag. Það
eru um tuttugu og fimm manns
sem vinna í Blóðbankanum og
skiptist í skrifstofu og skrán-
ingu, blóðtökudeild og rann-
sóknardeild. Blóðið er geymt
við +4° í kæliskáp og er
geymsluþol þess tuttugu og
einn dagur. Þá er einnig hægt
að geyma blóð sem hefur verið
skilið í frysti í ein tvö ár.
- A.Bj.
Líf, nýtt tízkublað:
„EKKIEINGONGU
ÆTLAÐ KONUM,
LANGT í FRÁ”
SEGIR RITSTJÓRINN
Frjálst f ramtak hf. sendir
f rá sér enn eitt sérritið
„Blaðið er ekki eingöngu ætlað
konum, langt í frá,“ sagði Hildur
Einarsdóttir, ritstjóri tizku-
blaðsins LÍF, sem nú hefur hafið
göngu sfna og kynnt var á blaða-
mannafundi í gær. „Blaðið hlaut
undirtitilinn „tízkublað" í stað
„kvennablað", enda fellur svo
margt undir orðið ,,tízka“, sem
bæði kynin hafa áhuga á.
Það er ætlun okkar, að blaðið
verði samkeppnisfært við erlend
blöð af svipuðu tagi og standi
þeim ekki að baki hvað efni, útlit
og verð snertir. Fyrsta tölublaðið
er gefið út í tíu þúsund eintökum,
en verðið, kr. 495, er miðað við að
upplag blaðsins verði jafnan
stórt.“
Það kom einnig fram á blaða-
mannafundinum, að ástæðan
fyrir því, að ráðizt er í útgáfu
blaðs, sem ætlað er konum að
meirihluta, er einkum sú, að
ennþá eru kjör og áhugasvið kynj-
anna á ýmsan hátt frábrugðin.
Blaðinu er ætlað að ýta undir þá
jafnréttisþróun, sem nú á sér
stað, því að öðru visi getur það
ekki orðið heilsteypt og gott, eins
og forráðamenn útgáfunnar
komust að orði.
Greinilegt er, að vandað hefur
verið til útlits Lífs eins og frekast
er unnt með góðum ljósmyndum,
hönnun og vandaðri prentun.
Hefur hún tekizt prýðilega, og á
það sérstaklega við litljósmynd-
Afengi og tóbak
hækkar um 20%
Algengustu tegundir af síga-
rettum hækkuðu úr kr. 325 í kr.
390 í gær. íslenzkt brennivín
hækkaði úr kr. 3.500 í kr. 4.200.
Þetta er í samræmi við 20%
hækkun á öllu tóbaki og áfengi,
sem ákveðin var af fjármála-
ráðuneytinu í fyrradag. Til-
gangurinn með hækkuninni er
sá að afla ríkissjóði tekna.
Rósavín hækkar úr kr. 1.000 i
kr. 1.200, Dry Sack sherry úr
kr. 1.800 í kr. 2.150, 1.5 I af
Ruffino rauðvíni hækkar úr kr.
1.800 í kr. 2.200. Algengustu
tegundir af skozku viskíi
hækka um kr. 1.000 flaskan.
Pólskt vodka hækkar úr kr.
4.600 í kr. 5.500. Smirnoff-
vodka hækkar úr kr. 4.800 í kr.
5.500. Tinda-vodka hækkar úr
4.100 í kr. 4.900. Rússneskt
vodka hækkar um kr. 1.000
flaskan.
- BS
Hildur Einarsdóttir, ritstjóri nýja tízkublaðsins ásamt Halldóru Björk Jónsdóttur, auglýsingastjóra
blaðsins. — DB-mynd Bjarnleifur.
irnar í blaðinu, en þær hafa jafn-
an verið höfuðverkur í íslenzkri
blaða- og bókaútgáfu.
- HP
Ármann
Snævarr
kjörinn
forseti
Hæstaréttar
Dr. Armann Snævarr
hæstaréttardómari hefur
verið kjörinn forseti Hæsta-
réttar frá 1. janúar 1978 að
telja til ársloka 1979. Björn
Sveinbjörnsson hæstaréttar-
dómari var kjörinn varafor-
seti til sama tíma.
Gleðilegjól og
mikil kirkjusókn
á Eskifirði
Eskfirðingar áttu gleðileg jól.
Mikil veðurblíða var og auð jörð.
Kl. 10 á aðfangadagskvöld gerði
smá föl yfir allt og jók það mikið á
jólagleðina.
Hinn ungi prestur, séra Davíð
Baldursson, messaði hér á að-
fangadagskvöld. Var kirkjan yfir-
full út úr dyrum og urðu þar af
leiðandi margir að standa. Skírðir
voru tveir drengir, tvlburar.
Einnig var messað á Eskifirði
aftur á annan í jólum. Þá var
kirkjan einnig yfirfull. Þá söng
Eskjukórinn tvö lög og stóð söng-
kórinn fyrir framan kórinn í
kirkjunni. Stjórnandi er Violetta
Pavel. Má geta þess að oftast nær
er mikil kirkjusókn er séra Davíð
messar.
Regina Thor./abj.
Vaskleg
framganga
slökkviliðs-
manna
Þau mistök urðu i einum
myndatexta í frásögn DB af
björgun mannsins úr
strompinum, að þess var
ógetið að þar væru menn úr
Slökkviliði Reykjavikur að
störfum með lögreglu. Eins
og fram kemur í greininni
unnu slökkviliðsmenn ásamt
lögreglumönnum og starfs-
mönnum frá borginni að
björgun mannsins. Voru
þrír slökkviliðsmenn við
björgunarstörfin lengst af
og tveir bílar voru til taks
frá Slökkviliðinu ef á þyrfti
að halda.
- ASt.