Dagblaðið - 30.12.1977, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 30.12.1977, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977. Laugarásbíó: Skriðbrautin Hrottalega spennandi um slys að ræða heldur skemmdarverk. Gripið er til harkalegra ráðstafana til þess að hafa hendur i hári unga mannsins og reyna að hindra hann I frekari skemmdarverk- um. En hann er slyngur mjög og lætur ekki nappast. Eftir því sem ég hef bezt vit á sýnist mér myndin vera mjög vel gerð og sannfærandi. Sér- lega skal ég þó nefna það atriði er sprengjusérfræðingar eru að reyna að gera sprengju unga mannsins óvirka. Það atriði var mjög einfalt að allri gerð og gert spennandi með því að klippa á vfxl myndir af unga manninum sem var að skemmta sér og sprengjusérfræðingun- um. Þrátt fyrir að maður sæi þennan augjósa sannleik í hendi sér var samt ekki annað hægt en að láta hrífast með og taka andköf af spenningi. reykja. Ofurmennið var skilið haft gaman af ef þeir á annað fara mina fyrstu ferð i eftir heima. borð eru fyrir að láta hræða sig. skriðbraut. Sem sagt mynd sem ailir geta En ég þori héðan af aldrei að -DS. Leikur Bottoms í hlutverki unga mannsins var mjög sannfærandi. Hann var svona mátulega geggjaður á svipinn til þess að hægt væri að trúa hverjú sem er á hann en um leið ótrúlega venjulegur. George Segal var óvenju góður og hef ég ekki oft séð hann betri. Hlutverk hans er líka gert óvenju mannlegt miðað við hlutverk þau sem hann oftast leikur. Til dæmis má nefna raunir hans við að hætta að Ungi maðurinn neyðir öryggiseftirlitsmanninn til þess að koma áleiðis milljón dölum til sín. Það á að gerast í skemmtigarði einum og fær sá siðarnefndi að leika sér í mörgum leiktækjanna áður en hann losnar við féð. Laugarésbfó: SkriAbrautin (Tha Rollar- coastar). Bandarísk mynd garð af Univarmal kvikmyndafélaginu. Framlaiöandi Jannings Lang. Laikstjóri Jamas Qoldastona. Tónlist aftir Lalo Schifnn. Aðallaikarar Gaorga Sagal. Timothy Bottoms, Richard Widmark og Hanry Fonda. Það er langt siðan ég hef farið á biómynd sem mér hefur þótt jafnspennandi og Skriðbrautin og fer þó mikið i bíó. Sagt er frá ungum manni sem sprengir upp skriðbrautir (rússíbana) i tveim skemmtigörðum til þess að verða sér úti um mikið fé á stuttum tíma og hótar að gera slíkt með fleiri. Aðalpersóna leiksins er starfsmaður við öryggiseftirlit bandariska rikisins sem grunar óeðlilega fljótt að þarna hafi ekki verið Kvik myndir Gleðilegt nýár Sjaumstheil ánýjaárinu, þvíað eins og ávallttryggj- um við örugg viðskipti Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu semeraðlíða BILAMARKAÐURINN Grettisgötu 12-18—Simi 25252

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.