Dagblaðið - 30.12.1977, Blaðsíða 17
DAGBLÁÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977.
17
mætum úr landi. Þar var Citroen
GS. Bílnum var komið fyrir á
þilfari keflvísks fiskibáts, en
hann reyndist full lítill til
bílflutninga í slæmu veðri og því
fór glæsivagninn í hafið og liggur
hann nú á sextugu dýpi. Sök bítur
sekan.
Norðlenzkur kennari sigraði í
kappdrykkju á Spáni. Hann
drakk 25 tvöfalda Cuba-libre
Arið 1977 varð metár hvað
loðnuveiðar snertir og aflahæsta
skipið Sigurður RE 4.
(romm í kók) og að loknu kapp-
inu stóð hann upp og fór á barinn
og keypti sér einn litinn. Frjálst
mun að reyna að slá metið ef
menn gera það á eigin ábyrgð.
Eirin þurrasti, hægviðrasamasti
og sólrfkasti vetur sem sögur fara
af, kvaddi. (Jrkoman f Reykjavík
var aðeins einn þriðji af meðalúr-
komu og 30 milljónir spöruðust f
snjómokstri.
Hraungos hófst við Leirhnjúk
og lítið hraun rann, 50x200 m.
Miklir jarðskjálftar fylgdu og
tvær af þremur þróm brustu og
skemmdir urðu á húsum Kísil-
iðjunnar.
Sáttafundir í vinnudeilu ASl og
vinnuveitenda voru langir og
þreytandi og því fengu menn sér
gjarnan „kriu“.
Maí
Samningaviðræður VSl og ASÍ
í apríl báru fremur litinn árangur
og því var sett á yfirvinnubann
þegar í upphafi maímánaðar. At-
vinna lamaðist víða og tafir urðu
miklar vegna bannsins. Margir
launþegar kvörtuðu sáran er yfir-
vinnubannið dróst á langinn og
léttast tók i launaumslögunum.
Maríjúanapakka rak á land við
Geldinganes og innihélt hann
fíkniefni að söluverðmæti um
eina milljón. Enginn vildi
kannast við að eiga góssið.
Rafknúin dráttartík olli
tæknibyltingu á göngum Land-
spítalans, en tfkin dregur allan
mat úr eldhúsi á hinar ýmsu
deildir spitalans. Áður þurftu
starfsmenn að ganga 35-40 km á
dag eftir göngunum.
Góðviðri vetrarins var svo
mikið að fyrsti sláttur í Kópavogi
var í byrjun maí. Þetta var reynd-
ar á íþróttavellinum, sem er upp-
hitaður og því svolítið svindl.
Eins og alþjóð veit eru
íslenzkar stúlkur þær fallegustu f
heimi og því taldi Utsýn ástæðu
til að senda þrjú sýnishorn úr
landi, en þær höfðu fengið ferða-
verðlaun í vinninga fyrir
fegurðina. Vonir standa þó til að
þær skili sér aftur til sama lands
og nái sér í íslenzka sveitapilta.
Mikil deila upphófst á milli
Skúla á Laxalóni og veiðimála-
yfirvalda en þau töldu að nýrna-
veiki væri í stofni Skúla. Skúli
mótmælti harðlega og kallaði að-
förina ofsóknir og hatur en allt
kom fyrir ekki. Stofninum var
eytt er fram kom á haustið eftir
miklar deilur.
Nýr baðstaður naut mikilla
vinsælda og olli hneykslun betri
borgara, því þar sáust á stundum
berir bossar og brjóstin breið.
Baðstaður þessi samanstendur af
volgum læk og grjóti við
Nauthólsvlk og varýmist kallaður
Volga eða Læragjá.
Þar sem Herjólfur var bilaður
og lokadagur i nánd hjá Vest-
mannaeyingum voru góð ráð dýr.
Málið leystist þó er Fokker vél Fl
flutti Eyjarskeggjum 2 tonn af
brennivlni. Nauðsynlegt þótti að
drekka út lélega vetrarvertlð. En
fleiri skemmtu sér en Eyjaskeggj-
ar. Ung stúlka á Akureyri dansaði
þar til fóturinn gaf sig og lögregl-
an flutti hana burtu fótbrotna. Og
gæsaskyttur f námunda við
Sauðárkrók reyndu skotfimi sína
og skutu hest.
Vorið hafði nú alvarlega haldið
innreið sína og hitinn komst í
15-17 stig norðanlands og austan
og Sunnlendingar fóru að öfunda
þá af sumarsólinni, sem ekki skin
jafnt á alla, hvort sem þeir eru
réttlátir eða ranglátir.
Nú var hver síðastur að auglýsa
eftir stúlku eða manni þvi eftir
fyrsta júlf var kyngreining i aug-
lýsingum bönnuð. Eftir það
tröllriðu starfskraftar auglýsing-
um I dagblöðunum og fæðingar-
kraftar tóku á móti börnum.
Þá glöddust Kópavogsbúar því
nú geta þeir fengið gleraugu.
Ungur maður opnaði gleraugna-
verzlun í kaupstaðnum. Ef dæma
má eftir skipulagi bæjarins var
ekki orðin vanþörf á bót i þessum
efnum.
Enn var togaranum Narfa
breytt. Hann kom til landsins sem
síðutogari, en var breytt í skuttog-
ara og nú f loðnuskip. Allt bendir
til þess að næst verði honum
breytt f kafbát.
Það er erfitt að vera þorskur í
dag var haft eftir Pétri
Sigurðssyni forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar.
Svo bar til að Krafla var nokk-
urn veginn til friðs f mai.
Júní
Allsherjarverkfall skall á á
Stór-Reykjavikursvæðinu í
byrjun júní. Samningar náðust
síðan um miðjan mánuðinn og
Tvisvar á árinu gaus i Mývatnssveit og órói var allt árið á
Kröflusvæðinu, skjálftar tíðir og skemmdir á mannvirkjum í Bjarnar-
flagi.
töldu vinnuveitendur umsamið
kaup allt of hátt, en Björn Jóns-
son taldi samningana þá beztu,
sem náðst hefðu. Launþegar tóku
krónutölunni þó ekki með húrra-
hrópum og vissu að verð vöru og
þjónustu yrði fljótt að éta upp það
sem náðst hafði.
Sjónvarpskvikmyndin Blóð-
rautt sólarlag vakti upp mikla
umræðu f lesendadálkum DB og
komu til hjálpar en góðu hófi
gegndi og varð lögreglan að
bjarga hinni beru á braut.
Viða hefur verið unnið að
breikkun vega og ýmsum bótum
og því þótti yfirvöldum nóg komið
af svo góðu og ákváðu að mjókka
Þrenglsaveginn og á því starfi að
vera lokið fyrir haustið 1978.
Þessi ákvörðun vakti nokkra
undrun austanmanna.
Verkfall BSRB stöðvaði fjölmörg kaupskip á ytri höfninni i Reykjavík
og þegar skipstjórar gerðust óþolinmóðir þeyttu þeir eimpípurnar í
kór.
voru menn yfirleitt á því að hroll-
vekjan hefði verið hrollvekjandi
viðbjóðrr. Sumir vildu þó meira
af svo góðu.
Álitið er að hundar séu rétt-
hærri en menn, ef dæma má eftir
tík einni í Fossvogshverfi. Hún
beit menn í þrígang en var ekki
fjarlægð, þrátt fyrir hundabann.
Það er álit manna að ef Jón Jóns-
son hefði bitið þrjá nágranna sína
hefði honum verið boðið upp á
vatn og brauð.
Bandarísk kona, sjáandi og
raunvísindamaður, kom hingað til
Sá fáheyrði atburður gerðist að
tslendirigar afþökkuðu brennivin,
sem þeim var boðið. Það voru
námsmenn i Stokkhóimi, sem af-
neituðu miðinum 17. júní, því
þeir treystu sér ekki til þess að
sitja veizlu ríkisvaldsins á meðan
námslán væru við nögl skorin.
Þingmaður og fyrrverandi ráð-
herra var stöðvaður í græna
hliðinu á Keflavikurflugvelli ög
varningurinn, sem hann var með
gerður upptækur og honum gert
að greiða sekt. Orsök alls þessa
var að í hliðinu var afleysingatoll-
Læragjá naut mikilla vinsælda sl. sumar.
setans og lögregluþjóns á Seyðis-
firði. Ollu laun löggunnar miklum
ugg i dómsmálaráðuneytinu.
Tíðindalítið var meðal hassista,
en pillumaður einn sem ekki fékk
lyfseðil hjá lækni, hefndi sín með
því að háma í sig lyfseðlablokkina
hans.
Kvenréttindafélagið lét heldur
betur í sér heyra. Þær gerðu
ályktanir um það hvenær karlar
væru beztir Niðurstaðan: Þegar
þeir eru saddir, örlítið hýrir,
heitir og nýbaðaðir. „Hver kona,
sem náð hefur likams og sálar-
þroska þarf fleiri en einn slíkan,“
sögðu konurnar. Hvað skyldi hún
amma heitin hafa hugsað?
Enn unnu íslendingar á vesa-
lings Bretunum , — núna í telex-
keppni í skák. Vonandi höfðu
okkar menn ekki rangt við. Allt of
margir reyndu fyrir sér á þann
hátt á síðasta ári. Dagblaðið var
vel með á nótunum í því efni og
hleypti af stokkunum myndasögu
Aðstaða til þess að fara í sund-
fötin við Læragjá var heldur
bágborin.
með nafninu Bísi og Krimmi. Þeir
félagarnir voru starfandi í
ábyrgðarstöðum hjá því opinbera
hér áður fyrr.
Minkur einn, sem átti að vera
dauður, sýndi ótrúlega húsbónda-
hollustu. Þjófar stálu bíl skytt-
unnar, en yfirgáfu bílinn fljót-
lega, þegar minkurinn i aftursæt-
inu fór að lifna við og sýna í sér
tennurnar.
Skemmtiferðaskip renndi inn á
Reykjavíkurhöfn og að sjálfsögðu
var fyrirsögnin með mynd af því:
Rigningin tekur völdin á Islandi.
Hassmáiin tóku nú nýja stefnu.
Ungmenni, sem ætluðu að smygla
lands til þess að leita að orku við
Kröflu. Tungur hermdu að hún
ferðaðist um á kústskafti. Enn
hefur lítið heyrzt um niðurstöður
könnunarinnar.
Danir greindu frá því að börn á
Islandi væru notuð í þrælavinnu
og minnti það helzt á sögur
Charles Dickens. Börnin ynnu
12—14 tíma á dag og væru rekin
ef þau mættu ekki aftur kl. 8
næsta morgun. Lesendum til
glöggvunar skal bent á að árið
sem er að liða er 1977 en ekki
1877.
I lesendadálkum DB kom fram
að mikill sparnaður væri að þvf
að láta framkalla filmur erlendis í
stað þess að Iáta gera það hér og
væri framköllun ytra allt að 371%
ódýrari. Minna má nú gagn gera.
Ráðstefna var haldin á Loft-
leiðahóieiinu og nefndist hún
vöxtur án vistkreppu. Þar greindi
bandarískur prófessor frá því að
mannkynið þyrfti að haga sér eins
og íslenzkur bóndi, ef ekki ætti að
fara illa fyrir þvi. Dagblaðið
tekur undir þau orð.
Rangæingar eru menn hjálp-
samir og brugðust því vel við er
dansmær er sýndi þeim nekt sína
bað þá að þurrka áer eftir að
hún steig úr baði sínu. En fleiri
vörður, sem ekki þekkti þing-
manninn og því fór sem fór.
Væntanlega gætir hann sin betur
næst og fer ekki í gegnum hliðið á
meðan fávísir afleysingastrákar
eru þar.
íslendingar urðu sér enn til
skammar í Færeyjum Vegna
óspekta og drykkjuláta. Islend-
ingar eru einu útlendingarnir
sem lögreglan í Færeyjum hefur
ama af.
Litvæðing sjónvarpsins jókst
hægt og hægt og tekjur af inn-
fluttum litsjónvarpstækjum
námu hundruðum milljóna.
Hugmynd kom fram um það að
Bjarnarflag yrði bjargvættur
Kröflu og þar yrði borað, en pípu-
lögn þaðan og að Kröflu myndi
kosta um einn milljarð.
Júlí
Júlímánuður heilsaði með því
að ausa regni yfir réttláta Reyk-
víkinga, — á sama tíma nutu
ranglátir Austfirðingar og Norð-
lendingar veðurblíðu mikillar.
Þá gerðist það í tölvusölum
Skýrsluvéla að launatölvan hikst-
,aði á launum tveggja manna, for-
Þcgar sól sást á lofti gengu ung-
meyjarnar um léttklæddar og
kariþjóðin var fljót til hjálpar ef
á þurfti að halda.