Dagblaðið - 30.12.1977, Side 10
10'
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977.
Umboð Dagblaðsins
íKeflavík
þakkaröllum velunnurum Dagblaösins
í Keflavík og starfsfólki fyrir samskiptin
áliðnuári
Farsælt komandi nýtt ár
Umboð Dagblaðsins íKeflavik
Vinningsnúmerí happdrætti
Styrktarfélags vangefinna
Fyrsti vinningur, Plymouth Volare,
kom á miöa númer R 44921. Annar til
10. vinningur, bifreið að eigin vali að
upphæð 1200 þúsund krónur, á
eftirtalin númer: R 4204. R18115.
R 21684. R 47007. R 47073. R 63142.
K 2094. X 3811. Y 6621.
Styrktarfélag vangefinna.
Bandaríkin:
Valdahlutföll í
hættu vegna auk-
innar vopnasölu
— Bandaríkin huga að hagsmunum sínum við Indlandshaf
Sérfræðingahópur á vegum
Bandaríkjaþings telur að þörf
sé á endurskoðun stefnu
Bandaríkjanna I vopnasölu til,
ríkja við Indlandshaf og Rauða-
haf.
Telja sérfræðingarnir að nýj-
ungar í hernaðartækjum og
hernaðarkerfum, þar sem
bandarísk vopn séu stór þáttur,
séu farnar að hafa mikil áhrif
á ríki í þessum heimshluta,
valdahlutföll þeirra innbyrðis
og stjórnkerfi einstakra ríkja.
Niðurstaða þessi er fengin
eftir að hópur manna fór til
Eþíópíu, Bahrain, Kuwait,
Saudi Arabíu, Oman, Samein-
uðu furstadæmanna, Jemen og
íran fyrir einu ári síðan.
Stefna Bandaríkjanna í
vopnasölu er að mati sér-
fræðinganna allt önnur en
henni var ætlað að verða, þegar
Bretar hættu að gæta friðar og
hagsmuna vestrænna ríkja í
þessum heimshluta árið 1971.
Bent er á að Iran og Saudi
Arabía kaupi mun meira af
vopnum en gert hafi verið ráð
fyrir fyrir nokkrum árum. Sagt
er að Kuwait og Yemen hugsi
sér einnig til hreifings á
hernaðarsviðinu á næstu
mánuðum.
Vikan
Söluböm vantar
í eftirtalin
hverfi í Kópavogi:
Hverfi 4.
Vogatunga
Grœnatunga
Brœðratunga
Hrauntunga
Hlíðarhvammur
Hverfi 5
Gagnheiði
Melaheiði
Lyngheiði
Tunguheiði
Skólaheiði
Hverfi 6
Dalbrekka
Auðbrekka
Langabrekka
Hverfi 7
Hrauntunga
Hverfi 8
Digranesvegur
Neðstatröð
Vallartröð
Skógartröð
Álftröð
Meltröð
Hverfi 14.
Vesturvör
Nesvör
Hafnarbraut
Hverfi 15.
Hlégerði
Suðurbraut
Hverfi 17.
Birkigrund
Grenigrund
Furugrund
Reynigrund
Víðigrund
Hverfi 19.
Kjarrhólmi
Hvannhólmi
Starhólmi
Vallhólmi
Uppl. í síma 36720
Voru þeir banka■
ræningjar eða
hugsjónamenn?
Tólf öfgasinnaðir vinstri-
menn voru handteknir í Parfs í
gærkvöldi fyrir að kasta grjóti
að lögreglumönnum. Varð þetta
þegar mótmælaganga fór fram
hjá spænska sendiráðinu í
París.
Göngumenn voru um eitt
hundrað og voru að mótmæla
fangelsum þriggja Frakka á
Spáni.
Þar hlutu þeir þunga dóma,
allt að 40 ára fangelsi, fyrir
Dankarán framið fyrir nokkr-
um árum.
Mótmælamenn í göngunni
héldu því aftur á móti fram að
þeir væru meðlimir hreyfingar,
sem starfað hefði í baráttunni
gegn stjórn Franco heitins,
einræðisherra Spánar.
Jerry Robinson, sem nú er þriggja ára, missti algjörlega hæfileikann
til að tala fyrir átján mánuðum. Þá saup hann á lút í óvitaskap sínum.
Nú hefur honum verið útvegaður rafknúinn gervibarki og kennsla
sérfræðings til að tala með hjálp hans. Þegar myndin var tekin var
kennari Jerrys að kenna honum að segja gleðileg jól.
FLUGELDASALA
KIWANISKLUBBANNA HEKLU OG ESJU
ÁRMÚLA 18
_____OPIÐ TIL KL. 10_
OPIÐ TIL KL. 3 GAMLÁRSDAG 1
/ztvÍAA'
islr1
GLÆSILEGIR FJÖLSKYLDUPOKAR
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL LÍKNARMÁLA