Dagblaðið - 04.01.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1978.
3
Tímaríma hin nýja
Heldur er Geiri gæðaspar
gortar af eigin dáðum,
nronskunni afneitar
og öllum góðum ráðum.
Orku lætur ljúft í té
lýsir af Gunnsa hvörmum
þó að Krafla kyndug sé
og kraumi í vítis börmum.
BetrlMatti fór á fiakk,
ferðaðist eyjar kringum,
álpaðist svo út á skakk
undan Færeyingum.
Þjóðarskútan skælist á
skuldaseglum háum,
verri Matti vita má
við, hvort landi náum.
Erfiðar Villi á við tvo,
ötuli skólamaður,
áfenginu éðir sko
er þó jafnan glaður.
Verður stirt um stjórnarfar
og stundum nógur vandi
ef að átta aumingjar
eiga að stjórna iandi.
Merkines karlinn.
Raddir
lesenda
Öli sagði alveg „pass“,
uppúrveltist saurnum,
ýtti stólnum undir rass
á íhalds höfuðpaurnum.
Einsi býr við alls kyns stress,
f orðum hvergi staður.
Einarður og oftast hress,
afbragðs ferðamaður.
Halldór selnt af hólmi flýr,
í holdum fremur góðum,
hamast við að byggja brýr
á Borgarfjarðar slóðum.
V
-
þettaaeriéa
fyrirþig
Aðstoða við að orða auglýsingu þína,
ef þú óskar. Svara í síma fyrir þig.
Veiti fyrirspyrjendum upplýsingar
um það sem þú auglýsir og
tek við tilboðum sem berast.
Njóttu góðrar þjónustu ókeypis.
Opið til kl. 10 í kvöld.
BIAÐIB
Dagblaöið, smáauglýsingaþjónusta. Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022
Fannst þér þú eyða miklu
af peningum um jólahelg-
ina og um óramótin?
Sigurbjörn Halldórsson bifreiða-
stjóri. Nei, ég get ekki sagt það.
Liklega svona þrjátíu þúsund
krónum og liklega er það vel
sloppið.
Guðbrandur Jörundsson starfs-
maður Búnaðarbankans. Nei, við
eyddum ekki miklu en ég geri ráð
fyrir því að margir hafi látið
drjúgan skilding af hendi þvi mér
virðast kaupmenn láta vel af söl-
unni fyrir hátíðarnar.
Bjarni Karlsson útvarpsvirkja-
meistari. Já, en líklega aðeins
eins og venjulega fyrir jólin. Auð-
vitað vex allt í krónutölu með
vaxandi dýrtíð.
Agúst Ma- nússon setjari. Nei,
nei, eins og'venjulega en dýrtíðin
hækkar auðvitað upphæðirnar.
Sverrir Arnkelsson prentari. Nei,
ósköp svipað og áður og ég fann
engu meiri löngun til kaupa nú en
fyrr við jólahátíð.
Jakob Emilsson prentari. Nei, ég
eyddi minna í krónutölu nú en í
fyrra og stafar það að mestu
af fækkun i fjölskyldunni.