Dagblaðið - 04.01.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1978.
Erlendar
fréttir
/2
JÓNAS
HARALDSSON
Volvobílar
innkallaðir
Um 40 þúsund Volvo-bílar,
smíöaðir í Bandaríkjunum árið
1975, hafa nú verið innkallaðir
vegna galla í dælukerfi elds-
neytis, samkvæmt tilkynningu
stjórnvalda í Bandaríkjunum í
gær.
Talsmaður Volvo-
verksmiðjanna telur að þennan
galla í bensíngjöfinni sé ekki að
finna i Volvo-bifreiðum sem
framleiddar voru í Evrópu. Muni
þvi ekki vera til umræðu að inn-
kalla þær.
Tveggja
barna móðir
herprestur
í Danmörku
Fjörutíu og tveggja ára
lútherskur prestur, sem reyndar
er tveggja barna móðir, verður
fyrsti kvenpresturinn í danska
hernum að sögn danska varnar-
málaráðuneytisins.
Yfirmenn hersins hafa enn ekki
tekið ákvörðun um hvort frú og
séra Lis Rechendorff verður látin
klæðast pilsi eða buxum í þjón-
ustu sinni sem herprestur. Hún
verður fyrst um sinn herprestur í
æfingabúðum fyrir nýliða í hern-
um.
Carterá ferðalagi:
Pólitfskt óveður
íFrakklandi
Carter Bandaríkjaforseti
kom til Answan í morgun frá
Saudi Arabíu til viðræðna við
Sadat Egyptalandsforseta. I sjö-
landaferð Carters var ekki gert
ráð fyrir því að Carter færi til
Egyptalands, en eftir að Carter
lét hafa eftir sér í viðtali að
hann vsöri andvígur stofnun
sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna var ákveðið að breyta
áætluninni til þess að reyna að
sætta sjónarmið leiðtoganna.
Carter, sem nú heimsækir
Egyptalands í fyrsta skipti,
styður friðarviðræður Egypta
og ísraelsmanna heils hugar.
Viðræður forsetanna munu
verða á Aswan flugvelli og er'
gert ráð fyrir því að þær standi
í tæpan klukkutíma.
Frá Egyptalandi fer Carter
siðan til Frakklands í
heimsókn, sem þegar hefur
vakið upp pólitískt moldviðri.
Það þykir ekki venja að
opinber heimsókn Bandaríkja-
forscta til Parísar sé liður í slík-
um þeytingi, sem Carter forseti
hefur verið á undanfarið og
Jacques Cirac borgarstjóri, sem
er andstæðingur Frakklands-
forseta í stjórnmálum, telur
það vansæmd fyrir borgina og
persónulega móðgun við sig.
Jacgues Chirac borgarstjóri i
París.
Drengur eða stúlka, við vitum það
Það er nú mögulegt að segja til
um kynferði ófæddra barna með
allmikilli nákvæmni, eða á milli
85—87%. Þetta er gert með því að
taka blóðprufu af hinni verðandi
móður.
Samkvæmt upplýsingum þýzka
læknisfræðitímaritsins Árztliche
Praxis var þetta staðfest með
rannsóknum læknadeildar
Tækniháskólans í Aachen og á
Bardenberg sjúkrahúsinu. Blóð-
prufan er byggð á þeirri stað-
reynd að hvít blóðkorn fóstursins
sameinast blóði móðurinnar á sjö-
undu viku meðgöngutímans hið
fyrsta og á hinni tfundu hið síð-
asta. Ef hið óborna barn er
drengur innihalda blóðkornin Y-
litninga, sem greina má með próf-
unum.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða læknis
við heilsugæslustöð í Kópavogi.
Staðan veitist frá og með 1. mars 1978.
Umsóknir ásamt uppiýsingum um
fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 1.
febrúar nk.
Heiibrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
2. janúar 1978.
Níu vikna gamalt fóstur, en einmitt á því aldursskeiði má
kyngreina hið óborna barn með allmikilli nákvæmni.
Bandaríkin:
Samdráttur
hjá Chrysler
1
REUTER
i
Hefopnað
endurskoðunarskrifstofu á Húsavík.
Kappkosta að veita góð i þjónustu á
sviði bókhalds og reikningsskila.
Guðmundur Friðrik Sigurðsson
löggiltur endurskoðandi
Laugarholti 12, Húsavík. Sími 96/41305.
Samdráttur varð rúmlega sjö af
hundraði hjá Chrysler bifreiða-
verksmiðjunum bandarísku á
síðasta ári miðað við árið þar á
undan, amkvæmt skýrslu stjórnar
félagsins í gær.
Nam bifreiðaframleiðslan í
verksmiðjunum í Bandaríkjunum
og Kanada einni milljón, fjögur
hundruð fimmtíu og sex þúsund
síðasta ár en var ein milljón fimm
hundruð sextíu og átta þúsund
bifreiðar árið 1976.
1 skýrslu stjórnar verk-
smiðjanna kemur fram að fram-
leiðsla bifreiða hefur verið meira
en fimmtungi minni síðastliðinn
mánuð en sama mánuð árið 1976.
ENN EINN SIGUR
SPASSKÝS OG NÚ
MUNAR AÐEINS
EINUM VINNINGI
Eftir enn einn sigur Spasskys í
fjórtándu skák þeirra félaga í
áskorendaeinvíginu í Belgrad er
spennan í keppni þeirra orðin
jafn mikil og I byrjun og ekki
munar nema einum vinningi á
keppendunum.
Fjórtándu skákinni lauk eftir
fimmtíu og niu leiki, þegar
Kortsnoj gafst upp.
Andrúmsloftið var léttara í gær
en fyrr í keppninni og tókust
keppendur í hendur að henni
lokinni en það hefur ekki verið
háttur þeirra siðan í tíundu
skákinni.
Dómari keppninnar fór að
nokkru að kröfum Kortsnojs og
færði meðal annars áhorfendur
fjær skákmönnunum.
Staðan í einviginu er nú 7,5
vinningur fyrir Kortsnoj og 6,5
vinningur fyrir Spasský.
INNRITUN ÞESSA VIKU
ZUNS
Nýjustu táningadansarnir eru:
BeatBoy, Bulb o.fl. o.fl.
Vestmannaeyingar!
Innritun í Alþýðuhúsinu 4.
og 5. jan. frá kl. 1-5 ogísíma 1056
Kenndir verða:
Barnadansar (yngst 2 ára)
Táningadansar.
Jass-dans.
Stepp.
Samkvæmisdansar.
Gömlu dansarnir
(hjóna- og einstaklingsflokkar)
Tjútt og rokk
Kennsla fer fram í Aiþýðuhúsinu
og Samkomuhúsinu
Kennsla fer fram i:
REYKJAVfK
HAFNARFIRÐI
KÖPAVOGI
HVOLSVELLI
HELLU
AKRANESI
Upplýsingar og innritun í
símum 52996 frá kl. 1-6 og
84750 frákl. 10-7.