Dagblaðið


Dagblaðið - 09.01.1978, Qupperneq 1

Dagblaðið - 09.01.1978, Qupperneq 1
t t t t t i i i i i t i t i i i i i i i i i 4. ÁRG. — MANUDAGUR 9. JANUAR 1978 — 7. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSÍMI 27022. Lands- banka- málið: Segir af sér trúnaðar- störfum vegna málsins r Björgólfur Guðmúndsson, fyrrverandi forstjóri Dósa- gerðarinnar hf., hefur ákveðið að gegna ekki að svo komnu máli trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Er hér m.a. um að ræða formennsku í Varðarfélaginu og formennsku í kjörnefnd sjálfstæðisfélag- anna 1 Reykjavík. Hann telur eðlilegt að varamenn taki sæti sitt í trúnaðarstöðum fyrir flokkinn. V „Eins og kunnugt er kærði stjórn Landsbankans ætlað mis- ferli deildarstjóra ábyrgða- deildar Landsbankans. Fyrir- tæki, sem ég hefi veitt forstöðu hafa verið tengd þessu máli í nokkrum fjölmiðlum hefur verið reynt að nota þessi tengsl i pólitískum tilgangi," sagði Björgólfur í viðtali við DB í morgun. „Tengslin sem um ræðir voru fólgin í því, að fyrirtækin nutu persónulegrar lánafyrir- greiðslu deildarstjórans i nokkrum mæli undanfarin ár,“ sagði Björgólfur. Hann bætti við: „Ekki var nokkru sinni vitað annað en deildarstjórinn hafi lánað eigið fé. Skýrsla hefur þegar verið gefin til rannsóknarlögreglu ríkisins um viðskipti fyrirtækjanna og deildarstjórans. Auk þess“ hafa öll bókhaldsgögn staðið rann- sóknurum til boða.“ Björgólfur kvaðst hafa vænzt þess að rannsókn a.m.k. þætti fyrirtækja hans lyki á skömm- um tíma. Svo virtist þó sem rannsókn málsins í heild ætlaði að reynast mun tafsamari en ætlað var í fyrstu. Lægju því ekki enn fyrir niðurstöður. Af þeim ástæðum hefði hann tekið ofangreinda ákvörðun sína. Björgólfur Guðmundsson hefur aðeins tímabundið látið af trúnaðarstörfum fyrir Siálf- stæðisflokkinn og taka vara- menn hans sæti eins. Edgar Guðmundson verkfræðingur er varaformaður Varðar. Val- garður Briem, hrl„ er lík- legastur til að taka við for- mennsku i kjörnefndinni. Fleiri fyrirtæki en þau, sem nefnd hafa verið, tengjast Landsbankamálinu. Rann- sóknarmenn og Landsbankinn verjast allra frétta um málið. ÓV/BS Kexverksmiðja óstarfhæf, — íbúð brann í Breiðholti Eldur olli umtalsverðu tjóni I tveim tilfellum um helgina. í Kex- verksmiðjunni Frón hefur eldur logað glatt en var kulnaður þegar slökkviliðið kom á staðinn. í -Breiðholti hefur óvenjumikið verið um eldsvoða að undanförnu og um helgina var slökkviliðið tvívegis í ferðinni þar. íbúð stór- skemmdist í öðrum brunanum. — Myndirnar eru frá þessum tveim brunastöðum. — Sjá BAKSÍÐU Mývatnssveit: Kvikuhiaupið enn í gangi — „ólíklegt að kvikan komi upp á yfirborðið f þetta sinn”segir dr. Páll Einarsson f viðtali við DB „Kvikuhlaupið er greinilega minna en I gær, en það er í fullum gangi ennþá,“ sagði dr. Páll Einarsson í viðtali við Dag- blaðið I morgun, þar sem hann var staddur í skjálftavaktinni í Reykjahlíð. Kvikuhlaup af sömu gerð og orðið hafa þarna áður hófst í fyrradag og hafa jarðvísindamenn fylgzt náið með skjálftum, sprungugliðnun og vatnsborði borhola siðan. „Þetta er þó hlaup af stærri gerðinni, þvl það nær undir yfirborðið allt no'rður I Keldu- hverfi," sagði Páll ennfremur. „Samfara hreyfingum kvikunn- ar hafa orðið þó nokkrir stórir skjálftar, allt upp að fjórum stigum á Richter og tveir slíkir urðu f nótt.“ Samkvæmt upplýsingum frá Húsavík, fundust greinilega jarðskjálftar þar í nótt. „Sighraðinn við Kröflu er um 'A af því sem hann var mestur," sagði Páll. „Sérfræðingar frá Orkustofnun eru þar upp frá og fylgjast með framvindu mála. Sagði Páll, að eins konar púls hefði myndazt f holu sex þar upp frá, en vatnsborð hennar hefur jafnan hækkað við kviku- hlaup. „Vatnsborðið þar hefur hækkað um eina sextfu metra, sem er allnokkuð." Nokkrir sérfræðingar fóru upp i Gjástykki og norður eftir og mældu sprungur f gær. Hafði orðið þar allt að 70 cm gliðnun á stundum og nýjar sprungur náðu allt norður f byggð í Kelduhverfi. Hópur jarðfræðinga og jarð- vfsindamanna er norður i Mý- vatnssveit, menn frá Eldfjaíla- stöðinni og Orkustofnun, eins og áður sagði. „Það er ólfk- legt, að kvikan fari upp á yfir- borðið í þetta sinn, en það er ómögulegt að segja og við munum fylgjast náið með þróuninni," sagði Páll. - HP Eldurum helgina: ■ t i Jólin dönsuð út -Sjábls.4 Landsbankamálið: Forstöðumaður- inn vartengdur okurmálinu ’54 „ sem kallað var „18 milljónir í Austurstræti” -Sjábls.5 Frábær þátttaka í vin- sældakosningunni Poppdeild Dagblaðsins og alls staðar að af landinu. Vikunnar vill þakka lesendum Unnið er að talningu at- blaðsins fyrir frábærlega góða kvæða, sem er greinilega mikið þátttöku í vinsældakosningum verk og verður spennandi að blaðanna. Á fimmta hundrað sjá niðurstöðurnar. atkvæði höfðu borizt ritstjórn- Eins og áður hefur verið sagt inni f morgun og voru enn að frá, verða verðlaunastytturnar berast. Verður það að teljast afhentar sigurvegurunum 1 prýðileg þátttaka og ánægju- hverjum flokki í miklu hófi á legt, að í kosningunni komi Hótel Sögu fimmtudaginn 19. fram nokkuð marktækt úrtak janúar nk.AT.—HA.—HP.—ÓV

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.