Dagblaðið - 09.01.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 9. JANUAR 1978.
17
Leiðbeiningar fyrir garðræktendur:
Hvað á að gera í garðinum
frá janúar til júníloka?
Rétt er að athuga reynitréin i janúar, klippa eða saga burtu skemmdar greinar og tálga eða skrubba
upp átusár. í þau á siðan að mála með tjöru eða oliumálningu. Myndin er tekin í marz i fyrra þegar var
verið að klippa gömlu reynitrén í bæjarfógetagarðinum við Aðalstræti í Reykjavík.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
GARÐRÆKT
Garðrækt er orðin snar þátt-
ur i lífi þorra landsmanna og
þar sem DB er blað þorra lands-
manna fannst okkur tilhlýði-
legt að taka til birtingar
nokkrar leiðbeiningar fyrir
garðræktendur. Höfum við
fengið Hermann Lundholm,
sem er garðyrkjustjóri Kópa-
vogs, til þess að skrifa leiðbein-
ingar fyrir garðeigendur.
Hefur hann skrifað sérstaka
leiðbeiningu fyrir hvern mán-
uð, hvað gera skal og að hverju
er mest árfðandi að huga
hverju sinni.
Hermann Lundholm hefur
starfað f Kópavogi síðan 1958,
en hann er danskur að ætt og
fluttist til landsins árið 1938.
Vann hann fyrst hjá Stefáni f
Reykjahlíð, sfðan I Reykjalundi
f Grfmsnesi og loks 9 ár f Hvera-
gerði.
I dag birtum við leiðbein-
ingar fyrir hálft árið, frá
•janúar til júnfloka.
JANÚAR
Um áramótin er lftið hugsað
um garðavinnu. En er það ekki
einmitt rétti tfminn til að
hugsa? Vorið kemur oftast ask-
vaðandi allt f einu með öll sfn
verkefni og þá er enginn tfmi
til að hugsa.
Þeir sem eru að byrja að
koma sér upp garði ættu að
hugleiða framvindu garðvinn-
unnar: Hvað skal gera og hvað
hefur maður efni á að kaupa til
viðbótar.
Það getur verið eitt og annað
sem má gera. Það mætti breiða
grenigreinar eða afklippur úr
garðinum yfir steinhæðina eða
blómabeðin til að binda snjóinn
og hlífa sfgrænum blöðum við
næðingi. Ef enginn eða litill
klaki er f jörð er gott að dreifa
nokkru af garðáburði f lauka-
beðin. Einnig má grafa upp
hnaus af graslauk og láta f pott
til þess að hafa í eldhúsglugg-
anum. Það er eins og hvert ann-
að stofublóm. Klippa má
grænar spirur eftir 2—3 vikur.
Þá er tilvalið að athuga hvort
öll verkfæri séu f lagi, smurð og
brýnd.
í þurru og góðu veðri væri
rétt að athuga reynitrén, klippa
eða saga burtu skemmdar
greinar og tálga eða skrúbba
upp átusár og mála í með tjöru
eða olfumálningu.
Ef limgerðin eru orðin of
breið er tilvalið að mjókka þau
núna.
Hermann Lundholm, garð-
yrkjustjóri Kópavogs, ætlar að
ieiðbeina iesendum DB við
garðavinnuna.
DB-mynd: Hörður Vilhj.
FEBRUAR
Þegar komið er fram f
febrúar eru dagarnir farnir að
lengjast og þótt lftið sé enn
hægt að gera utandyra mætti
taka fram garðyrkjubækurnar
og reyna að finna nýjar hug-
myndir fyrir komandi vor.
Enn má grisja tré og klippa
og þeir sem eiga gróðurhús
geta haft nóg að gera. Við
skulum gera ráð fyrir að búið
sé aö hreinsa úr húsunum, sótt-
hreinsa og mála þannig að hægt
sé að fara að sá petúnfum,
stjúpum og ljónsmunna, svo að
einhverjar blómategundir séu
nefndar. I lok febrúar er lfka
góður tími til að huga að stofu-
blómunum, planta um f nýja
mold og stærri potta.
Margar plöntur má stýfa,
bæði til að létta starfsemi rót-
anna og til þess að fá þéttar og
bústnar plöntur. Þetta á ekki
sfzt við um runnakenndar
jurtir-svo sem havafrósir, passi-
floru o.fl. Afklippurnar er
sjálfsagt að nota sem græð-
linga. Sumar jurtir verða með
tfmanum of fyrirferðamiklar og
nauðsynlegt að deila þeim. Svo
eru alltaf einhverjir kunn-
ingjar sem hafa gaman af þvf
að fá „afleggjara".
Þá er kannski rétt að bera
húsdýraáburð á grasbletti þó
ekki væri nema til að friða
hann fyrir ágangi á viðkvæm-
asta tfmabilinu. Ef þið viljið
fjölga trjám eða runnum með
græðlingum gæti verið rétt að
taka þá núna og geyma f mold
eða rökum mosa. Greinar kelur
oft þegar komið er fram á vorið.
MARZ
Nú byrja laukarnir sem
gróðursettir voru I haust að
skjóta upp kollinum, einkum
þeir sem plantað var sunnan
undir húsvegg þar sem aldrei
frýs. Þótt laukblóm þoli tölu-
vert frost getur borgað sig, ef
snöggur frostakafli kemur, að
skýla spírunum.
Nú- þarf að fara að koma
begóníum og dallum f potta. Til
að flýta fyrir rótarmyndun má
raða hnýðunum í bakka eða
kassa með mosablendinni mold
og láta standa á hlýjum stað.
Þegar ræturnar eru orðnar
1—2 cm á lengd má láta hnúð-
ana f potta einn og einn f frjóa
en létta mold.
Nú fara snemmvaxnar, fjöl-
ærar jurtir að sýna sig. Verið
viðbúin að skýla þeim ef kulda-
kast kemur, annars getur farið
svo að blómknapparnir sviðni
algjörlega. Frost og þfða á vfxl
geta lyft smáplöntum upp úr
beðunum. Ef ekkert er að gert
þorna plönturnar upp og
drepast. Þegar svo stendur á
verður að koma plöntunum
strax aftur ofan í moldina eða
Strá mold eða mosa yfir þær.
Agæt vörn gegn holklaka er
að strá sandi yfir beðin á
haustin.
Barrtré þarf að verja gegn
sólbruna með timburgrind eða
striga.
Vetrarúðun er athugandi.
Það mætti nota þurran og hlýj-
an dag til þess að úða rifs og
vfði áður en fuglarnir fara að
verpa og áður én grænmetið
byrjar að spfra.
APRÍL
I aprfl byrjar vorið fyrir al-
vöru, þótt enn geti komið hret.
Þar sem húsdýraáburður hefur
verið borinn á grasblettinn þarf
að mylja áburðinn og jafna úr
•honum. Annars þarf að raka
sinu og mosa upp úr grasrótinni
og bera á blandaðan garðáburð.
Gæta skal þess að dreifa vel úr
honum, annars koma bruna-
blettir.
Seint í apríl eða f kringum
20. er heppilegt að láta kartöfl-
urnar til spfrunar. Hafi einKver
verið svo forsjáll að láta nokkr-
■ar kártöflur í mjólkurfernur
með mold fyrir 3—4 vikum,
getur hann gróðursett þær
undir plasti um leið og jörðin er
klakalaus.
Nú eru smálaukar farnir að
blómstra f garðinum og nú er
tfmi til að gefa þeim smá-
skammt af áburði. Bezt er að
nota garðaáburð eða upplausn
af Substral eða Maxicrop. Nú er
aðalvaxtartfmi laukanna og
þeir þurfa að taka f sig næringu
til næsta árs blómgunar.
Nú er sá tími sem fslenzka
vetrarblómið er upp á sitt feg-
ursta. Þeir sem hafa yndi af
náttúruskoðun ættu að fara f
smáfjallgöngu eða aka suður að
Kleifarvatni. Þar er mikið af
þvi f klettunum en látið ekki
freistast til að slfta það upp og
flytja það heim f garðinn. Eins
og eyrarrósin er það fegurst f
sfnu rétta umhverfi.
Nú má sjá ýmsum harðgerum
sumarblómum beint f garðinn,
t.d. strandlevköj eða strandrós
eins og það blóm heitir á is-
lenzku, draumsóley og brúðar-
slæðu. Einnig má sá beint
ýmsum grænmetistegundum
eins og gulrótum, steinselju og
matbaunum.
Nú skuluð þið klippa lim-
gerðið og nota gildustu sprot-
ana f græðlinga.
MAÍ
Nú má byrja á að snyrta til f
garðinum. Klippa niður gamla
blómstöngla áður en nýju sprot-
arnir verða of háir. Hafið samt
eitthvað til taks til þess að
breiða yfir viðkvæm blóm ef
það gerir næðing.
Hentugt er að skera gras-
kantana nú. Ef afskurðurinn er
settur upp f smáhrúgu og
þlandaður laufi, nýslegnu
grasi, afraki af túni og þess
háttar fæst fyrirtaks blóma-
mold sem nota má bæði á inni-
blóm og f sáningu.
Nú á að skipta og planta um
fjölærum blómjurtum. Takið
allan hnausinn upp úr moldinni
og blandið safnhaugamold eða
húsdýraáburði í holuna og
gróðursetjið síðan mátulegan
hluta af jurtinni á ný. Afgang-
inn má alltaf gefa vinum eða
kunningjum.
Þeir, sem vilja ala upp fjöl-
ærar jurtir frá fræi, ættu að
fara að sá núna, einnig til tvi-
ærra jurta. Má þar nefna
sumarklukku og fingurbjargar-
blóm. Til flestra matjurta má
einnig sá núna og jafnvel
planta út einhverju af káli.
Gætið þess að hafa jafnan eitt-
hvað til að hvolfa yfir jurtirnar
ef gera skyldi hret.
Reyna þarf að útrýma illgresi
úr trjábeðum og grasblettum.
Ef myndazt hafa breiður af
skriðsóleyjum eða öðru álfka er
bezt að rista ofan af og láta
nýjar þökur f staðinn eða fylla
upp með gróðurmold og sá gras-
fræi. Auöveldast er að losna við
njóla og fffla með stungugaffli
og toga rótina upp f heilu lagi.
Breiður af arfa er bezt að
skafa upp og sá sfðan í eyðurn-
ar sem myndast.
JÚNÍ
I byrjun júnt er venjulega
lokið við að hreinsa til f garðin-
:um og að gróðursetja sumar-
blóm. Um miðjan mánuðinn
erii dalfur og aðrar hnúðjurtir
settar út og þá ætti ekki að vera
annað að gera f garðinum en að
njóta lifsins og sólarinnar!
Það er nú eitthvað annað. Nú
er sá tími sem túlfpanar og
páskaliljur eru að mestu búin
að blómstra. Jafnóðum og blóm-
in fölna þarf að klippa eða
brjóta blómhöfuðin af svo að
jurtirnar fari ekki að eyða orku
f fræmyndun heldur farið að
búa sig undir næsta árs blómg-
un. Minna gerir til þótt ýmsir
smálaukar myndi fræ. Þá þarf
aóeins að grisja til þess að þeir
verði ekki of þéttir.
Einnig þarf að klippa lim-
gerðin og planta út jarðarberja-
plöntum fyrir næsta árs upp-
skeru. Með því að skera af
blómstraða blómstöngla af
snemmblómstrandi fjölærum
jurtum eykst blaðvöxtur þeirra
og oft geta þessar jurtir
blómstrað aftur sfðari hluta
sumars. A sama hátt má auka
blómgun sumarblóma með þvi
að taka blómin af áður en þau
fara að mynda fræ.
Hvernig væri nú að athuga
,um ýmsar smábreytingar? T.d.
má leggja röð af mjóum hellum
þar sem blómábeð og grasblett-
ur mætast. Með þvf móti
sparast kantskurður og auð-
veldara er að slá.
Nú eru líka seinustu forvöð
að bera köfnunarefnisáburð á
trjágróðurinn. Ef það er gert
eftir júlfbyrjun er hætt við að
trén vaxj of lengi fram eftir
haustinu og þá er þeim hætt við
að kala.