Dagblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 13
FEBRÚAR 1978. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR L FEBRUAR 1978. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir í riðlunum Frá Halli Hallssyni, Kaupmannahöfn. (Jrslit í riðli 1 í HM í gær urðu þessi: V-Þýzkaland — A-Þýzkaland 14-14 (7-9) Júgóslavía — Rúmenía 17-16(9-10) Staðan er nú þannig V-Þýzkaland A-Þýzkaland Júgóslavía Rúmenía 2 1 1 0 37-32 3 2 1 1 0 32-30 3 2 1 0 1 30-34 2 2 0 0 2 32-35 0 A fimmtudag leika A-Þýzkaland og Júgó- slavía í Kalundborg og V-Þýzkaland og Rúmenía í Helsingör. í milliriðli 2 urðu úrslit þessi. Sovétríkin — Svíþjóð 24-18(10-5) Danmörk — Pólland 25-23(14-12) Staðan er nú þannig: Sovétríkin Danmiirk Pólland Svíþjóð 2 1 1 0 40-34 3 2 1 1 0 41-39 3 2 1 0 1 45-42 2 2 1 0 1 35-46 0 A fimmtudag leika Sovétríkin og Póliand í Arósum og Danmörk — Svíþjóð í Herning. Keppnin um 9.-12. sætið: Spánn — Japan 26-15(14-10) Tékkóslóvakía — Ungverjal. 18-18(11-12) Bætti tíma sinn um eina og hálfa mínútu Sundmóti Ægis lauk í Sundhöllinni í gær með keppni í 1500 m skriðsundi karía og kvenna. Úrslit urðu þessi: 1500 m skriðsund karla. 1. Brynjóflur Björnsson, A, 17:43.5 2. Axel Aifreðsson, Ægi, 18:04.2 3. Hafliði Halldórsson, Ægi, 18:28.0 íslandsmet Sigurðar Olafssonar, Ægi, á vegalengdinni er 17:09.3 mín. 1500 m skriðsund kvenna: 1. Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi, 19:01.7 2. Ólöf Eggertsdóttir, Self. 19:17.5 3. Sigrún Ölafsdóttir, Self., 21:00.8 Ólöf bætti tíma sinn á vegalengdinni um eina og hálfa niínútu! íslandsmet Þórunnar er 18:38.5 mín. Reykvíkingur sigurvegari — í punktakeppni í skíðagöngu úngur, re.vkvískur skíðagöngumaður — re.vndar af siglfirzkum a*tlum — Ingólfur Jónsson að nafni — sigraði í punktakeppni í skíðagöngu við skíðaskálann i Hveradölum um helgina. Ingólfur er nýkominn heim frá æfingum í Noregi og vann góðan sigur í keppninni. Keppendur voru frá Siglufirði, Ólafsfirði, Revkjavík og ísafirði. Harðfenni var og 13 stiga fróst, þegar gangan fór fram og var gengið við skiðaskál- ann og inn með fjöllunum. Mótstjóri var Jónas Asgeirsson en Haraldur Pálsson göngustjóri. Urslit urðu þessi. 20 ára og eldri. 15 km. 1. Ingólfur Jónsson. Reykjavík. 56:02.0 2. Ilaukur Sigurðsson. Ólafsfirði, 56:30.5 3. Magnús Eiríksson. Siglufirði, 56:56.0 4. Björn. Þór Ólafsson, Ólafsfirði, 61:08.0 5. Þröstur Jóhannesson, ísafirði. 61:48.0 6. Guðm. Sveinsson, Re.vkjavík. 61:58.0 7. Páíl Guðbjörnsson. Reykjavík. 63:59.0 1.3—14 ára. 5 km. 1. Eyjölfur Rögnvaldss. Siglufirði, 18:55.0 2. Finnur Gunnarsson, Ólafsfirði, 19:05.0 3. Þorv. Jónsson. Ólafsfirði. 19:17.0 15—16 ára. 7—5 km. 1. Gottlieb Konráðsson, Ólafsfirði. 28:04.2 2. Einar Ólafsson. ísafirði. 30:38.0 3. Sveinn Guðmundsson. Reykjavík, 31:20.0 17—19 ára 10 km. 1. Jón Konráðsson, Ólafsfirði, 37:48.0 2. Jón Björnsson. ísafirði, 39:39.0 3. Guöm. Garðarsson, Ólafsfirði. 39:58.0 Eftir keppnina fór fram verðlaunaafhend- ing og kaffisamsæti í Skíðaskálanum. Þar fluttu ræður Páll Samúelsson. formaður Skiðafélags Reykjavíkur og Jónas Asgeirs- son. Keppendur rómuðu mjög brautarlagn- ingu og alla framkvæmd mótsins. en um 70 manns voru samankomnir í Skiðaskálanum. tétt. I snjónum. Hinir veikari tapa. Þjálfi getur ekki leynt kvíða sínum. |---------------------- --- ._ J Tapa. þú meinar að þeir séu úr leik. -j— Við verðum að þekkja reglurnar fyrirfram annars leyfi ég ekki mínum / mönnum að leika. ; TEg fullvissa , ^ þig að sömu reglur gilda fyrir bæði lið Og leikið í snjónum. 0Lfv6Rft- ^-2 ÖRLITIL SMYRSL Á SÁRIN: Öll löndin úr C- riðlinum sigruðu! — Danir unnu Pólverja—Sovétmenn f óru létt með Svía og Spánverjar unnu stórsigur á Japan Frá Halli Hallssyni, Kaupmanna- höfn. Pólverjar réðu ekkert við Michael Berg, hinn frábæra danska skotmann, í leik Dan- merkur og Póllands á HM í Randers í gær. Berg skoraði átta mörk en á sama tíma tókst dönsku varnarmönnunum að hafa góð tök á Jerzy Klempel, sem af mörgum er talinn mesti skot- maður í heimi. Hann skoraði ekki „nema“ fimm mörk í Ieiknum, sem er Iítið, þegar Klempel á í hlut. Danir unnu öruggan sigur í leiknum, 25-23, eftir að hafa haft örugga forustu lengstum. Berg skoraði þrjú síðustu mörk Dana i leiknum og var hetja liðsins ásamt Mogens Jeppesen, danska markverðinum með bjórvömbina, sem varði snilldarlega. Mogens — Mogens — Mögens hrópuðu 5000 áhorfendur of-t í iþróttahöllinni í Randers. - , . . Það var gifurleg stemmnmg í höllinni og Danir léku góðan handknattleik, þar sem Anders- Dahl Nielsen og Pazyi stjórnuðu leiknum — en Berg og Munkager, sem skoraði fimm mörk, voru Pól- verjum ákaflega erfiðir, þegar að markskotunum kom. Rúmensku dómararnir, sem dæmdu tvo síð- ustu leiki tslands á HM, voru Dön- um hagstæðir í leiknum en hvort það hafði áhrif á úrslitin skal látið ósagt. Eftir jafna byrjun upp í 3-3 komust Danir í 7-3 og þá var Anders-D.ahl Nielsen drjúgur við að skora. Pólverjar minnkuðu muninn aðeins og 12-10 mátti sjá á markatöflunni. í hálfleik var staðan 14-12. Berg skoraði aðeins eitt mark í fyrri hálfleik — en fór heldur betur á stað í þeim síðari. Skoraði sjö mörk. Pólverjar brutu mjög á honum og var það til þess að þeir misstu nokkra leikmenn út. af. Danir voru alltaf yfir — komust í 17-13 — en Pólverjar söxuðu á forskotið. Staðan var 23- 22 og þá komu tvö mörk frá Berg, sem gerðu út um leikinn. Hann skoraði 8 mörk, Munkager 5, Anders-Dahl Nielsen 4, Thomas Pazyi 4, Heine Sörensen 2, Erik Bue Petersen og Jesper Petersen eitt hvor. Klempel og Kaluzinski skoruðu fimm mörk hvor. Hin tvö löndin, sem léku með Islandi í C-riðlinum, Sovétríkin og Spánn, unnu auðvelda sigra á Svíþjóð og Japan, sem léku í D- riðlinum ásamt Pólverjum. C- riðillinn hefur greinilega verið miklu sterkari en D-riðiIlinn í undankeppninni — og það eru kannski örlítil smyrsl á sárin hjá íslenzku landsliðsmönnunum. Spánverjar sýndu mjög heil- steyptan leik gegn Japan. í byrjun voru Japanir sprækir og komust í 4-2 eri Spánverjar breyttu fljótt þeirri stöðu sér í hag. Voru komnir fjórum mörk- um yfir, þegar að leikhléinu kom. 14-10. Framan af síðari hálf- leiknum munaði ékki miklu. 15-13 og Spánverjar skoruðu næstu sex mörk og úrslit voru ráðin, 21-13. Lokakaflinn nánast formsatriði en ellefu marka sigur Spánverja, 25-14, var þó mjög óvæntur eftir að Japanir höfðu bæði gefið Svi- urn og Pólverjum harða keppni í D-riðlinum. Behovide var mark- hæstur Spánverja í leiknum með Fylkir í Arbæjarhverfi tók for- ustuna í 2. deild íslandsmótsins í gærkvöld, þegar liðið sigraði Gróttu 19-16 í Laugardalshöll. Þá gerðu Leiknir og HK jafntefli 16- 16. Staðan í 2. deiid er nú þannig. F.vlkir 11 7 1 3 218-204 15 HK 11 5 3 3 243-213 13 Stjarnan 10 6 1 3 217-193 13 Þróttur 11 6 1 4 232-221 13 KA 9 4 1 4 194-184 9 Leiknir 11 3 2 6 227-246 8 Þór 8 3 0 5 159-182 6 Grótta 9 1 1 7 167-207 3 sjö mörk — leikmaðurinn, sem Björgvin var settur til höfuðs á sunnudag, en of seint. Þeir Alonso og Pelayo skoruðu fjögur mörk hvor. í hinum leiknum um sætin frá 9.-12. á HM gerðu Tékk- ar og Ungverjar jafntefli 18-18. Þar var mikil spenna. Ungverjar höfðu yfir í leikhléi 12-11 en um tima í síðari hálfleik náðu Tékkar tveggja marka forustu. Ungverjar unnu þann mun upp og komust yfir, 18-17. Tékkar skoruðu síð- asta mark Ieiksiris. Hjá Ungverj- um var stórskyttan Kovacs mark- hæstur með níu mörk — en Katu- sak skoraði sjö mörk fyrir Tékka. Svíar áttu aldrei hina minnstu möguleika gegn sovézku risunum. Skoruðu þó 18 mörk gegn þeim eins og íslendingar en fengu á sig tveimur mörkum meira. Loka- tölur 24-18 fyrir Sovétríkin. Svíar skoruðu fyrsta mark léiksins — en þeir sovézku fimm næstu. 5-1 og síðan voru Svíar algjöriega yfirspilaðir. 8-2 stóð fyrir Sovét- ríkin en Svíar minnkuðu aðeins muninn í lok fyrri hálfleiksins. Staðan í leikhléi 10-5. Framan af síðari hálfleiknum léku sovézku risarnir sér að Svíum og komust í 17-11. Þá fóru þeir að slaka á — greinilegt, að þeir voru að spara sig fyrir átökin gegn Pólverjum á fimmtudag. Lokakafla leiksins héldu Svíar jöfnu — hvort lið skoraði sjö mörk. Það var aldrei um neina keppni að ræða í leikn- um. Þar höfðu sovézku leikmenn- irnir öll völd. Svíum gekk erfið- lega að skjóta yfir sovézku risana — og höfðu heldur ekki tök á Maksímov, sem stjórnaði leik sovézka liðsins með miklum ágæt- um eins og á dögunum gegn Is- landi. Mörkin í Ieiknum dreifðust mjög á sovézku leikmennina. Krakow var markhæstur með fimm mörk. Iljin skoraði fjögur og Gassi einnig. Maksimov skoraði þrjú mörk. Juk einnig 3 — Klimov tvö og risinn Ternyse- nev einnig tvö mörk. Hapn er hæsti leikmaðurinn í keppn- inni, 2.03 metrar á hæð. Hjá Svíum var Thomas Agusts- son markhæstur með 4 mörk. Björn Andersson skoraði þrjú og einnig Dan Eriksson. Ingemar Andersson, Bengt Hansson og Basti Rassmusen tvö mörk hver. Frick og Ribendahl eitt mark hvor. Eftir þessa leiki í gærkvöldi virðist stefna í það, að Danir, Sovétmenn, Austur- og Vestur- Þjóðverjar leiki um fjögur efstu sætin í keppninni. Pólverjar og Júgóslavar sennilega um 5.-6. sæt- ið og Svíar við rúmensku hems- meistarana um 7.-8. sætið. Keppn- inni í riðlunum lýkur á fimmtu- dag. Á laugardag verður keppt um 3. og 4. sætið, og það 5. og 6. í Bröndby-höllinni í Kaupmanna- höfn. Urslitaleikurinn verður á sama stað á sunnudag en þar áður leikið um sjöunda til áttunda sæt- ið í keppninni. Dönum tókst að mestu að stöðva stórskvttu Pólverja. Jerzv Klempel, í gær og lögðu þar með grunn að sigri sínum. A m.vndinni skorar Klempel gegn Japan. Ekkert lát er á vel- gengni Nott Forest — Liðið sigraði Manch. City í FA-bikarnum í gærkvöldi Ekkert lát er á velgengni Nottingham Forest. 1 gærkvöld Mogens, Mogens, Mogens hrópa dönsku áhorfendurnir í hvert sinn sem markvörðurinn þeirra, Mogens Jeppesen, ver. Hann er ný beinlínis dýrlingur í Danmörku. Markvarzla hans í einu orði sagt — stórkostleg. tryggði liðið sér rétt í 16-Iiða úrslit ensku FA-bikarkeppninnar eftir sigur gegn Manch.City í Nottingham 2-1 í skemmtilegum leik. Þá hefur félagið sex stiga forustu í 1. deild og komið í undanúrslit deildabikarsins. Það var aldrei vafi á því hver úrslit yrðu t Nottingham í gær eftir að John Robertson skoraði fyrir Forest á 3ju mín og Peter Withe eftir klukkustund. Að vísu minnkaði Brian Kidd muninn í 2-1 á 62 mín. en Forest-Iiðið hafði tögl og hagldir í leiknum. í fimmtu umferð bikarkeppninnar leikur Forest á útivelli gegn QPR. Fimm bikarleikir voru háðir í gærkvöld og í þeim skoruðu Lundúnalið 17 mörk i þremur leikjum. Urslit urðu þessi. Brighton-Notts Co. 1-2 Chelsea-Burnley 6-2 Millwall-Luton 4-0 Nottm.For.-Man.City 2-1 QPR-West Ham 6-1 Þá áttu Bolton og Mansfield að leika en þeim leik varð að fresta. I 3ju deild gerðu Shrewsbury og Chesterfield jafntefli 1-1. Stórsigur QPR á West Ham var talsvert óvæntur — og West Ham náði forustu á 4.mín. með marki Pop Robson. Don Givens jafnaði á 13,mín. og staðan í hálfleik 1-1. I síðari hálfleiknum yfirspilaði QPR mótherja sína. John Hollins náði forustu fljótt í hálfleiknum. Síðan skoraði Busby tvívegis, þá Bowles úr vítaspyrnu og að lokum Leighton James. Chelsea fór létt með Burnley og það þó Fletcher skoraði fyrir Burnley eftir aðeins 30 sek. Mickey Droy jafnaði og siðan skoruðu þeir Steve Wickers og Gerry Stanley í fyrri hálfleik. I þeim síðari bættu Clive Walker, Langley og Wilkins þremur mörkum við — en Steve Kindon skoraði mark Burnley. Hjá Millwall sló hinn 27 ára Ian Pearson i gegn. Hann skoraði þrívegis fyrir Millwall gegn Luton. Hann gerðist atvinnu- maður hjá Miilwall í haust. Var áður kennari. Mick Vinter skoraði bæði mörk Notts County, sem vann heldur óvæntan sigúrí Brighton.I kvöld verða nokkrir leikir í bikar- keppninni — þar á meðal leika WBA og bikarrrieistarar Manch.Utd. I 5. umferðinni leikur Millwall á heimavelli gegn Notts County, Chelsea leikur á útivelli gegn öðru Lundúnaliði, Orient. Sigur Júgóslava á síðustu sekúndu — Vestur-Þjóðverjar heppnir að ná jaf ntef li gegn A-Þjóðverjum Frá Halli Hallssyni, Kaupmanna- höfn. Gífurleg spenna var í leik Juógóslava og rúmensku heims- meistaranna í heimsmeistara- keppninni i handknattleik í Óðinsvéum í gærkvöld. Þegar 15 sek. voru til leiksloka jafnaði Birtala fyrir Rúmena úr vítakasti í 16-16. Júgóslavar hófu leik á miðju. Brunuðu upp og strax skotió. Knötturinn lenti í varnar- vegg Rúmena en hrökk út í hornið, beint í hendurnar á júgó- slavneska hornamanninum, sem sveif inn úr horninu og skoraði 17. og sigurmark Júgóslava. Það mátti ekki tæpar standa. I sama mund var gefið merki um leiks- lok — en sigur Júgóslava þýddi að heimsmeistararnir eru nú úr leik í keppninni um efstu sætin. Leikurinn var ákaflega tvísýnn allan tímann. Rúmenar höfðu yfir í leikhléi 10-9. Ég horfði á leik Austur- og Vestur-Þýzkalands í Bröndby- höllinni hér í Kaupmannahöfn. Þar var ákaflega sterkur varnar- leikur og góð markvarzla. Þegar tvær mín. voru til leiksloka kom fyrir ákaflega umdeilt atvik Austur-Þjóðverjum var dæmt aukakast — og þeir lögðu knött- inn niður á gólfið. Heiner Brand, hinn sterki leikmaður Gummers- bach, stökk fram, hrifsaði knött- inn og brunaði einn upp að marki mótherjanna og skoraði. Það var 14. mark V-Þjóðverja og í eina skiptið, sem jafnt var i leiknum fyrir utan upphafstölurnar, 0-0. Ekki var skorað þær minútur, sem eftir voru og leiknum lauk með jafntefli 14-14. íslenzku landí liðsmennirnir hefðu margt getað lært hvernig leika á varnarleik með því að horfa á þennan leik — og markvarzlan var frábær hjá Hoffmann í marki V-Þjóðverja en þó enn betri hjá Schmidt hinu megin. Lokakaflann stóð Rauer í marki V-Þýzkalands. Austur-Þjóðverjar virkuðu sterkari allan leikinn og mér fannst þeir óheppnir að missa stig. Danskir dómarar vorur V- Þjóðverjum hagstæðir þó svo þeir að austan fengu fleiri vítaköst. A-Þýzkaland byrjaði vel. Komst í 3-1, síðan 6-3 og staðan í hálfleik var 9-7 fyrir þá. I síðari hálfleik juku þeir muninn í 12-9. Vestur- Þjóðverjar minnkuðu muninn í 14-12 og skoruðu svo tvö síðustu mörk leiksins — og það síðasta var mjög umdeilt. Böhme var markhæstur A-Þjóðverja með 4 mörk. Grúner skoraði 3 og Engel og Dreibrot tvö hvor. Kluhspiess skoraði 5 mörk V-Þjóðverja. Spengler, Deckarm, Ehret og Heiner Brand tvö hver. j j ; m ; iœi f Kk 1 m kÆk ll

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.